Belgrad,höfuðborg Serbíu, býður upp á eitt besta næturlíf í Suð-Austur-Evrópu þar sem er að finna marga bari og klúbba um alla borgina. Ekki missa af Beton hala við Sava ánna, þar sem gömlum vöruhúsum hefur verið breytt í veitingastaði, djassklúbba og bari. Stutt frá er að finna iðnaðarhverfi Dorcol sem einkennist af gömlum bílasmiðjum, fyrrum bílskúrum og byggingarsvæðum, en einnig blómstrandi svæði með ungum athafnamönnum sem hafa opnað óhefðbundnar matvöruverslanir.
Fá fría ferðaráðgjöf
Ef þú ákveður að gista nótt í Belgrad gætirðu auðveldlega endað á því að finna þig í Strahinjica bana, einni af götunum í miðhluta borgarinnar þar sem er að finna marga bari og kaffihús. Á tíunda áratugnum var hverfið uppáhalds staðurinn í Belgrad fyrir nouveau riche (ný ríkt fólk), en úrval baranna er töluvert fjölbreyttara í dag en það var þá. Það er einnig vel þess virði að heimsækja götuna um daginn þegar andrúmsloftið er afslappaðra en þegar myrkur fellur.
Belgrad er svo sérstaklega æðisleg á vorin og sumrin en það er að finna flotta borgarströnd aðeins nokkra kílómetra fyrir utan miðbæinn, svo það er jafnvel mögulegt að fá sér svalandi dýfu þegar sumarið byrjar svo ekki gleyma sundfötunum þínum!
Balkan tískan
Ef þú veist hvar á að leita kemur Belgrad skemmtilega á óvart. Í niðurníddri og örlítið skuggalegri verslunarmiðstöð frá 1980 hafa ungir skapandi listamenn skapað áhugaverðasta verslunarhverfið í Belgrad. Hönnunarhverfið í Belgrad er staðsett á bak við stóra, fallega torgið Trg Republic og hýsir 30 af fremstu hönnuðum Serbíu. Þar finnur þú handsmíðaða sófa, undirföt, föt og skó fyrir bæði karla og konur, en það er enginn betri staður til að fara til ef þú vilt sjá hvernig Suður-Austur-evrópsk tíska lítur út í dag.
Krossferðir og kirkjur
Belgrad er einnig rík af sögu en saga borgarinnar teygir sig um 7.000 ár aftur í tímann sem gerir höfuðborg Serbíu að elstu byggð Evrópu! Hins vegar hafa gamlar byggingar fengið að finna fyrir krossferðum og heimssögulegum atburðum en í seinni heimsstyrjöldinni var borgin mikið sprengd. En eftir stendur enn gamla Kalemegdan virkið og garðurinn í kring sem bæði liggja hátt yfir borginni. Rétttrúnaðarkirkjan á einnig margar fallegar byggingar sem eru dreifðar um alla Serbíu og í Belgrad er Sveti Sava, stærsta rétttrúnaðarkirkan í heiminum, sem hefur verið í byggingu síðan 1935 og er enn ókláruð!
Samgöngur í Belgrade
Það er auðvelt að komast um á fæti eða með strætó og sporvagn í Belgrad. Allt er ódýrt, líka leigubílaferðir.
Ég vil vita meira
Ekki láta framhjá þér fara að...
- Smakka Pljeskavica
- Sjá Kalemegdan virkið
- Fara í bátsferð á Sava og Danube River
- Upplifa hönnunarhverfið í Belgrade (Belgrade Design District)
Fá fría ráðgjöf