Með sína rúmlega 500.000 íbúa er, Skopje, höfuðborg Norður-Makedóníu, ekki bara stórborg heldur áhugaverð blanda af skæruliða minnisvörðum, kommúnista minjum, skemmdum arkitektúr og ekki síst gamla tyrkneska basarhverfinu Stara Čaršija undir Kale virkinu sem gerir borgina vel þess virði að skoða.
Fá fría ferðaráðgjöf
Hvað er hægt að gera í Skopje
Stara Čaršija basarinn liggur norðan við Vardar ánna sem skiptir borginni í tvennt. Gömul viðskiptasvæði með lítil viðarverkstæði og smásala sem selja Turkish delight. Falleg kennileiti með austurlenskum stíl frá stjórn Ottómana fyrir 500 árum munu líklegast ekki fara framhjá þér, þar með talin gömul tyrknesk böð og Mustafa Pasha moskvan frá 1492. Einnig er að finna ódýra grillstaði og iðandi kaffihús í nágreninu.
Útlit Skopje breyttist róttækilega vegna verkefnisins Skopje 2014 sem var fjármagnað af fyrrum þjóðernissinnaðri ríkisstjórn. Með því að reisa söfn, stjórnarbyggingar og fjölda minja sem sýna sögulegar persónur frá svæðinu var tilgangurinn að veita höfuðborginni klassískari mynd eftir sjálfstæði frá fyrrum Júgóslavíu og stuðla að ákveðinni makedónskri sjálfsmynd sem er stolt af ríkri sögu. Kostnaðurinn er áætlaður hafa verið meira en 500 milljónir evra og margir telja að yfirvöld hafa farið yfir um - en þú getur dæmt um það sjálf/ur!
Eitthvað sem flestir Makedóníumenn eru sammála um að vera stoltir af er móðir Teresa, albönsk-indversk rómversk-kaþólsk nunna og trúboði sem var fædd og uppalin í Skopje. Víðsvegar um borgina er hægt að sjá merki um Nóbelsverðlaunahafann og á götu við Memorial House hefur verið reist stórt minnismerki eftir myndhöggvarann fræga, Tome Serafimovski til heiðurs henni.
Ég vil vita meira
Samgöngur í Skopje
Þú getur séð allt það sem við nefndum hér fyrir ofan á aðeins nokkrum dögum. Kannaðu Skopje fótgangandi, hoppaðu í strætó eða farðu í leigubíl. Þú finnur mikið um þá og eins og með flesta hluti í Skopje þá eru þeir ódýrir.
Ekki láta framhjá þér fara að...
- Smakka Meze og Kebab
- Sjá austurlenska hverfið Stara Čaršija
- Fara í kanóferð um stórkostlega Matka gljúfrið 15 km fyrir utan borgarmörkin
- Upplifa Debar Maalo hverfið
Fá fría ferðaráðgjöf