Þú getur skoðað leifar af landnámi bronsaldar um morguninn og getur farið um borð í sokkið þýskt strandgæsluskip frá síðari heimsstyrjöldinni síðdegis. Það er því engin furða að köfun er ofarlega á listanum hjá mörgum ferðamönnum sem heimsækja Lake Ohrid. Hvað með hjá þér?
Fá fría ferðaráðgjöf
Ohrid Lake
Elsta stöðuvatn Evrópu og einnig það dýpsta liggur við landamærin á milli Albaníu og Makedóníu og er gullnáma náttúrulegra og sögulegra fjársjóða. Flestur gróður og dýralíf hjá þessu 300 metra djúpa vatni er einstakt fyrir svæðið. Þetta á til dæmis við um sjaldgæfan Ohrid silung og ál sem þú munt fá tækifæri til að borða á einum af veitingastöðunum við vatnið ef þú vilt.
Ekki hafa áhyggjur ef þú ert ekki svo mikið fyrir köfun, lífið neðansjávar eða veiðar. Ohrid vatnið er einnig frábær staður ef þú vilt krydda upp á fríið þitt með smá strandarfríi og ef þú þarft frí frá sólinni er nóg annað að gera á svæðinu. Helsti bærinn við vatnið heitir Ohrid rétt eins og vatnið en bæði bærinn og vatnið hafa verið á heimsminjaskrá UNESCO síðan 1980 þegar Makedónía var enn eitt af sex lýðveldunum í Júgóslavíu. Saga Norður-Makedóníu nær þó mikið lengra aftur og það muntu sjá af fallegum gömlum byggingum sem umlykja vatnið.
Eitt af kennileitum Ohrid er St. Jovan of Kaneo klaustrið sem situr fallega á kletti rétt fyrir ofan sjávarþorpið Kaneo, rétt fyrir utan gamla bæinn. Klaustrið var stofnað í lok 13. aldar og vígt af Jóhannesi skírara. Staðsetning þess er geggjuð og þess vegna kemur ekki á óvart að það er einn ljósmyndaðasti og Instagrammaðasti staðurinn í Norður-Makedóníu. Annað af kennileitunum er vígi Samoil og ef þú labbar í gegnum gamla bæinn, þar sem allt er í labbfæri, þá sérðu líka forn leikhús og glæsilegar kirkjur frá miðöldum.
Taktu þér líka tíma til að slaka á á einu af kaffihúsunum við ströndina eða á strandbörum sem breytast í næturklúbba á sumrin.
Ég vil vita meira
Samgöngur í Ohrid
Alþjóðaflugvöllurinn í Ohrid liggur 14 km norður af bænum. Ohrid er líka vel tengdur Skopje þar sem strætó keyrir á nokkurra klukkustunda fresti. Jafnvel þó að gamli bærinn sé nógu lítill til að ganga allt þá getur þú líka tekið leigubíl til að forðast brekkurnar. Með bát er hægt að fara frá Ohrid til nokkurra annarra hafna umhverfis vatnið, til dæmis Struga og Sv Naum.
Ekki láta fara framhjá þér að...
- Smaka Ohrid silunginn
- Sjá St. Jovan of Kaneo klaustrið
- Kafa í vatninu Scuba diving in the lake
- Upplifa Ohrid með bát
Fá fría ferðaráðgjöf