{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
Split Croatia Ocean View
Split Croatia Female Traveller Looking Up

Ferðir til Split

Fylgdu straumnum niður þröngar götur þar sem hljómar götutónlistarmanna sem spila gamla slagara óma fyrir bjórsötrandi áhorfendur. Þetta er ekki upplifun sem þú munt eiga ein/n en það eru miklar líkur á því að þú hafir séð helstu ferðamannastaði Split jafnvel áður en þú stígur fæti í bæinn!

Fá fría ferðaráðgjöf

Rómversk höll sem felur dreka

Split er önnur stærsta borg Króatíu og var stofnuð í kringum rúmlega 1700 ára gamla höll rómverska keisarans Diocletian, en höllin var einmitt notuð sem tökustaður í Game of Thrones. Í katakombunum fyrir neðan höllina er hægt að sjá hvar Daenerys Targaryen faldi drekana sína og aðeins fyrir utan borgina er hægt að halda áfram á GOT slóðir með því að heimsækja Klis virkið sem var bakgrunnur fyrir skáldskaparborgarríkið Meereen.

Hafnarborg

Í raunveruleikanum er saga Split ekki minna dramatísk GOT! Í þúsundir ára hafa mismunandi þjóðir og heimsveldi barist um borgina og eftirsóttu staðsetningu hennar við sjóinn. Í dag sérðu líflega borg með götusýningum og börum en höfnin er notuð sem stoppistöð fyrir skemmtiferðaskip og farþega þeirra sem sigla til og frá eyjunum í eyjaklasanum.

Skellti þér að surfa

Í klukkutíma fjarlægð frá Split er að finna Brac og Zlatni rat - 500 metra langa strandlengju sem er einsök í laginu, eins og lítill skagi sem teygir sig í sjóinn. Þetta er ein vinsælasta strönd Króatíu en hún er einnig þekkt fyrir að vera einn besti staðurinn í Króatíu til að surfa.

Ég vil vita meira

Tími til að djamma

Einnig í klukkutíma fjarlægð frá Split er Hvar. Undanfarin ár hefur eyjan orðið þekkt sem djammeyja þar sem stórar snekkjur í höfninni sýna hvað hún er vinsæll áfangastaður fyrir frægt fólk og nouveau riche, þannig að ef þú ert að leitast eftir góðu næturlífi þá er þetta staðurinn fyrir þig. Í aðalbæ Hvar sérðu stórkostlegar hallir og kirkjur skreyttar af venetískum endurreisnarmálurum. Ef þú kannar svo eyjuna á hjóli (sem við mælum svo sannarlega með að þú gerir) þá finnur þú lyktina af rósmarín sem vex villt í brekkunum, sérð ólívutré, víngarða, lavender akra og fallegar strendur.

Ég vil vita meira

Uppgötvaðu leyndarmál

Eyjan Vis, sem á tímum kalda stríðsins þjónaði sem herstöð og var því lokuð almenningi, er í u.þ.b. 2,5 klukkustunda fjarlægð frá Split. Með hjóli, bíl og strætisvagni er hægt að finna afskekktar strendur, engi með villtum jurtum og upplifa nokkrar af gömlu hernaðarstöðunum sem eru í dag aðgengilegar almenningi. Ó, og veitingastaðirnir á Vis bjóða einnig upp á framúrskarandi sjávarrétti ef það er eitthvað sem þú elskar!

Samgöngur í Split

Split er umferðarmiðstöð með alþjóðlegum flugvelli og góðum strætótengingum bæði við ströndina og meginlandið sem og beinar lestir til t.d. Zagreb, svo það er auðvelt að komast til Split og að ferðast um Split.

Fá fría ráðgjöf

Lestu meira um Balkanskagann

Sjá fleiri ferðablogg
alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Afþreyingar í Split

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.