{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Road trip um Norðurey Nýja-Sjálands


Hobbithola í hobbiton á Norðurey Nýja-Sjálands
Sjá sem lista

Lengd

3 vikur

Byrjar í / Endar í

Auckland

Áfangastaður

Nýja-Sjáland

Hvenær er best að fara

Nóvember - mars

Viltu vita meira?
Ertu tilbúin/n í tryllt road trip um Norðureyju Nýja-Sjálands? Á um það bil þremur vikum muntu sjá alla bestu staðina sem eyjan hefur upp á að bjóða (og treystu okkur, þeir eru margir)!

Road tripið byrjar og endar í Auckland. Taktu þér tíma til að skoða borgina áður en þú sækir húsbílinn þinn. Við höfum sett saman ferðatillögu um alla þá staði á Norðurey sem við mælum með, en á endanum er það algjörlega undir þér komið hvað þú vilt sjá á ferðalaginu þínu.

Skoðaðu hinar fjölmörgu heitu laugar, eldfjöll og jarðhitasvæði. Að auki muntu fá tækifæri til að upplifa hina mögnuðu Maori menningu.

Hvernig eru KILROY road trip?

Við hvetjum alltaf KILROY ferðalanga til að vera forvitna. Ekki keyra bara til að keyra. Stoppaðu þar sem þú getur, farðu niður þröngu hliðargötuna og ekki festast bara í húsbílnum. Kynnstu nýju fólki og kynntu þér nýjar leiðir til að gera hlutina. Kannaðu og vertu opin/n fyrir breytingum - það er þá sem ævintýrin gerast

*Frá verð á mann, miðað við 2 einstaklinga sem ferðast saman eldri en 25 ára. Hafðu samband við okkur ef þú ert aðeins yngri en það - það er ekkert vandamál!

Innifalið
  • Flug til og heim frá Auckland
  • Gisting í 1 nótt í Auckland við komu
  • Leiga á húsbíl í 17 daga
  • Gisting í 2 nætur í Auckland við brottför
  • Bókunargjöld
  • Ráðgjöf hjá ferðasérfræðing
Ekki innifalið
  • Ferðatrygging (en við getum aðstoðað þig við kaup á slíkri)
  • Máltíðir
  • Afþreyingar
alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

1. Ferðaáætlunin

Heim - Auckland - Paihia - Kaitaia - Dargaville - Hobbiton - Rotorua - Whakatāne - Gisborne - Napier - Wellington - Tongariro þjóðgarðurinn - Taupo - Waitomo hellarnir - Hamilton - Auckland - Heim

Mundu að þetta er aðeins ferðatillaga fyrir stóru ferðina. Ef þú vilt fá aðstoð við að hanna road tripið að þínum þörfum þá skaltu skrifa okkur og fá fría ráðgjöf. Og eitt enn! Þegar þú ferð í road trip er gott að vera með góða ferðatryggingu, við getum aðstoðað þig við kaup á slíkri.

2. Auckland

Auckland er lifandi borg hafna, stranda og eyja, enda er hún þekkt sem „City of Sails“. Við höfum innifalið eina nótt fyrir þig hér svo þú getur tekið því rólega þegar þú kemur eftir langt flug. Þar sem Auckland er svona mögnuð borg höfum við líka innifalið gistingu í 2 nætur þegar þú endar road tripið þitt í borginni. En áður en það gerist verður þú að leggja af stað, en þú sækir húsbílinn þinn í Auckland!

3. Paihia

Um það bil 3 klukkustundir norður af Auckland, munt þú finna litla fallega bæinn Paihia. Hann er fallega staðsettur við Bay of Islands. Þar er notalega stemning og fullt af börum og veitingastöðum ásamt fallegri sandströnd. Ef þú hefur tíma geturðu ferðast til Russell í grenndinni eða þú getur skoðað eitthvað af sjávarlífinu, þar á meðal seli, höfrunga eða jafnvel hvali ef þú ert heppin/n.

4. Kaitaia og Cape Reinga

Nokkru norðar finnurðu Kaitaia. Dveldu hér í einn dag og vertu viss um að keyra upp á Cape Reinga, nyrsta hluta Nýja-Sjálands, þar sem þú færð geggjað útsýni yfir hafið. Og ef þú vilt enn magnaðri upplifun ættirðu að fara hingað annað hvort við sólarupprás eða sólsetur.

5. Hobbiton

Ef þú elskar Lord of Rings, veldu þá að fara í skoðunarferð með leiðsögumanni! Hobbiton kvikmyndasettið er heillandi staður fullur af hobbitaholum í raunstærð á Hamilton - Waikato svæðinu, og er fyrsti viðkomustaðurinn í "The Trilogy" pakkanum sem inniheldur Hobbiton kvikmyndasettið, Waitomo Caves og Rotorua (sem er næsta stoppið þitt). Njóttu leiðsagnar um Hobbiton, þar sem fróður leiðsögumaður mun upplýsa þig um söguna og kvikmyndatökuferlið á staðnum. Stoppaðu til að fá þér bjór á Green Dragon Pub eða fáðu þér léttan hádegisverð á Shire's Rest Café.

6. Rotorua

Leðjulaugar, goshverir og ævintýri. Rotorua er eitt líflegasta jarðhitasvæði heims. Skoðaðu iðandi leðjulaugarnar og goshverana í Whakarewarewa Thermal Valley, eða fáðu adrenalínið í gang með því að skella þér í eina af frábæru afþreyingunum sem eru í boði á þessu svæði. Heimsæktu Te Puia til að upplifa Maori menningu og læra um heillandi sögu frumbyggja Nýja-Sjálands.

7. Whakatāne

Næsta stopp er Whakatāne, við Bay of Plenty. Hér snýst allt um útivist. Við mælum með gönguferðum eða hjólreiðum. Þú getur líka skoðað svæðið frá vatninu ef þú ferð á kajak. Vertu viss um að kíkja á nærliggjandi Moutohora Island og/eða Whakaari líka kallaðar White Island.

8. Gisborne

Á austurhluta Norðurey finnur þú Gisborne. Skemmtileg staðreynd: Þessi staður er sá fyrsti í heiminum til að sjá sólarupprásina á hverjum degi svo vertu viss um að vakna snemma að minnsta kosti einn morguninn til að upplifa þetta frá ströndinni. Ó, og talandi um strendur... Gisborne er frægur fyrir Waikanae Beach sem býður upp á frábærar surfaðstæður. Þú getur líka heimsótt Cook's Cove sem þú sérð á myndinni.

9. Napier

Napier er lítill strandbær staðsettur við Hawke's Bay. Bæruinn gjöreyðilagðist í jarðskjálfta árið 1931, en hefur síðan þá verið endurbyggður í flottum Art Deco-stíl. Napier státar sig af víngerðum, svo það er sjálfsagt að smakka eitthvað af víni (auðvitað ekki ef þú ert að fara að aka!). Gakktu úr skugga um að þú heimsækir líka Motara Pa, sem er Maori þorp og eitt mikilvægasta fornleifasvæði Nýja-Sjálands.

10. Wellington

Kvikmyndaframleiðsla og tryllt matarmenning. Wellington er staðsett á syðsta odda Norðureyjar og er heimili Weta Workshop og Weta-hellisins. Hér geturðu skoðað töfra kvikmyndagerðar og nærliggjandi tökustaði. Borðaðu á góðum veitingastöðum og taktu kláfinn til Kelburn útsýnisstaðarins fyrir stórkostlegt útsýni yfir höfnina. Ef þú ert að leita að góðum stað til að borða á, getum við mælt með Chocolate Fish Café sem er aðeins fyrir utan miðbæinn. Þetta er local kaffihús og aksturinn þangað meðfram ströndinni er alveg frábær!

11. Tongariro þjóðgarðurinn

Þú getur farið beinustu leið frá Wellington til Tongariro, en við mælum reyndar með því að þú takir krók í vesturátt, þannig að þú keyrir frá Stratford og í átt að Taumarunui eftir "Forgotten World Highway". Það er alveg einstakt og lítur út eins og staður þar sem risaeðlur bjuggu eitt sinn.

Næst býður þín hið ótrúlega náttúruundur sem Tongariro þjóðgarðurinn er. Þetta er elsti þjóðgarður Nýja-Sjálands og að sjálfsögðu er hann á heimsminjaskrá UNESCO. Í þjóðgarðinum finnur þú þrjú virk eldfjöll og nokkrar frábærar gönguleiðir.

12. Taupo

Frá Tongariro liggur leiðin til Taupo, heimili hins fræga Lake Taupo og Huka fossanna. Við hvetjum þig til að skoða hvort tveggja. Ef þú elskar útivist getur þú farið í göngu á topp Tauharafjalls og notið fallega útsýnisins. Eftir gönguna geturðu slakað á í náttúrulegri nuddlaug við Otumuheke Stream.

13. Waitomo hellarnir

Neðanjarðarhellar og Glow worms. Í um það bil 2 tíma akstursfjarlægð frá Taupo eru Waitomo hellarnir, Heillandi völundarhús neðanjarðar sundir grænu ræktuðu landi. Farðu í göngu- eða bátsferð, flúðasiglingu eða zip line í gegnum myrkrið.

14. Auckland

Road trip þitt um Norðurey Nýja-Sjálands endar þar sem hún byrjarði, aftur í Auckland. Skilaðu húsbílnum þínum og skráðu þig inn á hostelið sem við höfum bókað fyrir þig í tvær nætur. Taktu því rólega og vertu viss um að skoða allt sem þú átt eftir að sjá í borginni. Ef þú vilt síðan ekki taka því rólega gætir þú skellt þér í teygjustökk!

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.