Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
Ferðaleiðin: Heim - Miami - Key West - Tampa - Crystal River - Pensacola - New Orleans - Houston - San Antonio - Big Bend NP - Rosswell - El Paso - Tucson - Saguara NP - Sedona NP - Phoenix - Joshua Tree NP - Los Angeles - Heim
Mundu að þetta er aðeins ferðatillaga fyrir stóru ferðina. Ef þú vilt fá aðstoð við að hanna road tripið að þínum þörfum þá skaltu skrifa okkur og fá fría ráðgjöf. Og eitt enn! Þegar þú ferð í road trip er gott að vera með góða ferðatryggingu, við getum aðstoðað þig við kaup á slíkri.
Ferðin hefst í litríku Miami þar sem við erum búin að bóka fyrstu þrjár næturnar á flottu farfuglaheimili. Það er frábær upphafsstaður ef þú vilt kíkja á einn vinsælasta áfangastaðinn í Bandaríkjunum. Skoðaðu Miami Beach á daginn og heimsóttu einn af mörgum næturklúbbum á kvöldin. Hér höfum við einnig bætt við eins dags ferð til að skoða Everglades. Byrjaðu svo road tripið þitt og keyrðu suður til að heimsækja Key West áður en þú ferð upp með vesturströnd Flórída. Stoppaðu í Tampa áður en þú heimsækir Crystal River, fræg fyrir mikinn fjölda sækýra. Haltu áfram alla leið upp að notalega strandbænum Pensacola sem er frægur fyrir töfrandi hvítar strendur.
Frá Pensacola í Flórída heldurðu áfram inn í Louisiana, þar sem við mælum með stoppi í New Orleans. Eins og þú veist líklega er borgin fræg fyrir goðsagnakennda djassmenningu sína. Bourbon Street er geggjaður staður til að byrja stemninguna.
Það er kominn tími til að upplifa villta vestrið eins og þú þekkir úr klassísku vestrænu kvikmyndunum. En fyrst er það þess virði að taka stutt stopp í bæði Houston og síðan San Antonio. Í San Antonio ættir þú að heimsækja Alamo, mikilvægan staður í sögu Bandaríkjanna. Héðan er kominn tími til að fara nokkra kílómetra umkringd/ur þurru landslagi Texas. Stoppaðu í Big Bend þjóðgarðinum þar sem þú færð geggjað útsýni yfir eyðimörkina og slétturnar.
Fyrsta stopp í New Mexico er Roswell. Borg sem er fyrst og fremst fræg fyrir meint UFO atvik árið 1947. Þannig að ef þú hefur áhuga á leyndardómum og geimverusögum muntu elska þennan stað. Næst er El Paso - borg sem liggur að Mexíkó. Þú kemst ekki hjá því að taka eftir mexíkóskum áhrifum hér, sérstaklega þegar kemur að matarsenunni sem er undir miklum áhrifum frá mexíkóskri matargerð.
Frá New Mexico heldurðu áfram inn til Arizona þar sem fyrsta stoppið er Tucson. Skoðaðu Arizona-Sonora eyðimerkursafnið eða taktu gönguna á Sabino Camino. Næst á eftir er Saguara þjóðgarðurinn sem er heimili ótal kaktusa, sem er tákn númer eitt í hinu sanna ameríska villta vestri. Frá einum þjóðgarði til annars, Sedona NP ætti líka að vera á listanum þínum. Hér geturðu séð Monument Valley, boga og gljúfur. Síðasta stopp í Arizona er Phoenix.
Frá tómlegu landslagi Arizona er kominn tími til að heimsækja síðasta fylkið í þessu road tripi, Kaliforníu. Byrjaðu í Joshua Tree þjóðgarðinum. Farðu í ferð til Hidden Valley eða skoðaðu Skull Rock. Haltu áfram að strandlengju Kaliforníu þar sem þú skilar bílnum í Los Angeles. Þú átti skilið góða pásu frá veginum svo við höfum skipulagt 3 nætur á flottu farfuglaheimili rétt við Venice Beach, þannig að ef þú vilt eyða smá tíma á ströndinni, þá er tækifærið þitt núna! Hvort þú ert tilbúinn að fara heim eftir 3 daga eða þarft meiri tíma er undir þér komið. Láttu okkur bara vita og við munum sjá til þess að skipuleggja ferðina í samræmi við það.
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.