Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
Heim - Los Angeles - Morro Bay - Monterrey - San Francisco - Lake Tahoe - Yosemite National Park - Kings Canyon & Sequoia National Park - Death Valley - Las Vegas – Grand Canyon - Palm Springs - San Diego - Los Angeles - Heim
Mundu að þetta er aðeins ferðatillaga fyrir stóru ferðina. Ef þú vilt fá aðstoð við að hanna road tripið að þínum þörfum þá skaltu skrifa okkur og fá fría ráðgjöf. Og eitt enn! Þegar þú ferð í road trip er gott að vera með góða ferðatryggingu, við getum aðstoðað þig við kaup á slíkri.
Ævintýrið hefst í hinni sólríku Los Angeles. Við höfum innifalið 3 nætur á einu af uppáhalds farfuglaheimilunum okkar, svo áður en ferðalagið hefst hefurðu tíma til að skoða fræg hverfi, eins og Beverly Hills, West Hollywood og auðvitað Santa Monica og Venice Beach. Ekki missa af ótrúlegu útsýni yfir borgina frá Griffith Observatory. Eftir nokkra daga af skoðunarferðum er kominn tími til að sækja bílaleigubílinn og láta vegferðina hefjast!
Keyrðu meðfram þjóðvegi 1 og stoppaðu þegar þú nærð að heillandi litla strandbænum Morro Bay - sem er frægur fyrir afslappandi andrúmsloft. Þó það sé lítill bær þá er nóg af hlutum að gera, sérstaklega ef þú hefur gaman af því að eyða tíma utandyra í að skoða dýralífið og vilt njóta frábærs matar og víns. Vertu hér í 1-2 daga og nýttu þér allt sem þessi sjávarfjársjóður hefur upp á að bjóða!
Monterey Bay er notalegur lítill strandbær með frábæra stemningu. Við mælum með að þú hangir hér í nokkra daga áður en þú heldur áfram. Ef þú vilt sjá sæljón og otra ættirðu að fara að Fisherman's Wharf þar sem þau liggja oft í sólinni á klettum í kringum höfnina. Ef þú ert aðdáandi víns geturðu heimsótt einn af mörgum víngörðum Kaliforníu.
Velkomin til fallega San Francisco, þar sem við höfum innifalið 3 nætur á flottu farfuglaheimili við flóann. Þessi borg er full af mótsögnum, litríkum persónuleikum, menningu, flottum veitingastöðum og notalegum hverfum. Hér finnur þú fjármálahverfi, hippabæ, China Town og Japan Town! Alcatraz er líka þess virði að heimsækja - mundu bara að bóka miða með góðum fyrirvara. Treystu okkur, þeir seljast fljótt upp!
Lake Tahoe er staðsett á landamærum Kaliforníu og Nevada fylkja og er næstdýpsta vatnið í Bandaríkjunum. Gönguferðir, hjólreiðar og vatnaíþróttir eru vinsæl afþreying sem þú getur notið hér á sumrin. Við mælum með að þú eyðir að minnsta kosti 2-3 dögum í Lake Tahoe til að skoða allt sem þessi dásamlegi staður hefur upp á að bjóða!
Vertu tilbúin/n til að kanna stórbrotin undur móður jarðar. Vissir þú að Yosemite þjóðgarðurinn er heimili nokkurra af hæstu fossum Norður-Ameríku? Fyrir utan það er garðurinn einnig frægur fyrir fallega steina. Farðu til Yosemite Valley til að skoða lóðrétta granítveggi sem ná allt að 1000 metra. Þú gætir líka viljað heimsækja Mirror Lake, til að dást að útsýninu og taka geðveikt flottar myndir!
Sumir gætu vísað til Kings Canyon þjóðgarðsins sem „keppinautar Yosemite“. Eyddu smá tíma hér í að skoða djúpa dali, sérstaka steina og stærsta sequoia-tré sem eftir er í heiminum. Kings Canyon Park er staðsett við hliðina á Sequoia þjóðgarðinum og er skipt í tvö meginsvæði: Grant Grove, þar sem þú getur fundið hið fræga General Grant Tree (einnig þekkt sem "the Nation's Christmas Tree" - googlaðu það!) og Cedar Grove, sem er staðurinn til að vera ef þú vilt forðast fjölda ferðamanna. Eyddu nokkrum dögum hér í gönguferðir, útreiðartúra og auðvitað útilegur. Þetta er einfaldlega fullkominn staður fyrir útivistarfólk!
Færðu ekki nóg af náttúrunni? Við þekkjum tilfinninguna! Næsti viðkomustaður er Death Valley, sem er spennandi þjóðgarður með mikilli náttúru og mörgum svæðum sem vert er að skoða. En rétt er að benda á, að það getur verið HEIT hérna úti í eyðimörkinni, sérstaklega ef þú ert að ferðast á sumrin. Svo vertu viss um að birgja þig upp af vatni áður en þú ferð út! Þú getur valið að keyra bara í gegnum garðinn áleiðis í átt að Las Vegas, en ef þú vilt vera í eina eða tvær nætur þá eru margir flottir staðir!
Eftir að hafa eytt mörgum dögum úti í náttúrunni, munt þú keyra í átt að „Sin City“! Hér eru svo margir staðir að það er næstum yfirþyrmandi. Bara að keyra inn í Las Vegas og sjá öll neonljósin blikka í fjarska er ógleymanleg upplifun. Röltu meðfram "The Strip" og skoðaðu öll flott hótelin, sýningarnar, veitingastaðina og spilavítin!
Á leiðinni á næsta stopp mælum við með því að þú komir við Hoover Dam. Eða taktu þátt í dagsferð frá Las Vegas, allt undir þér komið!
Þú veist líklegast um þennan stað nú þegar. En Grand Canyon ætti örugglega að vera á óskalistanum þínum fyrir þessa vegferð. Það er alveg ótrúlegt og vel þekkt náttúruundur sem móðir jörð hefur veitt!
Palm Springs er frægur orlofsstaður, þekktur fyrir náttúrulega hveri og sólríkt veður. Staðsett við hliðina á Joshua Tree þjóðgarðinum, það er fullt af hlutum til að gera á svæðinu, ef þú ert í skapi fyrir fleiri ævintýri. Ef þú ert að pæla í einhverju aðeins rólegra geturðu rölt í miðbæinn og heimsótt verslanir og veitingastaði!
Ef þú ert ekki tilbúin/n að fljúga aftur heim núna, mælum við með því að þú keyrir niður til San Diego til að prófa góðann mexíkóskan mat og sjá heildarfegurð borgarinnar. San Diego er önnur stærsta borg Kaliforníu og býður upp á frábært aðdráttarafl, strendur, brimstaði og loftslag. Hin fullkomna leið til að enda Kaliforníuævintýrið þitt!
Við erum komin aftur þar sem allt byrjaði. Við höfum innifalið flug heim, en þú getur líka valið að ferðast til annarra staða í Bandaríkjunum ef þú vilt. Talaðu við okkur og við hjálpum þér að lengja ævintýrið þitt!
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.