Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
✈️Heim - Evrópa (þú velur landið) - Dubaí - Indónesía - Singapore - Indland - Kenía - Jóhannesarborg // Höfðaborg - Dubaí - Evrópa (þú velur landið) - Heim
// = ferðast landleiðis á eigin vegum eða í skipulagðri ferð.
Ath: Þetta er ekki ákveðin ferð með föstum brottfarardagsetningum heldur ferðatillaga. Það er undir þér komið hvort þú vilt fara í nákvæmlega þessa ferð, bæta henni við ferðina þína eða gera hreinlega eitthvað allt annað. Við getum hjálpað þér að sérsníða ferðina þína nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana.
Ferðin hefst í Dubaí sem er borg öfganna. Hér finnur þú mikið af ríku fólki, ótrúlegum byggingum og fullt af sandi. Farðu í ævintýralega ferð um eyðimörkina.
Kannaðu hinar fjölmörgu hliðar Indónesíu! Töfrandi útsýni, skemmtileg menningarblanda og þúsundir ókannaðra eyja sem bjóða uppá ólýsanlega fegurð. Óviðjafnanlegar strendur, ofsafengin eldfjöll, glæsilegir regnskógar og margt, margt fleira.
Hér er tilvalið að taka smá pásu og upplifa matarmenninguna í Singapore. Þar finnur þú allar tegundir af asískum mat og mundu að mest spennandi matarupplifunin er á veitingastöðunum þar sem heimamennirnir borða - því fleiri gestir, því betri matur!
Indland er landið sem þú annað hvort elskar eða hatar. Til þess að fá góð fyrstu kynni af Indlandi mælum við með komupakka og skipulagðri ferð. Upplifðu ævintrýalega menningarheima í þessu næst fjölbýlasta landi heims.
Í Kenía eru margir frábærir þjóðgarðar og vötn sem eru heimkynni ótrúlegt dýralífs. Það er einstök upplifun að fara þar í safarí. Þú átt ekki eftir að trúa því hversu mikið er um stór og tignarleg dýr í þessu magnaða landi. Upplifðu það að horfa á alla fílana, gíraffana, sebrahestana, buffalóana og ljónin í sínu náttúrulega umhverfi.
Suður-Afríka er stórt land með marga möguleika. Hér byrjar þú í Cape Town - prufaðu að kafa með hvíthákörlum það er ef þú þorir! Frá Cape Town getur þú farið í skipulagða ferð til Jóhannesarborgar eða fjárfest í hop on - hopp off rútupassa. Langar þig að kynnast menningunni betur? Bættu við nokkrum vikum og taktu þátt í sjálfboðastarfi - úrval sjálfboðaverkefna í Suður Afríku er mikið og fjölbreytt.
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.