{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Hinum megin á hnettinum


Flugleið | Hinum megin á hnettinum | KILROY
Sjá sem lista

Lengd

Þú ræður

Áfangastaðir

Dúbaí, Nýja-Sjáland, Ástralía, Tæland & Indónesía

Hápunktar

Surfið í Ástralíu, maturinn á Tælandi og menningin í Indónesíu

Verð frá

314790 ISK

Viltu vita meira?
Langar þig að fara "down under"? Þá er þessi flugleið fullkomin fyrir þig! Það er einnig tilvalið að sameina ferðina þína til Ástralíu og Nýja-Sjálands við ferð til Tælands, Balí og töfrandi Dubaí

Ferð þín hefst á Nýja-Sjálandi. Þar getur þú leigt húsbíl hjá Jucy og farið í road trip frá Auckland til Christchurch og upplifað algjört frelsi á Nýja-Sjálandi! Ef þú leigir húsbíl hjá Jucy þá getur þú stoppað hvar og hevnær sem er en allir húsbílarnir frá þeim innihalda allt það helsta sem þú þarft í road tripi. Vertu viss um að kíkja á húsbílana hér fyrir neðan!

Þú getur gert það sama þegar þú kemur til Sydney eða ferðast um á sveigjanlegum rútupassa áður en þú heldur áfram til Tælands. Þaðan getur þú ferðast sjálf/ur landleiðis til Balí og slakað á eftir þessa frábæru ferð áður en þú heldur heim aftur með stoppi í Dúbaí.

Að bæta við eða breyta áfangastað

Mundu að þessi flugleið er aðeins hugmynd! Ef þið langar að bæta við fleiri áfangastöðum eða jafnvel breyta þessum áfangastöðum þá er þér velkomið að hafa samband við okkur og við munum aðstoða þig að skipuleggja þína draumaferð. Við erum vanir ferðalangar og meira en til í að deila með þér okkar ráðum og reynslum svo endilega hafðu samband!

Innifalið
  • Flug
  • ISIC kort
  • Ferðaráðgjöf
Ekki innifalið
  • Gisting
  • Staðbundnar samgöngur
  • Skipulagðar ferðir
  • Ferðatrygging - en við getum aðstoðað þig við kaup á slíkri
alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

1. Ferðaáætlunin

✈️  Heim - Dúbaí – Auckland // Christchurch – Sydney – Bangkok // Balí – Dúbaí - Heim

// =  Ferðast á eigin vegum

Ath: Þetta er ekki ákveðin ferð með föstum brottfarardagsetningum heldur ferðatillaga. Það er undir þér komið hvort þú vilt fara í nákvæmlega þessa ferð, bæta henni við ferðina þína eða gera hreinlega eitthvað allt annað. Við getum hjálpað þér að sérsníða ferðina þína nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana.

2. Dúbaí

Dúbaí hefur allt á einum stað. Þú getur farið á skíði, heimsótt ströndina, sandsurfað og verslað. Bókaðu gistingu hér og eyddu nokkrum dögum og kvöldum í þessari nútímalegu borg í Mið-Austurlöndunum. Maturinn hér er líka dásamlegur og það sama má segja um veðrið. Þú munt elska Dúbaí!

3. Auckland, Nýja-Sjáland

Vertu viðbúin/n því þú ert að fara að upplifa og kanna stórbrotna náttúru. Náðu í Jucy húsbílinn þinn og haltu af stað á vit ævintýranna! Þú ert á Norðurey og það er eins gott að þú sért spent/ur. Hér getur þú til dæmis farið í skoðunarferð og séð hvar bíómyndirnar The Lord of the Rings og The Hobbit voru teknar upp!

4. Christchurch, Nýja-Sjáland

Þú ert komin/n til Christchurch! Borg sem er stútfull af lífi og sumir halda því meira að segja fram að hún sé ein skemmtilegasta borg heimsins. Hér getur þú til dæmis leigt hjól og skoðað borgina ásamt því að hjóla niður Port Hill. Þú getur meira að segja farið á skíði en ef þú þarft smá adrenalínkick þá er tilvalið að fara í teygjustökk. Christchurch er svo sannarlega frábær! Þegar þú hefur svo skoðað borgina og allt það sem hún hefur upp á að bjóða er kominn tími til að skila af þér Jucy húsbílnum og halda af stað til Sydney.

5. Sydney, Ástralía

Sydney! Vá! Þú verður að njóta útsýnisins við höfnina, fara á Bondi Beach og skoða óperuhúsið. Það er líka tilvalið að fara í surf camp sem við getum hjálpað þér að bóka, fara í fallhlífastökk eða leigja annan húsbíl og leggja af stað í annað ævintýri en þetta sinn um Ástralíu!

6. Bangkok, Tæland

Bangkok á Tælandi er iðandi af lífi og þú munt elska það! Bangkok er sannkallað himnaríki bakpokaferðlangsins ásamt því að vera rosalega ódýr. Það er því tilvalið að versla smá hér áður en þú heldur áfram ferð þinni og skoðar Tæland. Á Tælandi er að finna margar stórkostlegar eyjur sem tilvalið er að kanna með því að skrá sig á köfunarnámskeið. Hér getur þú einnig farið í sjálfboðastarf.

7. Balí, Indónesía

Ertu til í að fara í eina af bestu surfbúðunum á meðan þú dvelur á Balí? Þú getur það og við getum hjálpað þér! Þú getur líka farið í sjálfboðastarf og séð hvernig heimamenn lifa. Ef þig langar hins vegar að slappa af þá er tilvalið að gera það á Balí, skoða strendurnar og synda í kristaltærum sjónum.

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.