Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
Ferðaleiðin: Keflavík - Los Angeles - Dana Point - Los Angeles - Joshua Tree NP - Grand Canyon - Bryce Canyon NP - Zion NP - Las Vegas - Keflavík
Ath: Þú getur annað hvort sameinað þessa ferð við lengra bakpokaferðalag eða verið bara í þessa daga. Við getum hjálpað þér við að skipuleggja bæði.
Fyrsta stopp í ferðaáætluninni er Los Angeles. Vegna þess að þetta er langt flug og vegna þess að L.A. er flott borg til að skoða, mælum við með að þú dveljir hér í nokkra daga. Við getum bókað þig á virkilega flott hostel rétt við Venice Beach, sem er einn besti staðurinn til að vera á þegar þú ert í L.A. Skoðaðu strendlengjuna, nærliggjandi Abbot Kinney Boulevard sem er full af hippa kaffihúsum og sérkennilegum hönnunarverslunum og kíktu á útsýnið frá Griffith Park stjörnustöðinni. Þegar þú ert búin/n að kanna L.A. er kominn tími til að fara á surfbrettið!
Það tekur um eina klukkustund að keyra frá Los Angeles til Dana Point, svo þú kemst í surfbúðirnar á skömmum tíma. Hentu töskunni í herbergið þitt og gerðu þig tilbúin/n til að sigra öldurnar. Þú munt fá brimbrettakennslu á daginn frá sumum þeim bestu á þessu svæði og í lok vikunnar mun þér líða eins og fagmanni í faginu. Þegar sólin er að setjast og það er kominn tími til að slaka á, þá getur þú notið hins afslappaða andrúmslofts brimbrettabúðanna. Slakaðu á með hinum eftir langan og þreytandi dag í öldunum með kaldann drykk við hendina.
Þú hefur lært að surfa! Nú er kominn tími til að upplifa náttúruna. Taktu þátt í þessu 8 daga hópævintýri, sem tekur þig alla leið frá Los Angeles til Las Vegas. Á leiðinni muntu upplifa nokkra af þekktustu þjóðgörðum í Vestur-Bandaríkjunum. Fyrstur er Joshua Tree þjóðgarðurinn áður en farið er inn í þjóðgarðinn goðsagnakennda Grand Canyon. Eins og það sé ekki nóg, muntu líka fara framhjá bæði Bryce þjóðgarðinum og Zion þjóðgarðinum áður en þú endar í Las Vegas, sem er þekkt fyrir skemmtilegt næturlíf og þúsundir spilavíta. Tíminn í Las Vegas er á eigin spýtur, og hvernig þú vilt eyða honum er undir þér komið.
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.