{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
Reizigers in Cenote Azul Playa Del Carmen in Mexico
Sjá sem lista

Lengd

3-4 vikur

Áfangastaðir

Mexíkó, Belize, Gvatemala og Hondúras

Hápunktar

Köfunarnámskeið & ganga á eldfjall

Verð frá

550.000 ISK

Viltu vita meira?
Saga, strendur og sól - heilaga þrenningin! Þessi ferð er fullkomin fyrir þau sem vilja fara aðeins út fyrir þessa týbísku staði og kynna sér ótrúlega fegurð Mið-Ameríku í för með bakpokaferðalöngum alls staðar að úr heiminum.

 

Ferðin hefst í Playa del Carmen í Mexíkó þar sem er gaman að kíkja út á lífið, skoða cenotes og njóta strandarlífsins.

Þaðan er haldið til Belize þar sem er farið út í gullfallega eyju þar sem er hægt að taka hjólatúr, snorkla með skötum og sigla um í sólsetrinu.

Förinni er haldið áfram niður í gegnum Belize og Gvatemala þar sem þú færð að kynnast matarmenningu svæðisins og merkilegri sögu Maya fólksins. Einnig er hægt að prófa salsa danstíma, sigla á kanó, hellaskoðun, kaffitúr og margt fleira.

Ferðin klárast svo í Antigua í Gvatemala. Þá er komið að alvöru áskorun - að ganga Acatenango eldfjallið! Ótrúlegt útsýni og mögnuð upplifun fyrir þau sem vilja reyna aðeins á sig. Á leiðinni heim er gist eina nótt áður en snúið er aftur til Antigua.

Frá Gvatemala er hægt að fljúga til Hondúras á paradísareyjuna Utila. Þar er tilvalið að taka köfunarréttindi á meðan þú kynnist þessari einstöku eyju og lífríkinu neðansjávar. Utila er lítil eyja þar sem á daginn er hægt að upplifa rólegt, karabískt eyjalífið en á kvöldin lifnar eyjan við með líflegu næturlífi. Frábær leið til að enda þessa draumaferð!

Innifalið
  • Flug
  • 16 daga hópferð frá Mexíkó til Gvatemala
  • 2 daga gönguferð í Gvatemala
  • 6 daga köfunarnámskeið í Honduras
  • Bókunargjald
  • Ráðgjöf hjá ferðasérfræðingi
Ekki innifalið
  • Máltíðir aðrar en þær sem eru innifaldar í ferðunum
  • Ferðatrygging - en við getum aðstoðað þig við kaup á slíkri
  • Aðrar afþreyingar
alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Dagar 1-3: Mexíkó

Ferðin hefst í Playa del Carmen í Mexíkó, þar sem þú getur notið líflegs næturlífs, skoðað töfrandi cenotes og slakað á á hvítum sandströndum við tæran sjó Karíbahafsins. Þessi heillandi strandbær býður einnig upp á fjölbreytt úrval verslana, kaffihúsa og veitingastaða við Quinta Avenida (5. breiðstræti), sem er hjarta borgarinnar.

Auk þess er Playa del Carmen frábær upphafsstaður til að kanna nærliggjandi fornminjar, svo sem hin fornu Maya-rústir í Tulum og Chichén Itzá, sem gefa þér innsýn í ríka sögu og menningu svæðisins.

Hér hefur þú frjálsan tíma svo þitt er valið.

Dagar 3-8: Belize

Þú heldur frá Playa del Carmen í Mexíkó til Caye Caulker í Belize, þar sem þú getur snorklað með stingray og nurse sharks í Hol Chan Marine Reserve, tekið dýfu í sjónum eða einfaldlega slakað á í Belize-stíl.

Þú ferðast síðan með bát og rútu frá Caye Caulker til San Ignacio, þar sem þú getur tekið þátt í leirlistarsýningu og borðað hádegismat á kvenleirlistasmiðju.

Í San Ignacio hefur þú tækifæri til að kanna svæðið með göngum, kanó eða hestum, fara í hellaskoðun eða heimsækja Mountain Pine Ridge svæðið og baða þig í náttúrulegum laugum og ám.

Dagar 8-19: Gvatemala

Förinni er haldið áfram niður í gegnum Belize og Gvatemala þar sem þú færð að kynnast matarmenningu svæðisins og merkilegri sögu Maya fólksins. Einnig er hægt að prófa salsa danstíma, sigla á kanó, hellaskoðun, kaffitúr og margt fleira.

Þú heimsækir fornminjarnar í Tikal, sem eru meðal stærstu og mikilvægustu Maya-borganna í Mið-Ameríku. Þar færðu leiðsögn um þessa stórbrotnu rústir og lærir um sögu og menningu Maya-fólksins. Eftir heimsóknina til Tikal heldur þú áfram til Flores, sem er sjarmerandi eyja í Petén svæðinu, þar sem þú getur notið náttúrufegurðar og menningar Gvatemala.

Hópferðin klárast svo í Antigua í Gvatemala. Þá er komið að alvöru áskorun - að ganga Acatenango eldfjallið! Ótrúlegt útsýni og mögnuð upplifun fyrir þau sem vilja reyna aðeins á sig. Á leiðinni er gist eina nótt áður en snúið er aftur til Antigua.

Dagar 19-24: Hondúras

Frá Gvatemala er hægt að fljúga til Hondúras á paradísareyjuna Utila. Þar er tilvalið að taka köfunarréttindi á meðan þú kynnist þessari einstöku eyju og lífríkinu neðansjávar. Utila er lítil eyja þar sem á daginn er hægt að upplifa rólegt, karabískt eyjalífið en á kvöldin lifnar eyjan við með líflegu næturlífi. Frábær leið til að enda þessa draumaferð!

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.