Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
Þú byrjar á því að fljúga til Ríó og hittir þar hópinn sem þú eyðir næstu 6 dögum með.
Þú dvelur á Sambadrome Hostel, kynnist ferðafélögum og finnur þig strax sökkva í orku borgarinnar. Á fyrstu dögunum gefst þér tækifæri til að kanna Ríó, heimsækja söguleg svæði og njóta lókal afþreyinga sem sýna fjölbreytileika borgarinnar.
Þegar karnevalið nær hámarki færðu að sjá fjörið í Sambadrome. Þú verður vitni að kraftmiklum dansi, lifandi tónlist og orku sem fyllir loftið. Á kvöldin safnast hópurinn saman í hostelinu til að spjalla um upplifunina, njóta tónlistar og hefðbundinnar brasilískrar matargerðar.
Þessi ferð er hönnuð fyrir ungt fólk sem vill dýpka tengsl sín við menninguna og upplifa karnevalið í Ríó. Þegar þú ferð áfram munt þú bera með þér ógleymanlegar minningar, nýja vini og einstaka upplifun af Ríó sem mun örugglega vekja þrá til að snúa aftur.
Þú heldur í flug til Manus þaðan sem þú ferð í frábæra ferð um Amazon skóginn.
Á næstu dögum ferðast þú með hraðbátum og rútum til að komast að Juma Lake Camp House, þar sem þú dvelur í tvær nætur. Á þessum dögum tekur þú þátt í kanóferðum, piranha veiði, höfrungaskoðun og næturgistingu í regnskóginum. Þú lærir um lækningajurtir, lifnaðarhætti í regnskóginum og dýralíf. Þú heimsækir einnig heimili hjá lókalnum (caboclos) til að læra um lífsstíl þeirra og framleiðslu á maniok mjöli.
Ferðin heldur áfram með skoðunarferð til fallegra helli og fossa, þar sem þú getur smakkað lókal matargerð.
Eftir ævintýralega viku munt þú fljúga yfir til Sao Paulo. Þar munt þú gista í tvær nætur á hosteli. Þá getur þú slakað á og skoðað þig um borgina fyrir flugið heim.
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.