Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
Ferðaleiðin: Keflavík - Panama City - San Blas Islands - Boquete - Bocas del Toro - Turrialba - Keflavík
Þú flýgur til Panama borgar þar sem þú verður sótt/ur á flugvöllinn af samstarfsaðila okkar. Hittu restina af hópnum sem þú munt ferðast með næstu 4 vikurnar þar sem þú munt upplifa nokkra af fallegustu stöðum Mið-Ameríku.
Ef þú vilt sérsníða ævintýrið þitt þannig að þú fáir meiri tíma annað hvort fyrir eða eftir ferðina, láttu okkur þá vita og við hjálpum þér!
Þú byrjar á spænskunámskeiðum þínum í Panamaborg. Eftir námskeiðið muntu sjá sögulega staði Panama og njóta rooftop bara og veitingastaða á staðnum. Þú munt líka fá að heimsækja Miraflores gestamiðstöðina til að fræðast um hinn fræga Panamaskurð og sjá risastóru skipin fara í gegnum lásana. Auðvitað þarftu að prófa að fara í danstíma með danskennara á staðnum. Þú verður líka undrandi af Kuna frumbyggjum og suðrænni fegurð San Blas eyjanna. Einnig er innifalin ferð til annarrar eyju þar sem hægt er að snorkla meðfram sokknu skipi! Þetta er ekki formlegt kennslunámskeið en kennarinn mun taka þátt í ferðinni og veita upplýsingar á spænsku eins mikið og hægt er og ef hópurinn vill skipuleggja leiki eða kennslustundir er það velkomið.
Í viku tvö munt þú ferðast frá Panama borg til Boquete með rútu. Um kvöldið færðu kynningu á Boquete skólanum, umhverfi og sögu svæðisins. Ferskt loftslag í Boquete er frábært til að læra í, hér er hægt að ná miklum framförum. Möguleikarnir eru að vera í skólanum eða fara og búa í viku hjá fjölskyldu á staðnum. Zip-line, gönguferðir, fossar, hverir, kaffiferð, eldfjallið Barú eru áhugaverðir staðir/hlutir sem vert er að skoða.
Í næstu viku munt þú ferðast með rútu og bát frá hálendisbænum Boquete til Karabísku eyjunnar Bocas del Toro. Hér færðu að upplifa karabíska lífstílinn! Í vikunni er mjög vinsælt að skoða margar strendur og aðra staði í kringum eyjarnar á kajökum, reiðhjólum eða vatnaleigubílum. Köfunarskólinn, nokkrum skrefum frá spænskuskólanum, býður upp á öll PADI námskeið og hægt er að sameina þau við spænskukennsluna.
Lokastoppið er Kosta Ríka! Í Turrialba, Kosta Ríka, er hægt að æfa alla þá spænsku sem þú hefur lært hingað til. Á síðasta kennsludegi færðu möguleika á að fara í stigapróf (þrep A1 til C2). Á lokagrillinu fá allir þátttakendur afhent skírteini, þeim verður fagnað og saman undirbúið þið ykkur fyrir síðustu stórbrotnu skoðunarferðina: flúðasiglinguna á Pacuare. Þessi skoðunarferð býður upp á spennandi ferð niður ána fulla af töfrandi náttúrufegurð. Tjaldsvæðið, staðsett í hjarta frumskógarins, gefur ykkur tækifæri til að fræðast um regnskóginn og tíma til að slaka á í hengirúmi.
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.