Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
Þú byrjar ferðina á 7 daga hópaferð um Kerala í Indlandi. Kerala er staðsett á suðvesturströnd Indlands og er þekkt fyrir sína náttúru fegurð og fjölbreyttu menningu.
Ferðin hefst í Kochi, hafnarborg sem blandar saman sögulegum áhrifum og nútímastemningu. Þar geturðu gengið um Fort Kochi hverfið, skoðað fornar kirkjur, litríka markaði og notið ljúffengra sjávarrétta.
Frá Kochi liggur leiðin til Alleppey, þekkt fyrir einstakt net síkja og vatnaleiða. Þú færð að upplifa lífið þar með því að dvelja hjá heimamönnum, smakka lókal matargerð og kynnast hefðum svæðisins. Sigling um vötnin gefur einstaka sýn á daglegt líf og náttúrufegurð Kerala.
Ferðin heldur áfram til Kollam, þar sem þú getur slakað á á ströndinni, skoðað gamla vitann eða tekið þátt í lókal viðburðum. Í Varkala færðu frítíma til að njóta strandarinnar, prófa jóga eða heimsækja söguleg hof.
Ferðin endar aftur í Kochi með gönguferð um borgina og tækifæri til að sjá hefðbundna Kathakali danssýningu.
Þú flýgur síðan frá Kochi yfir til Sri Lanka þar sem þú ferð í 7 daga ferð til Ahangama.
Sjö daga ævintýraferð um Sri Lanka sem sameinar náttúruskoðun, menningu og afslöppun.
Ferðin hefst í Ahangama með heimsókn í Udawalawe þjóðgarðinn, þar sem þú færð tækifæri til að sjá villta fíla, buffala, krókódíla og fjölbreytt fuglalíf. Eftir safaríið heldur ferðin til fjallabæjarins Ella, þar sem þú getur notið stórbrotins útsýnis frá Little Adam's Peak, skoðað fallegu Ravana-fossana og heimsótt sögufræga Níu boga brúna.
Frá Ella tekur þú fallega lestarferð til Nanu Oya og heimsækir teverksmiðju á leiðinni til Kandy, menningarhöfuðborgar Sri Lanka. Í Kandy geturðu skoðað Tannhofið, sem geymir helga tönn Búdda, og notið hefðbundinnar danssýningar.
Ferðin heldur áfram til Sigiriya, þar sem þú klifrar upp Ljónafellið og nýtur útsýnis yfir nærliggjandi svæði. Þú færð einnig tækifæri til að fara í safarí í Minneriya þjóðgarðinum, sem er þekktur fyrir stórar fílahjarðir.
Ferðin endar með heimsókn til Dambulla hellahofsins, þar sem þú getur dást að fornum veggmyndum og styttum. Þessi ferð er fullkomin blanda af ævintýrum, menningu og náttúrufegurð, hönnuð fyrir þá sem vilja upplifa það besta sem Sri Lanka hefur upp á að bjóða.
Þú dvelur viku í surfbúðum í Ahangama, þar sem þú sameinar surfkennslu, afslöppun og skemmtun. Ferðin hentar bæði byrjendum og lengra komnum með daglegum surftímum undir leiðsögn reyndra kennara sem hjálpa þér að bæta tæknina.
Þegar þú ert ekki í öldunum geturðu slakað á við sundlaugina eða tekið þátt í viðburðum eins og tónlistargetraunum og strandhreinsunum. Tvisvar í viku er farið út að borða þar sem þú færð að smakka ekta Sri Lanka matargerð.
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.