Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
Heim - Delí – Jaipur – Agra - Chitwan þjóðgarðurinn – Pokhara – Kathmandu – Mt Everest – Heim
Ath: Þú getur annað hvort sameinað þessa ferð við lengra bakpokaferðalag eða verið bara í þessa daga. Við getum hjálpað þér við að skipuleggja bæði.
Fyrsta stopp ferðarinnar er Delí, höfuðborg Indlands. Þó að það líti út fyrir að hér ríki algjör ringulreið sem er oft yfirþyrmandi fyrir utanaðkomandi, þá er þetta rosalega skemmtileg borg til að heimsækja. Eftir því hversu marga daga þú munt hafa í Delí, mælum við með að reyna sjá Indian Gate, Lotus hofið eða einfaldlega ráfa um götur Chandni Nok hverfisins. Karol Bagh markaðurinn er staður sem þú verður að heimsækja, þú getur fundið bókstaflega allt hér, svo ef þú hefur gleymt að pakka einhverju þá getur þú fundið það hér. Ekki gleyma að smakka eitthvað af götumatnum sem þú munt rekast á, þar sem indverskir réttir eru einfaldlega BESTIR. Okkar tillaga: masala dosa!
Þú ert að fara að vinna inn myndavélina þína í Jaipur. Þetta er einn fallegasti staður Indlands, með mögnuðum hofum, moskum, litlum húsasundum og útsýnisstöðum. Sem betur fer hefurðu nokkra daga til að skoða þig um. Palace of the Winds er svolítið túristaleg en samt þess virði að heimsækja þar sem hún er svo falleg á sinn hátt. Leiðsögn um Amber Fort er einnig á dagskrá. Endaðu daginn á einum markaði, eða verðu honum á bar í miðbænum til að kynnast nýju vinum þínum betur.
Það er ekki á hverjum degi sem þú færð að heimsækja eitt af 7 undrum veraldar! Í Agra finnur þú Taj Mahal. Þessi risastóra hvíta marmara moska, sem oft er talin hápunktur múslimskrar byggingarlistar, mun heilla þig. Eftir ítarlega skoðunarferð um svæðið munt þú heimsækja nokkra minnisvarða í nágrenninu og læra um sögu og menningu tengda þeim. Eftir þetta er komin tími til að slaka á í næturlestinni á leiðinni á næsta áfangastað!
Þegar þú hugsar um Nepal færðu líklega myndir af snæviþökktum fjallstoppum og fornum klaustrum upp í hugan. Og já, það kemur allt saman seinna í ferðinni. En fyrst langar okkur að sýna þér allt aðra hlið á Nepal, með grassléttum og þykkum skógum sem minna þig á Suðaustur-Asíu. Í Chitwan er hægt að fara í safarí til að skoða þjóðgarðinn og dýrin sem búa þar, þar á meðal gætir þú séð nashyrninga og tígrisdýr. Þessar tvær nætur sem þú dvelur á svæðinu muntu sofa heima hjá innfæddum. Það er hið fullkomna tækifæri til að fá innsýn í sanna nepalska menningu og matargerð.
Pokhara er frægur vegna Annapurna fjallgarðsins. Ekki jafn stórbrotinn og Mount Everest, en samt glæsilegir snævi þaktir tindar og vötn sem ættu eiginlega bara að vera til í ævintýrum. Í Pokhara munt þú taka þátt í matreiðslunámskeiði til að læra hvernig á að búa til momo, tegund af nepölskum dumplings. Og já, auðvitað færðu að smakka. Næturlífið á sér stað á börum við vatnið, þar sem gestir og heimamenn skemmta sér í fallegu umhverfi.
Í höfuðborg Nepal er nóg að sjá og gera. Þetta er einn af þessum stöðum þar sem þú getur bara ráfað um og séð hvert það tekur þig. Vertu viss um að smakka nóg af nepalskri matargerð, ef við eigum að lýsa henni líkist hún mest indverskum mat. Við mælum með að prófa Dal Bat, sem er réttur byggður á gufusoðnum hrísgrjónum og soðnum linsum. Einfalt en svo gott. Vertu einnig viss um að hvíla þig næstu daga, því næst ferðu að hinum glæsilegu Himalayafjöllum sem vofa yfir Kathmandu.
Þá er komið að því! Mount Everest er hæsta fjall á jörðinni og þú ætlar að klífa það. Eða... allavega að hluta til, þar sem ferð þín endar í Everest grunnbúðunum. Á leiðinni þangað ferð þú í gegnum Sherpa-hálendið og rekst á búddaklaustur og hinn ótrúlega Khumbu-jökul. Á leiðinni færðu tækifæri til að klifra upp Kala Pathar, 5445 metra háan tind. Tindurinn er ótrúlegur útsýnisstaður yfir suðvesturhlið Mount Everest og restina af Himalayafjöllum.
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.