Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
Fjögurra daga ferð sem býður upp á tækifæri til að kanna helstu kennileiti Peking án þess að þurfa vegabréfsáritun. Ferðin hefst með komu til Peking, þar sem ekið er til P.Loft Youth Hostel til að hvíla sig eftir ferðalagið.
Á öðrum degi leiðir enskumælandi leiðsögumaður þig um borgina með almenningssamgöngum. Þú heimsækir Torg hins himneska friðar, Forboðnu borgina og Himnahofið, þar sem þú færð innsýn í sögu og menningu Kína.
Þriðji dagurinn er frjáls til að kanna borgina á eigin vegum, hvort sem þú vilt skoða fleiri söfn, versla eða njóta matargerðarinnar.
Á fjórða og síðasta degi tekur þú þátt í gönguferð um sögulegu hutong-hverfin, þar sem þú smakkar hefðbundinn morgunverð og upplifir daglegt líf heimamanna.
Þú gistir eina auka nótt á hostelinu áður en þú heldur í næstu skipulögðu ferð.
Tveggja daga ferð sem býður upp á einstaka upplifun af Kínamúrnum og menningu nærliggjandi þorpa. Ferðin hefst í Peking, þar sem þú ferð með leiðsögumanni með almenningsrútu til Mutianyu, einnar af fallegustu og best varðveittu hlutum Kínamúrsins. Eftir að hafa kannað þennan sögulega stað, heldur þú niður í þorpið þar sem þú gistir hjá lókal fjölskyldu og nýtur hefðbundins kvöldverðar.
Næsta morgun hefur þú frjálsan tíma til að njóta morgunstundarinnar áður en þú snýrð aftur til Peking með einaksamgöngum. Þessi ferð sameinar ævintýri, sögu og menningartengda upplifun á einstakan hátt.
Þú gistir eina nótt í viðbót í Peking áður en ferðin heldur áfram.
Næst flýgur þú til Changdu og ferð svo þaðan í 10 daga hópferð til Hong Kong.
10 daga ævintýraferð sem sameinar náttúruundur og líflegar borgir Kína. Ferðin hefst í Chengdu, þar sem þú getur valið að heimsækja ræktunarstöð risapanda eða kanna borgina á eigin vegum. Þaðan heldur hópurinn með hraðlest til Chongqing, þar sem þú skoðar sögulega Ciqikou gamla bæinn og nýtur útsýnis yfir Hongyadong á kvöldin.
Næst er farið til Zhangjiajie, heimkynni stórbrotinna náttúruundra sem var einnig innblásturinn fyrir Pandoru í Avatar. Þar gengur þú um Zhangjiajie þjóðskógargarðinn, þar sem Tianzi-fjallið og "Pillar of the Southern Sky" bjóða upp á ógleymanlegt útsýni. Þú hefur einnig frjálsan dag til að kanna fleiri hluta garðsins eða heimsækja Tianmen Shan þjóðgarðinn.
Ferðin heldur áfram til Yangshuo, þar sem þú tekur þátt í leiðsögn um borgina og sveitina á hjóli. Þú hjólar meðfram ám, í gegnum þorp og nálægt hrífandi karst-fjöllum. Eftir hádegisverð með hópnum hefur þú frjálsan tíma til að kanna Yangshuo á eigin vegum. Þú getur valið að heimsækja Xianggongshan og teplantekru eða farið á Impressions Liu Sanjie ljósasýninguna.
Þessi ferð býður upp á einstaka blöndu af náttúru, menningu og borgarlífi í Kína, fullkomin fyrir þá sem vilja upplifa fjölbreytileika landsins á stuttum tíma.
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.