Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
Ferðaleiðin: Seoul - Jeonju - Gyeongju - Busan - Jeju eiland - thuis
Ath: Þú getur annað hvort sameinað þessa ferð við lengra bakpokaferðalag eða verið bara í þessa daga. Við getum hjálpað þér við að skipuleggja bæði.
Velkomin/n/ð til Seoul, líflegu höfuðborgar Suður-Kóreu. Þetta er fullkominn staður til að kynnast kóreskri menningu og hefja ævintýrið. Næstu daga gistir þú í Myeongdong hverfinu, svæði fullt af neonljósum, verslunum og götumat. Um kvöldið hittir þú hópinn sem þú munt ferðast með næstu daga og nýtur með þeim fyrstu kóresku máltíðarinnar.
Í dag snýst allt um K-pop. Eftir morgunmat heldur þú í líflega Hapjeong hverfið þar sem þú tekur K-pop danskennslu með hópnum. Á einni morgunstund lærir þú heila K pop dansrútínu.
Eftir verðskuldaðan hádegismat heimsækir þú HiKR þar sem þú getur lært enn meira um K pop senuna og jafnvel tekið upp þitt eigið tónlistarmyndband. Að heimsókn lokinni hefurðu restina af deginum til að kanna borgina á eigin vegum.
Ábending: Nýttu frítímann til að heimsækja Hongdae hverfið. Þar er háskóli og stemningin því sérstaklega lífleg og skemmtileg.
Á þriðja degi yfirgefur þú Seoul í dagsferð að DMZ, hinu afvopnaða svæði milli Suður- og Norður-Kóreu. Þar fræðist þú um sögu landanna tveggja, núverandi stöðu og mikilvægi þess að viðhalda friði. Þú heimsækir einnig göng sem Norður-Kórea gróf með það að markmiði að komast inn í Suður-Kóreu. Virkilega áhrifamikill dagur.
Seinni partinn snýrðu aftur til Seoul og hefur þá enn nægan tíma til að kanna næturlíf þessarar stórborgar.
Í dag ferð þú aftur í tímann og kynnist sögu Joseon tímabilsins. Þú byrjar daginn við Gyeongbokgung höllina sem er ein af fimm höllum sem lifðu af frá Joseon ættinni og hefur sérstaka þýðingu fyrir Suður-Kóreumenn. Þeir sem vilja geta klætt sig í hefðbundinn hanbok búning fyrir heimsóknina. Trúðu okkur þegar við segjum að nánast allir klæða sig upp þannig að þú skerð þig frekar úr ef þú ert í nútímafatnaði. Við höllina fylgist þú fyrst með vörðuskiptunum og færð svo tíma til að skoða svæðið á eigin vegum.
Eftir heimsóknina að höllinni heldur þú áfram í Bukchon Hanok Village, hefðbundið kóreskt hverfi fullt af fallegum timburhúsum.
Snemma um kvöldið ferðu með leiðsögumanninum á Gwangjang markaðinn sem er þekktur fyrir besta götumatinn í borginni. Þú færð að smakka alls konar rétti, allt frá gimbap til sætra kleinuhringja. Eitt er víst að eftir þetta þarftu ekki kvöldmat.
Það er kominn tími til að skipta út ys og þys Seoul fyrir kyrrð búddistahofs. Hofið liggur í fjöllunum með útsýni yfir borgina og strax við komu finnurðu ró færast yfir þig. Þú sefur á hefðbundnum mottum á upphituðu gólfi og færð hofbúning sem þú getur klæðst næsta dag.
Á meðan á temple stay dvölinni stendur eru máltíðir innifaldar. Þær eru útbúnar samkvæmt hefðbundnum búddískum sið og eru því grænmetisréttir sem eru borðaðir í þögn.
Þú færð einnig tækifæri til að taka þátt í daglegu lífi hofsins, til dæmis hugleiðslu með klukkuskálum, að hringja kvöldklukkunum og taka þátt í bænasöng með munkunum.
Eftir að þú byrjar daginn á hugleiðslu og hollum morgunverði í hofinu heldurðu áfram til næsta áfangastaðar, Jeonju. Borgin er þekkt fyrir hefðbundin hús, notalega stemningu og frábæran mat. Þessa nótt gistir þú í hefðbundnu hanok húsi.
Eftir hádegi hefurðu tíma til að kanna borgina á eigin vegum. Um kvöldið hittist hópurinn aftur og fer í makgoli smökkun, hefðbundið kóreskt hrísgrjónavín. Eftir smökkunina mælum við sérstaklega með að þú prófir bibimbap sem er ein af sérgreinum Jeonju.
Eftir að þú kveður Jeonju heldurðu með rútu til Gyeongju sem er um fjögurra tíma akstur. Borgin er oft kölluð safn án veggja vegna fjölda UNESCO heimsminjastaða, fornra hofa og grafhýsa. Við komu gerirðu þig strax klára að kanna þessa fallegu borg á hjóli sem er skemmtileg leið til að sjá sem mest á stuttum tíma.
Þegar sólin sest heldurðu að Donggung höllinni. Þar sérðu á kvöldin speglun ljósa og bygginga í Anapji tjörninni. Algjörlega myndavélavænt augnablik.
Í dag bíður þín enn einn viðburðaríkur dagur í fallegu Gyeongju. Eftir morgunmat heldurðu til einnar mikilvægustu hofbyggingar landsins, Bulguksa hofið. Það stendur á einstökum stað umvafið náttúru. Þar er ótrúlega margt að sjá og auðvelt að eyða klukkustundum í að rölta um svæðið.
En það er ekki allur tíminn í boði því eftir hádegi tekur við annar hápunktur ferðarinnar, taekwondo tími. Í kennslunni lærir þú listina að háum spörkum og eldsnöggum höggum. Taekwondo meistari kennir þér helstu tæknibrögðin og hver veit nema þú endir á að sparka tréplanka í sundur í lok tímans.
Það er komið að síðasta stoppinu á meginlandi Kóreu, Busan. Um morguninn tekurðu hraðlestina til þessarar stóru strandborgar. Fyrsta stoppið er Jagalchi markaðurinn þar sem þú getur enn og aftur smakkað alls kyns ljúffengan götumat sem Suður-Kórea hefur upp á að bjóða. Eftir að hafa líklega borðað aðeins of mikið þarftu samt að halda áfram 😉
Næst liggur leiðin í Songdo kláfinn þaðan sem þú færð stórkostlegt útsýni yfir borgina og hafið.
Seinni parturinn er frjáls svo þú getur skipulagt daginn eins og þú vilt. Ef veðrið er gott er tilvalið að kíkja á ströndina.
Til að enda daginn með stæl fer allur hópurinn saman á karaókíbar og syngur af hjartans líf og sál.
Tími fyrir kóreskt eyjalíf. Jeju eyja er einnig kölluð eyja guðanna og er þekkt fyrir stórbrotna náttúru. Með stuttu morgunflugi ertu fljótlega komin/n/ð á áfangastað. Eftir hádegi og um kvöldið hefurðu frjálsan tíma til að kanna svæðið á eigin vegum.
Þú þarft góðan morgunverð í dag því framundan er viðburðaríkur dagur. Fyrsta stopp er Seongsan Ilchulbong tindurinn, gamalt eldfjall með stórkostlegu útsýni yfir eyjuna.
Því næst heimsækirðu Yakcheonsa hofið sem er innblásið af búddískri byggingarlist frá upphafi Joseon tímabilsins. Hofið stendur nálægt uppsprettu sem er sögð hafa lækningamátt og því er þetta fullkominn staður til að slaka aðeins á mitt í annasömum degi.
Þegar þú ert orðin/n/ð vel afslöppuð/ur/að heldurðu áfram að Daepo Jusangjeolli klettunum þar sem þú getur dáðst að sérstökum eldfjallamynduðum bergmyndunum í návígi. Um kvöldið safnast hópurinn saman á staðnum The Cliff til að horfa á sólsetrið, njóta drykkjar og útsýnisins yfir hafið.
Í dag ferðu í ævintýralega göngu eftir hinni frægu Olle leið. Á leiðinni nýturðu útsýnis yfir hafið, fallegra þorpa, stórbrotinna klettamyndana og heimsækir einn þekktasta foss Jeju eyju, Jeongbang fossinn. Þessi 23 metra hái foss er án efa einn fallegasti staður eyjunnar.
Eftir gönguna hefurðu restina af deginum frjálsa. Um kvöldið er kveðjukvöldverður þar sem þú kveður Jeju og Suður-Kóreu.
Njóttu síðasta morgunverðarins áður en ferðinni lýkur, eða jafnvel heldurðu áfram á næsta áfangastað. Við vonum að minningarnar sem þú hefur skapað, staðirnir sem þú hefur skoðað og vináttuböndin sem þú hefur eignast á leiðinni muni fylgja þér að eilífu!
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.