{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
Surf And Stay Canggu
Sjá sem lista

Lengd

15 dagar

Áfangastaðir

Gili Trawangan, Rinjani, Senggigi, Nusa Lembongan

Hápunktar

Surfbúðir & nætur fjallganga upp á eldfjall

Verð frá

532.000 ISK

Viltu vita meira?
Rólegheit á ströndinni, eldfjallaganga, kristaltær sjór og surf. Hljómar þetta eins og eitthvað fyrir þig? Skelltu þér þá í þessi 15 daga ferð til Indónesíu.

 

Ævintýrið hefst á 8 daga hópferð til töfrandi Gili Trawangan. Þar geturðu notið afslöppunar á hvítum ströndum, snorklað í kristaltæru vatni og upplifað líflega stemningu eyjunnar.

Frá Gili heldur ferðin áfram til Lombok, þar sem spennandi gönguævintýri bíður. Þú munt ferðast um stórbrotna náttúru, upplifa fjölbreytt dýralíf og sjá fegurð eyjunnar í allri sinni dýrð.

Lokakaflinn fer fram á paradísareyjunni Nusa Lembongan, sem er þekkt fyrir glæsilegar strendur og ótrúlegt neðansjávarlíf. Þar tekur við 7 daga surfcamp þar sem þú getur lært að surfa eða bætt færnina þína undir leiðsögn reyndra kennara.

Í surfbúðunum hittirðu fólk alls staðar að úr heiminum, eignast nýja vini og safnar ógleymanlegum minningum. Þetta er ferð sem sameinar ævintýri, afslöppun og tækifæri til að prófa eitthvað nýtt!

Innifalið
  • Flug til Denpasar
  • 8 daga eyjahopp ferð
  • 7 daga surfcamp
  • Nætur fjallganga upp á eldfjall
  • Ferja til Balí
  • Ráðgjöf hjá ferðasérfræðingi
Ekki innifalið
  • Ferðatrygging - en við getum aðstoðað þig við kaup á slíkri
  • Ferja á milli eyja
  • Aðrar afþreyingar
alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

1. Gili Trawangan ferð: 8 dagar

Þú tekur flugið til Denpasar þaðan sem þú tekur ferjuna yfir til Gili þar sem ævintýrið hefst fyrir alvöru.

Þessi 8 daga ferð byrjar eins og fyrr segir á Gili Trawangan, lítilli paradísareyju þar sem hvítar sandstrendur og tær sjór veita þér fullkomna afslöppun. Á eyjunni færðu tækifæri til að snorkla um litrík kóralrif, synda í kristaltæru vatni og skapa minningar með ferðafélögum.

Næst ferðu til Lombok, þar sem þín bíður spennandi gönguævintýri upp Rinjani eldfjallið. Þú munt leggja af stað í göngu sem krefst líkamlegrar áskorunar en umbunar þér með stórkostlegum útsýnum yfir ósnortna náttúru og landslag.

Frá Lombok heldur ferðin áfram til Senggigi, fallegs strandbæjar sem býr yfir rólegum ströndum, menningu og nýstárlegum mat. Þar getur þú endurnært þig og slakað á eftir líflegu gönguævintýri.

Að lokum ferðast þú til Lembongan, þar sem fegurð eyjunnar, sandstrendur og lifandi neðansjávarlíf mun heilla þig. Á Lembongan getur þú notið afslappaðra stunda við sjóinn og prófað að surfa.

4. Surf camp á Nusa Lembongan: 7 dagar

Á Nusa Lembongan tekur við 7 daga surfcamp. Þar geturðu lært að surfa, hvort sem þú ert byrjandi eða vilt bæta þig. Í surfcampinu kynnist þú nýju fólki allstaðar að úr heiminum, lærir nýtt sport og býrð til endalaust af góðum minningum!

5. Flug frá Denpasar til Keflavíkur

Þú flýgur heim frá Denpasar eftir æðislegt ferðalag.

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.