Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
Þú byrjar á því að fljúga til Dúbaí þar sem þú munt hafa tíma til að skoða til dæmis Dubai mall, Burj Khalifa eða skreppa á ströndina jafnvel. Þú munt gista á hóteli í Dúbaí. Daginn eftir ferðu að rúnta um eyðimerkur Dúbaí sem endar á BBQ veislu ásamt skemmtilegum atriðum í litlu þorpi.
Næst er ferðinni haldið til Balí! Þar gistir þú eina nótt á hosteli eftir ferðalagið. Daginn eftir ferðu svo í jóga- og surfbúðir þar sem þú munt dvelja í viku.
Balí surf og jóga í Canggu er sjö daga ævintýri þar sem þú lærir að surfa, styrkir líkama og huga og nýtur lífsins í frábærum félagsskap.
Ferðin byrjar á léttum nótum þar sem þú kynnist nýjum félögum. Á hverjum degi eru surftímar með reyndum kennurum sem hjálpa þér að ná tökum á öldunum – hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn. Veldu jógapakkann og fáðu daglega jógatíma til að endurhlaða batteríin.
Kvöldin eru full af lífi með skemmtilegum viðburðum eins og kvikmyndakvöldi og strandhreinsun við sólsetur. Fyrir ævintýragjarna eru í boði dagsferðir, eins og gönguferð á eldfjall eða snorkl í tærum sjó.
Næst er það Bali Beaches & Boat rides hópaferðin. Þetta átta daga ævintýri á Balí blandar saman epískum upplifunum, slökun á paradísarströndum og menningarsjokki (á góðan hátt 😉).
Ferðin byrjar í Kuta, þar sem þú getur legið í sólbaði, prófað að surfa eða bara chilla á ströndinni. Svo liggur leiðin til Kubutambahan, þar sem þú færð að upplifa „local life“, læra að elda balískan mat (já, þú verður masterchef) og synda í náttúrulegum hverum.
Næsta stopp er Ubud, hjarta Balí, þar sem andleg orka og listir ráða ríkjum. Þú getur ráfað um markaði, heimsótt fossinn Gitgit eða bara fengið self-care í heilsulind.
Ferðin klárast á paradísareyjunni Gili Trawangan. Hér eru engir bílar – bara hjól, hvítar strendur og kristaltær sjór. Snorklaðu með skjaldbökum, hjólaðu um eyjuna eða njóttu síðasta sólsetursins með nýjum vinum.
Á Gili ferðu á köfunarnámskeið. Í hlýjum og tærum sjónum, í kringum einstakt sjávarlíf með yfir 3.000 tegundum, munt þú læra grunnatriði köfunar. Eftir námskeiðið ertu komin með alþjóðlega SSI Open Water vottun sem þú getur nýtt í framtíðinni.
Á leiðinni heim kemur þú við í Singapore. Þar munt þú gista á hosteli. Singapore er skemmtileg borg sem sameinar nútímalegann arkitektúr, fallega garða og einstaka matargerð. Njóttu Gardens by the Bay, heimsæktu Marina Bay Sands og upplifðu líflegt næturlíf. Svo er líka hægt að fara að versla áður en ferðinni er haldið áfram!
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.