Ég hef mikin áhuga á ferðalögum og að skapa ógleymanlegar upplifanir. Að skipuleggja ferðir, hvort sem það er fyrir mig og fjölskylduna mína eða fyrir aðra – er eitthvað sem ég elska að gera. Það besta sem ég geri er að upplifa eitthvað nýtt, skoða nýjar slóðir, kynnast nýrri menningu, fara í fallegar gönguferðir, hitta nýtt fólk og smakka fjölbreyttan mat.
Ég finn alltaf hvað ég læri mikið á að ferðast.. Þau láta mann sjá hlutina í nýju ljósi, bæta í reynslubankann og skapa fullt af minningum. Að eiga bókaða ferð framundan er líka ákveðin gleði svona gulrót sem heldur manni gangandi.
Fyrsta stóra ferðin mín var til Filippseyjar og eftir hana vissi ég að ég vildi ferðast meira.
Ég hef heimsótt þessa klassískar borgir eins og London, París, New York, Edinborg og fl. en hef líka verið dugleg að velja aðeins óhefðbundnari áfangastaði eins og Salou, Salta og Detroit.
Seinasta langa ferðalagið mitt var til Argentínu árið 2025 þar sem ég heimsótti Buenos Aires og Salta. Sú ferð gaf mér enn meira sjálfstraust til að fara lengra og skoða heiminn.
Næstu áfangastaðir á listanum hjá mér eru að skoða meira af Suður-Amerík og Ítalíu, Japan, Tæland. Listinn er auðvitað lengri – en maður byrjar alltaf einhvers staðar.
Ef þig langar í vinaferð til Riga, námsferð til Berlín, árshátíðarferð til Prag, tónleikaferð til Írland, kennaraferð til Japan eða á einhvern annan stað sem þig hefur alltaf dreymt um að heimsækja þá er ég til staðar til að hjálpa.
Ef þú hefur áhuga á að upplifa eitthvað nýtt og skoða heiminn, þá mæli ég 100% með því. Þú munt ekki sjá eftir því! Sendu mér línu og við finnum út úr þessu saman.