{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
Strönd á Ericeira
Sjá sem lista

Lengd

11 dagar

Áfangastaðir

Lissabon, Ericeira

Hápunktar

Sól, surf, Lissabon og næturlífið

Verðlag

Mjög gott

Viltu vita meira?
Langar ykkur að fara í einstaka útskriftarferð til Portúgal? Skoðið þá þessa hugmynd okkar að hinni fullkomnu útskriftarferð sem samanstendur af sól, strönd og fallegu umhverfi.

Útskrift er fullkomið tilefni til þess að fagna, svo hvers vegna ekki að fara í ferðalag með samnemendum þínum og vinum? Við höfum sett saman tryllta 11 daga ferð í Portúgal sem einkennist af sól, strönd, næturlífi og heilum helling í viðbót.

Portúgal

Ferðin hefst í Lissabon þar sem hópurinn er sóttur á flugvöllinn og skutlað á fyrsta gististaðinn. 3-4 * hótel með morgunmat inniföldum. Hér hafið þið 4 daga (gisting í 3 nætur) þar sem þið getið skoðað allt það besta sem borgin hefur upp á að bjóða.

Eftir að útskriftarhópurinn hefur skoðað borgina er kominn tími til að halda á næsta áfangastað við sjóinn. Hér getið þið valið um að gista á Ericeira, Peniche eða Cascai. Allir þessir áfangastaðir eru í aðeins 40 mínútna fjarlægð frá Lissabon og einkennast allir af góðum ströndum og skemmtilegu næturlífi.

Það mun hópurinn einnig gista á 3-4 * hóteli með morgunverði en nú í í viku. Farðu að surfa, slappaðu af á ströndinni eða kíktu út á lífið. Það sem hópurinn vill gera við tíma sinn er algjörlega undir ykkur komið. Ef þið viljið getum við þó skipulagt fyrir hópinn skemmtilegar afþreyingar eins og dagsferð til Sintra, vínsmökkun, surfkennslu, leiðsögn um Lissabon og margt fleira, látið okkur bara vita!

ATH. Við getum sett saman nákvæmlega þessa ferð fyrir útskriftarhópinn eða við getum sest niður með ykkur og sérsniðið útskriftarferð eftir markmiðum hópsins. Komið og fáið fría ráðgjöf hjá okkur.

Innifalið
  • Flug
  • Far til og frá flugvellinum
  • Far á milli gististaða
  • Gisting á 3-4* hótelum í Lissabon og við hafið
  • Þjónustugjald
Ekki innifalið
  • Aðrar afþreyingar
  • Ferðatrygging - en við getum aðstoðað þig við að festa kaup á slíkri

1. Lissabon

Lissabon er falleg borg og einn vinsælasti ferðamannastaður Evrópu. Hún hefur allt það sem þú gætir búist við frá evrópskri höfuðborg, en hún hefur líka sjarma sem umbreytir henni í eitthvað alveg sérstakt.

Sumt af því skemmtilega sem hægt er að gera í Lissabon er meðal annars að rölta um göngugöturnar, sötra púrtvín, borða á góðum veitingastöðum á staðnum og drekka í sig sólskinið við Tagus ána. Skelltu þér svo í eins og einn sporvagn.

2. Ericeria

Ericeira er lítill strandbær í norðvesturhluta Portúgals, um 40 mínútur frá Lissabon. Bærinn skartar fallegri náttúru, þar sem þú getur gengið um og notið strandanna. Í kringum Ericeira er einnig margt að gera og sjá, þar á meðal söfn, spilavíti og minígólfvellir. Ericira er einnig þekkt fyrir gott surf, strandmenningu og frábæra sjávarréttastaði.

2. Peniche

Peniche er lítill sjávarbær í um 40 mínútna fjarlægð frá Lissabon. Bærinn er þekktur fyrir fallegar strendur, sérstaklega Praia de Leça ströndina sem er vinsælt fyrir surf. Hvort sem þú vilt taka því rólega eða gera eitthvað meira spennandi þá er Peniche staðurinn fyrir þig, en hann laðar að sér marga ferðamenn yfir sumarið víðsvegar að úr Evrópu vegna hversu góðar surföldurnar eru.

3. Cascais

Cascais er lítil strandbær í vesturhluta Portúgals, um 40 mínútur frá Lissabon. Hann er þekktur fyrir fallega staðsetningu sína, auk þess að vera vinsæll orlofsstaður fyrir fólk frá allri Evrópu. Þú getur rölt meðfram ströndinni, heimsótt staðbundin kennileiti og farið í búðir eða notið fjölbreytts veitingastaða. Fyrir íþróttaáhugamenn eru margir möguleikar, allt frá windsurfing til tennis og gólfs.

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.