New York
Búðu þig undir öfga þegar þú sækir heim stærstu borg heims. New York býður uppá svo marga möguleika og spennandi hverfi að þú munt óska þess að þú þyrftir ekki að eyða tíma í svefn. Þar sem New York sefur aldrei geturðu farið að versla klukkan ellefu að kvöldi til og farið á næturklúbb klukkan tíu að morgni.
Gott að vita
💰 Verðlag: Í meðallagi
☀️ Veður: Breytilegt eftir árstíma. Hlýtt á sumrin en kalt á veturna
🍸 Næturlíf: Gott, mikið um að vera
Kosta Ríka
Kosta Ríka bíður uppá ótrúlega fjölbreytilegt landslag þrátt fyrir að vera aðeins 51.000 km2. Í þessu fallega landi eru 35 þjóðgarðar sem samtals þekja 11% af landinu. Enginn annar staður getur stært sig af jafn mörgum dýrategundum á svona litlu svæði! Hægt er að finna yfir 850 mismunandi fuglategundir í þessari litlu paradís. Kosta Ríka er svo sannkallað draumaland náttúru- og dýralífsunnenda! En einnig þá sem elska að sörfa og liggja á störndinni í yndislegu andrúmslofti.
Gott að vita
💰 Verðlag: Mjög gott
☀️ Veður: Það er aldrei eiginlegt sumar eða vetur í Kosta Ríka en rigningartímabilið er frá maí til nóvember
🍸 Næturlíf: Gott