Hvernig hljómar að ferðast örlítið lengra í útskriftarferð til að fá margfalt meira út úr ferðinni? Ef þið eruð til í það þá er Balí rétti áfangastaðurinn fyrir ykkar útskriftarhóp. Fallegar strendur, heimsklassa surf, mögnuð náttúra og balísk menning sem allir þurfa að upplifa á ævinni. Það er auðvelt að svala ævintýraþránni hér með ævintýraferðum, köfun, snorkli og gönguferðum. Hvað þá að finna sitt innra "zen" með jógatímum, hugleiðslu og hollum og góðum mat.
Balí
Stórkostlegar strendur, gróskumiklir hrísgrjónaakrar og eldfjöll taka á móti þér í þessari 16 daga ferð til Balí. Þetta er ekki hin venjulega útskriftarferð til Spánar svo mikið getum við sagt!
Ferðin hefst í Changgu þar sem hópurinn mun gista í 4 nætur. Hér mælum við með því að þið hreyfið ykkur aðeins með því að skella ykkur að surfa eða jafnvel taka því aðeins rólega með nokkrum jógatímum.
Þegar dagarnir í Changgu eru liðnir liggur leiðin í frumskógarparadísina í Ubud. Hér höfum við skipulagt dagsferð á hrísgrjónaakur sem og eldfjallaferð á buggy bílum eða hjólaferð um Ubud, ykkar er valið. Í Ubud verðið þið einnig í 4 nætur áður en þið haldið áfram á næsta áfangastað, Nusa Lembongan.
Þegar þangað er komið tekur við slökun og snorkl. Hér er sko heldur betur hægt að njóta lífsins, og þið hafið 4 nætur til þess að kanna staðinn!
Síðast en ekki síst er það Uluwatu, þar sem ferðin endar. Hér upplifið þið magnaðar klettastrandlengjur (endilega skellið ykkur á veitingastað á einni slíkri og njótið útsýnisins) og surf fyrir lengra komna. Héðan er líka stutt að fara á flugvöllin þegar næturnar 3 hér eru liðnar. Fullkominn staður til að enda ferðina á!
ATH. Við getum sett saman nákvæmlega þessa ferð fyrir útskriftarhópinn eða við getum sest niður með ykkur og sérsniðið útskriftarferð eftir markmiðum hópsins. Komið og fáið fría ráðgjöf hjá okkur.