{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Eyjahopp á Suður-Tælandi


Bátar við Phi phi eyjar á tælandi
Sjá sem lista

Lengd

14 dagar

Áfangastaðir

Krabi, Koh Phi Phi & Phuket

Hápunktar

Hvítar strendur, tær sjór og tælenskur matur

Verðlag

Gott

Viltu vita meira?
Hefur ykkur alltaf langað til að kynnast Tælandi? Þið eruð ekki ein um það! Það eru ekki mörg lönd sem jafnast á við Tæland. Maturinn, náttúrufegurðin, tær og hlýr sjórinn, strendurnar sem þú vilt ekki yfirgefa og fólkið sem brosir alltaf sínu breiðasta - Tæland hefur þetta allt og enn meira til!

Ferðin

Flogið verður með tveimur stoppum til Krabi á Suður-Tælandi, þar sem fyrstu fimm dögunum verður varið á fjögurra stjörnu hóteli við ströndina. Þar getið þið gert allt sem ykkur lystir - nudd á hverjum degi, hoppað yfir á nærliggjandi eyjar, klifrað í klettunum við ströndina, kannað næturlífið og verið viss um að missa ekki af sólsetrinu!

Á eftir Krabi tekur við eyjan Koh Phi Phi þar sem þið verðið næstu þrjá daga á lúxus resorti á besta stað. Þar er tilvalið að snorkla í sjónum, heimsækja Maya Bay, skoða eyjuna á vespu og njóttu lúxuslífsins því næstu tvær nætur á eftir verða heldur betur öðruvísi upplifun.

Síðustu dagar ferðarinnar verða á ströndum Phuket á fjögurra stjörnu hóteli eða einkavillu - hópurinn ákveður það. Sleikið sólina, borðið allt of mikið af Pad Thai og fylgist með næturlífinu kvikna seinnipartinn. Flogið verður heim frá Phuket með tveimur stoppum, en ykkur mun örugglega langa að koma til Tælands aftur áður en þið eruð lent á klakanum!

Innifalið
  • Flug
  • Gisting
  • Eyjahopp
Ekki innifalið
  • Aðrar afþreyingar
  • Ferðatrygging - en við getum aðstoðað þig við að festa kaup á slíkri

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.