Sitges á Spáni er fullkominn áfangastaður fyrir fyrirtækið
Er fyrirtækið á leiðinni út í skemmtiferð? Þá er Sitges á Spáni fullkominn áfangastaður!
Spánn hefur verið uppáhalds áfangastaður Íslendinga í langan tíma og ekki að ástæðulausu. Gott veðurfar, mildir vetrar og heit sumur.
Við höfum sett saman ógleymanlega fjögurra daga ferð fyrir fyrirtæki (10 manns eða fleiri) til Sitges, Spánn. Bærinn er þekktur fyrir sínar fallegu strendur, líflegu menningu og frábæru veitingastaði.
Ferðin hefst með þægilegu flugi frá Reykjavík til Barselóna. Við komuna til Barselóna verður hópurinn sóttur og ekið til Sitges þar sem þið munuð verja næstu dögum í afslöppun og skemmtun. Gist verður á 4* hóteli á besta stað, nálægt ströndinni. Þið munuð hafa tækifæri til að kanna bæinn, njóta sólarinnar og borða góðan mat. Vilji hópurinn bæta við skemmtilegum afþreyingum eins og vínsmökkun, árshátíðarkvöldverði eða dagsferð til Barselóna, þarf aðeins að nefna það og við græjum það fyrir ykkur.
Þetta er fullkomið tækifæri til að slaka á og njóta lífsins í góðum félagsskap samstarfsfélaga. Lestu áfram til að vita meira um ferðina.
Fá fría ráðgjöf
Ferðaáætlunin: Sitges á Spáni bíður ykkar

Dagur 1:
Brottför er frá Keflavík þann 23. apríl klukkan 08:25 þar sem ein innrituð taska og handfarangur er innifalin á mann. Lent er í Barselóna klukkan 14:40. Hópurinn verður sóttur á flugvöllinn og ekið til Sitges (tekur um 1 klukkustund). Þar getið þið tékkað ykkur inn á 4* hótelið (morgunmatur innifalinn) og komið ykkur fyrir.
Dagur 2-3:
Á þessum dögum ferðarinnar hafið þið frítíma til að kanna Sitges á eigin vegum eða bætt við nokkrar af skemmtilegum afþreyingum eins og vínsmökkun eða dagsferð til Barcelona. Ef ekki þá getur hópurinn slakað á á einni af fallegu ströndum bæjarins, skoðað sögufræga miðbæinn með sínum heillandi götum og verslunum, eða notið ljúffengra rétta á einum af fjölmörgum veitingastöðum. Fyrir þá sem vilja meiri ævintýri er hægt að leigja hjól eða fara í gönguferðir um nærliggjandi svæði. Ef fyrirtækið er í árshátíðarferð þá getum við einnig skipulagt árshátíðarkvöldverð á hótelinu sjálfu.
Dagur 4:
Það er komið að brottför eftir þessa frábæru löngu helgi. Hópurinn verður sóttur á hótelið og ekið út á flugvöll. Flogið er klukkan 15:45 og lending á Íslandi er 18:20. Velkomin heim!
Afþreyingar sem hægt er að bæta við

Vínsmökkun
Heimsóknin til Finca Viladellops býður upp á einstaka upplifun þar sem hópurinn getur gengið um víngarðana og fengið innsýn í vínrækt frá vistfræðilegu sjónarhorni, þar sem áhersla er lögð á sjálfbærar aðferðir og virðingu fyrir náttúrunni. Þið munuð einnig ganga um vínframleiðsluþorpið og kynnast svæðinu betur.
Á meðan á heimsókninni stendur munuð þið skoða menningarminjar á landaeigninni, þar á meðal Kapellu Sant Joan frá 13. öld og miðaldaturn frá 12. öld. Að lokum verður heimsókn í víngerðina Finca Viladellops þar sem þið munuð fá að smakka þrjú úrvals vín.

Dagsferð til Barselóna
Upplifið töfra Barselóna á einum degi með skipulagðri dagsferð með leiðsögn! Þessi um 8 klukkustunda ferð tekur ykkur frá Sitges og til helstu kennileita Barselóna, þar á meðal Sagrada Familia, Park Guell og gamla bæinn. Leiðsögumaðurinn ykkar segir ykkur frá öllum áhugaverðu upplýsingunum um þetta svæði. Þetta er fullkomin leið til að sjá það besta sem Barcelona hefur upp á að bjóða á einum degi.
Verð (án afþreyinga)
Innifalið:
- Flug til Barselóna
- Akstur til/frá flugvelli/hóteli
- Gisting með morgunmat miðað við tveggja manna herbergi
Verð 147.000 ISK á mann (miðað við fullorðinn einstakling)
Verð (með afþreyingum)
Innifalið:
- Flug til Barselóna
- Akstur til/frá flugvelli/hóteli
- Gisting með morgunmat miðað við tveggja manna herbergi
- Dagsferð til Barselóna
- Vínsmökkun
Verð 189.000 ISK á mann (miðað við fullorðinn einstakling)
Hafið þið áhuga á þessari fyrirtækjaferð til Sitges?
Þá skuluð þið hafa hraðar hendur þar sem takmörkuð flugsæti eru í boði! Skrifaðu okkur og við aðstoðum þig og fyrirtækið þitt.
Skrifa okkur