{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Matur og drykkur

dinner-asia-planning-local-costs-cover

Matur og drykkur

Í flestum heimsálfum í heiminum mun það ekki vera erfitt fyrir þig að finna mjög góðan mat og sérstaklega ef innfædd eða alþjóðleg matargerð er á boðstólnum. Með því að setja smá vinnu í að skoða leiðsögubækur, spyrja aðra ferðamenn eða heimamenn þá geturðu auðveldlega fundið bestu og ódýrustu staðina. Mögulega staðsettir í mjóum götum aðeins frá vinsælustu túristastöðunum. Ef þig langar í „local“ mat  þá er er best að setjast niður þar sem innfæddir eru að snæða.

Ferðamanna niðurgangur - Hluti af ferðinni

Þegar þú ert að ferðast á ráðstöfunarfé, þá er ólíklegt að þú sért að fara borða á dýrustu veitingastöðunum, þó ættirðu öðru hverju að gera vel við þig og borða eitthvað virkilega gott. Að borða mjög ódýrt getur haft þau áhrif að maginn á þér byrjar að hiksta, en þetta er hluti af því að ferðast sem bakpokaferðalangur, þannig þú mátt alveg búast við því að maginn á þér og hægðir eru ekki eins samvinnuþýðar og þær eru heima. Ef þú heldur þig við gamla málstækið „boil it - peel it - cook it, or forget it“ (sem mætti þýða á íslensku sem „Sjóða það, flysja það, elda það, eða gleymdu því“) þá ættirðu að sleppa. Við mælum samt með því að prófa sem flest og fylgja bara almennri skynsemi í þessu eins og öllu öðru.

Loka augunum og benda

Á sumum svæðum heimsins þá gæti matseðilinn verið smá áskorun; hann gæti verið óskiljanlegur og þá er best að loka augunum og benda. Þú gætir jafnvel reynt að tjá hvað þig langar í "actionary-style", það reynist oft skemmtilegur leikur. Við mælum með að þú lesir þig til um helstu réttina sem er verið að bjóða upp á þessu svæði. Þetta getur reynst grænmetisætum erfitt og þurfa þær því að setja enn meiri vinnu í þetta, en í það heila ætti þetta alveg að ganga í flest öllum löndum heimsins.

Drykkjarvatn

Í flestum þróunarríkjum er ferskt vatn af skornum skammti. Ef þú vilt ekki taka neina áhættu þá skaltu alltaf drekka vatn í keyptum flöskum eða vatn sem hefur verið hreinsað eða filterað. Það sama gildir svo um drykkjarvatn frá ám, lækjum og vötnum, alltaf sjóða það vel og notaðu svo filter eða einhverskonar efni sem hreinsar það.

Borða hollt

Þegar þú ert að ferðast á erfiðum svæðum, vertu þá viss um að borða og drekka reglulega, aldrei sleppa máltíð og reyndu að forðast skyndibitamat. Þetta gæti verið frekar einföld ráð en "góða saga er aldrei of oft sögð" því þetta ráð mun hjálpa þér að komast í gegnum og njóta ferðarinnar. 

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.