Fá fría ráðgjöf
Ef þú hefur heyrt stórkostlegar sögur af kóralrifum, regnskógum, ströndum, náttúru og dýralífi Ástralíu og langar nú að upplifa það sjálf/ur, þá gefur Grayhound rútupassinn ferðalöngum tækifæri til að ferðast sveigjanlega og á sínum eigin forsendum.
Greyhound Whimit passinn (15 til 365 dagar)
Whimit passinn er fullkominn fyrir þig ef þig langar að ferðast um Ástralíu. Það er enginn annar ferðamöguleiki í Ástralíu sem gefur þér jafn mikinn sveigjanleika og Whimit passinn. Í honum eru yfir 250 stopp svo þú hefur frelsið til þess að fara eins langt eða stutt og þú vilt. Það eina sem þú þarft að hugsa um er hversu marga daga þú vilt ferðast. Möguleikarnir eru:
- 15 daga Whimit passinn
- 30 daga Whimit passinn
- 60 daga Whimit passinn
- 90 daga Whimit passinn
- 120 daga Whimit passinn
- 365 daga Whimit passinn
ATH: Þú sparar 5% með því að panta Grayhound passann þinn hjá okkur
Bættu YHA gistingu við Whimit passann þinn
Bættu YHA pakka við Whimit passann þinn og vertu viss um að þú hafi aðgang að gistingu á ferðalaginu þínu. Þetta er hið fullkomna kombó fyrir bakpokaferðalanga.
ATH: Þú sparar 5% með því að panta Grayhound passann þinn hjá okkur
Greyhound Hop-On Hop-Off passinn
Grayhound Hop-On Hop-Off passinn gildir í 90 daga, aðra leið. Með honum getur þú skoðað Ástralíu á þinn hátt þar sem þú hefur frelsi til að hoppa um borð rútunnar þegar þér hentar. Þú þarft þá ekki að hafa áhyggjur af því hversu lengi þú villt vera á hverjum stað. Þú getur ákveðið það þegar þú kemur þangað og svo ferðast með rútunni þegar þú ert klár að halda áfram á næsta áfangastað.
Allir Hop-On Hop-Off passarnir gilda í 90 daga, aðra leið:
- Sydney <-> Cairns Hop On Hop Off passinn
- Brisbane <-> Cairns Hop On Hop Off passinn
- Melbourne <-> Cairns Hop On Hop Off passinn
- Melbourne <-> Brisbane Hop On Hop Off passinn
- Sydney <-> Brisbane Hop On Hop Off passinn
ATH: Þú sparar 5% með því að panta Grayhound passann þinn hjá okkur
Ég vil vita meira