{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Vellíðunarferð Hönnu í norður Tælandi

Image00071

Hugleiðsla, menning og ný sjónarhorn

 

Þegar flestir hugsa um Tæland dettur þeim líklega í hug strendur, eyjalíf og götumatur. Ég var líka þar, ef ég á að vera hreinskilin. En í ferð minni til norður Tælands kynntist ég allt annarri hlið landsins.

Á tíu dögum í Chiang Mai heimsótti ég hof, sinnti sjálfboðastarfi í skóla, prófaði jóga og tónheilun, lærði að elda tælenskan mat og dvaldi á búddísku hugleiðslusetri. Þetta varð ferð sem fékk mig til að hægja á mér af alvöru.

 

Image00041
Kynnstu Hönnu!
Hanna er hluti af teyminu hjá KILROY í Svíþjóð og hefur sérstakt dálæti á ferðalögum sem sameina ævintýri og persónulega upplifun. Hvort sem hún er að kynnast nýrri menningu, smakka staðbundna rétti eða stíga út fyrir þægindarammann er hún alltaf forvitin um það sem áfangastaðurinn hefur upp á að bjóða. Í þessari ferð til norður Tælands fékk hún tækifæri til að upplifa allt aðra hlið landsins. Í stað hraðans sem oft fylgir ferðalögum tók við rólegra tempó, hugleiðsla, menningarupplifanir og tími til að staldra við. Upplifun sem gaf henni nýja sýn á bæði Tæland og ferðalögin sjálf.

Frá Bangkok til Chiang Mai

Ferðin hófst í Bangkok, en í stað þess að fljúga ferðaðist ég með næturlest til Chiang Mai. Það var fullkomin leið til að hefja ferðina. Þegar ég vaknaði morguninn eftir fannst mér eins og ég væri komin í allt annan heim. Ég fór úr hávaða og hraða í Bangkok yfir í græna náttúru, fjöll og rólegt andrúmsloft.

Þegar ég kom á áfangastaðinn tók leiðsögumaðurinn minn á móti mér og kynnti mig fyrir Chiang Mai. Yfir daginn heimsóttum við hof, smökkuðum staðbundna rétti og röltum um markaðina í gamla bænum. Ég fékk líka að sjá hið sögufræga borgarhlið og upplifa afslöppuðu stemninguna sem hefur gert borgina að uppáhalds áfangastað ferðalanga víðs vegar að úr heiminum.

En strax daginn eftir beið mín sú upplifun sem ég hafði verið hvað spenntust fyrir.

Image00077

Þrír dagar á búddísku hugleiðslusetri 

Ég vissi í raun ekki alveg við hverju ég átti að búast þegar við komum á hugleiðslusetrið. Við fengum einfaldan klæðnað sem við áttum að vera í allan tímann og okkur var síðan vísað á herbergin okkar. Herbergið mitt var látlaust. Þar var rúm með þunnri dýnu, sturta og fátt annað. Hugmyndin var að losa sig við óþarfa áreiti og beina athyglinni að núinu.

Dagarnir hófust klukkan fjögur á morgnana og snérust um hugleiðslu, ígrundun og kyrrð. Við lærðum bæði sitjandi og gangandi hugleiðslu og á hverjum morgni átti ég samtal við munkinn sem leiðbeindi mér. Við ræddum hvernig hugleiðslan gekk og hvað ég gæti gert til að dýpka upplifunina.

Í allri hreinskilni þá var þetta erfiðara en ég hafði gert mér grein fyrir. Mér varð fljótt ljóst hversu vön ég er því að vera alltaf með eitthvað fyrir stafni. Skoða símann, svara skilaboðum eða kveikja á hlaðvarpi um leið og það verður hljótt. En hér var ekkert af því í boði.

Eftir nokkra daga fór ég þó að kunna að meta róina. Hraðinn minnkaði, hugurinn róaðist og ég tók eftir því hversu gott það var að vera einfaldlega til staðar í augnablikinu í stað þess að vera sífellt að hugsa um það sem tæki næst við.

Það hljómar kannski svolítið klisjukennt, en þessir þrír dagar neyddu mig í raun til að staldra við og gefa mér tíma til að anda. Og það var líklega það sem ég þurfti mest á að halda.

Image00005

Að gefa til baka á ferðalaginu

Eitt af því sem hafði hvað mestu áhrifin á mig í þessari ferð var sjálfboðastarfið. Ásamt öðrum sjálfboðaliðum hjálpaði ég til við að þrífa og mála veggi í skóla sem síðar átti að skreyta með litríkum myndum fyrir börnin. Það hljómar kannski ekki eins og stærsta ævintýrið í ferðinni, en þetta varð í raun ein af þeim upplifunum sem situr mest í mér. 

Verkefnið var hluti af samfélagsverkefni sem miðar að því að styðja við nærsamfélagið og bæta aðstöðu barna og ungmenna. Að fá tækifæri til að leggja sitt af mörkum á staðnum sem maður heimsækir, gefur ferðinni allt aðra merkingu en þegar maður er eingöngu áhorfandi eða ferðamaður.
Fyrir þau sem vilja taka meiri þátt eru einnig í boði lengri sjálfboðaliðaverkefni. Flest þeirra standa yfir í að minnsta kosti viku og innihalda bæði gistingu og fæði. Hluti af kostnaðinum rennur jafnframt beint til verkefnanna sjálfra, þannig að þú styður við starfið bæði með framlagi þínu og fjárhagslegum stuðningi.
Það er einmitt það sem gerir svona upplifanir svo sérstakar. Þú kynnist ekki aðeins nýjum stað heldur færð líka tækifæri til að hafa jákvæð áhrif og skilja eftir þig eitthvað meira en fótspor.
Image00052

Jóga, tónheilun og tælenskt nudd

Eftir þrjá daga á hugleiðslusetrinu var ég farin að venjast hægara tempói. Sem betur fer reyndist Chiang Mai vera fullkominn staður til að halda áfram á þeirri braut. Það sem eftir lifði ferðarinnar gaf ég mér tíma til að prófa nokkrar af þeim vellíðunarupplifunum sem borgin er þekkt fyrir.

Ég byrjaði á 90 mínútna jógatíma sem var nákvæmlega það sem líkaminn þurfti eftir nokkra daga af hugleiðslu og að vakna snemma. Það var gott að hreyfa sig aftur, á sama tíma og áherslan var enn á núvitund, slökun og endurnæringu.

Önnur upplifun sem kom mér skemmtilega á óvart var tónheilun. Ég hafði aldrei prófað hana áður, en hún varð fljótt ein af uppáhalds upplifununum í ferðinni. Að liggja bara kyrr á meðan hljóð og titringur frá syngjandi skálum fylltu rýmið var óvænt notaleg leið til að slaka á og leyfa huganum að róast um stund.

Auðvitað lét ég líka verða af því að prófa tælenskt nudd. Ég hafði heyrt að það væri töluvert kraftmeira en hefðbundið nudd og það reyndist svo sannarlega rétt. Hér snýst upplifunin ekki bara um nuddtök heldur einnig um teygjur og á köflum fannst mér líkaminn vera settur í stellingar sem ég vissi ekki einu sinni að væru mögulegar. Það var ekki alltaf sérstaklega þægilegt á meðan á því stóð, en þegar tímanum lauk fann ég strax mun. Líkaminn var liðugri, mýkri og ég fann fyrir meiri slökun en ég hafði gert í langan tíma.

Ein skemmtilegasta leiðin til að kynnast Tælandi

Annað sem stóð upp úr í ferðinni var matreiðslunámskeiðið. Dagurinn hófst á staðbundnum markaði þar sem við fengum að kynnast betur hráefnunum og kryddunum sem einkenna tælenska matargerð. Að því loknu var komið að okkur að taka til hendinni og elda réttina sjálf.

Á matseðlinum voru meðal annars Pad Thai, Tom Yum, grænt karrý, kjúklingur með kasjúhnetum og Mango Sticky Rice.

Það var mikið hlegið, maturinn var ótrúlega góður og þetta reyndist einstaklega skemmtileg leið til að kynnast tælenskri menningu. Matur segir nefnilega oft meira um land og þjóð en margt annað.

Og það besta við þetta er að nú get ég eldað nokkra af uppáhaldsréttunum mínum frá Tælandi heima í mínu eldhúsi.

Image00034

Hof á daginn, næturmarkaðir á kvöldin

Á milli allra dagskrárliðanna gafst mér líka tími til að heimsækja nokkur af þekktustu hofum Chiang Mai, þar á meðal Doi Suthep og Wat Pha Lat. Auk þess að vera einstaklega falleg veittu heimsóknirnar mér betri innsýn í búddisma og það mikilvæga hlutverk sem trúin gegnir í daglegu lífi margra Tælendinga.

Á kvöldin tók allt annað við. Þá lagði ég leið mína á næturmarkaðina sem Chiang Mai er svo fræg fyrir. Það virðist nánast alltaf vera markaður í gangi einhvers staðar í borginni, en Sunday Market varð fljótt í uppáhaldi hjá mér. Þar má finna allt frá götumatarbásum og handunnum vörum frá heimafólki yfir í lifandi tónlist og litla sölubása þar sem maður rekst iðulega á eitthvað sem maður vissi ekki að mann langaði í fyrr en á þeirri stundu.

Það var líka fullkomin leið til að enda dagana. Að rölta um í kvöldsvalanum, smakka nýja rétti og fylgjast með mannlífinu gaf mér tækifæri til að upplifa borgina á afslappaðan og óþvingaðan hátt.

Image00045

Meira en bara ferðalag

Þegar ég lagði af stað til Tælands hélt ég að vellíðan snerist fyrst og fremst um jóga, hugleiðslu og nudd. En ég kom heim með miklu meira en það.
Þessir þrír dagar á hugleiðslusetrinu fengu mig til að átta mig á því hversu sjaldan maður staldrar raunverulega við í daglegu lífi. Hversu auðvelt það er að fylla hverja lausa stund af skjám, tilkynningum og endalausum verkefnalistum. Við erum svo vön því að vera alltaf á ferðinni að við gleymum stundum að njóta augnabliksins sem við erum í.
Kannski er það einmitt stærsti lærdómurinn sem ég tek með mér úr þessari ferð. Bestu ferðaupplifanirnar snúast ekki endilega um að sjá meira, gera meira eða haka við sem flesta staði á listanum. Stundum snúast þær einfaldlega um að hægja nógu mikið á sér til að taka eftir því sem er allt í kringum mann.
Langar þig að upplifa eitthvað svipað? Ef þú heillast af hugmyndinni um ferð sem sameinar menningu, sjálfboðastarf, vellíðan og einstaka upplifun af Tælandi, þá getum við hjálpað þér að láta hana verða að veruleika.
Ferðasérfræðingar KILROY aðstoða þig við að setja saman ferð sem hentar þínum áhuga og ferðastíl, hvort sem þú vilt prófa hugleiðslu, taka þátt í sjálfboðastarfi eða einfaldlega upplifa Tæland á nýjan hátt.

Hafðu samband og við hjálpum þér við skipulagið

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.