Valdar hópferðir á allt að 20% afslætti
Að ferðast með hóp er ein einfaldasta leiðin til að sjá meira af heiminum án þess að þurfa að skipuleggja hvert smáatriði sjálf/ur. Þú ferðast með litlum hópi af fólki með svipuð áhugamál, fylgir vel skipulagðri ferðaáætlun og færð aðstoð frá staðkunnugum leiðsögumanni sem þekkir áfangastaðinn út og inn. Gisting, samgöngur og jafnvel hluti af máltíðum og afþreyingu er þegar innifalið.
Núna geturðu sparað 20% af völdum hópferðum um allan heim þegar þú bókar í gegnum KILROY. Þú færð 20% afslátt af tilteknum hópferðum með brottför fyrir 15. desember 2026.
Tilboðið gildir til 31. júlí. Hér fyrir neðan finnur þú úrval af afsláttarferðum sem við teljum sérstaklega góð kaup. Þar sem við bjóðum upp á hundruð hópferða á tilboði í júlí mælum við með að þú hafir samband við ferðaráðgjafa hjá KILROY til að finna ferð sem hentar þér best á afslætti.
Afslátturinn hefur þegar verið dreginn frá þeim verðum sem sýnd eru á vefsíðunni.
Bóka með afslætti
Mið-Ameríka: Handan Tulum og Tikal
29 dagar í Mið-Ameríku
Perú: Inca frumskógurinn og Rainbow Mountain gönguferð
7 dagar í Perú
Victoria Falls og Serengeti ævintýraferð: vötn og víðáttur
20 dagar í Kenya, Tanzaníu, Malawi, Zambíu og Zimbabwe
Lima til La Paz: Sandbretti og Sólsetur
21 dagur í Perú og Bólivíu
Frá strandeyðimörkum við Kyrrahafið til Andesfjalla. Þetta er ferð fyrir þau sem vilja sjá og upplifa meira. Renndu þér á sandbretti niður risastórar sandöldur, fylgstu með sólinni setjast yfir Kyrrahafið og taktu stefnuna að Andesfjöllunum þar sem stórbrotið útsýni og staðbundin menning bíða þín. Ævintýri, langir ferðadagar og ógleymanlegar upplifanir á hverju skrefi.
Lombok og Gili Ævintýri: Menning, Tindar og Paradís
7 dagar í Indónesíu
Bangkok til Singapore á Budget-i
14 dagar í Thailandi, Malaysíu og Singapore
Farðu í ævintýralega ferð frá Taílandi til Singapúr og upplifðu frumskóga, strendur og líflegar borgir á leiðinni. Dagarnir geta innihaldið gönguferðir í frumskógi, stopp á eyjum og nægan tíma til að smakka lókal mat. Á kvöldin tekur við notaleg stemning með heimsóknum á næturmarkaði, sólsetri og góðum stundum með ferðahópnum.
Kambódía til Víetnam: Hof, Strendur Koh Rong og lífleg borgarstemning
9 dagar í Kambódíu og Víetnam
Kerala & Sri Lanka: Eyjalíf og fornar rústir
18 dagar um Indland og Sri Lanka
Skilmálar
- Afslátturinn gildir aðeins fyrir valdar hópferðir sem eru hluti af þessu tilboði, þar á meðal en ekki takmarkað við þær ferðir sem birtast á þessari síðu.
- Tilboðið gildir aðeins þegar bókað er í gegnum ferðaráðgjafa hjá KILROY.
- Bókun þarf að vera staðfest fyrir 31. júlí 2026 til að eiga rétt á afslættinum.
- Afslátturinn fer eftir brottfarardegi:
- 20% afsláttur gildir fyrir ferðir sem fara frá 2. júlí til 15. desember.
- Afslátturinn hefur þegar verið tekinn með í reikninginn í þeim tilboðsverðum sem birt eru á þessari síðu, sem og í ferðaverðum sem birtast annars staðar á vefsíðu KILROY.
- Ekki er hægt að sameina tilboðið öðrum kynningum, afsláttarkjörum eða tilboðum.
- Ekki er hægt að skipta tilboðinu út fyrir reiðufé né nota það til kaupa á öðrum vörum eða þjónustu.
- Almennir bókunarskilmálar og greiðsluskilmálar KILROY gilda.
- KILROY áskilur sér rétt til að breyta eða afturkalla tilboðið hvenær sem er án fyrirvara.