{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Sparaðu allt að 30% af völdum hópferðum

G Adventures Group In Peru

Bókaðu hópferð frá 75.456 ISK!

Að ferðast með hópi er ein auðveldasta leiðin til að sjá meira af heiminum án þess að þurfa að skipuleggja hvert einasta smáatriði sjálfur. Þú ferðast með litlum hópi af fólki sem deilir sömu ferðalöngun, fylgir vel skipulagðri ferðaáætlun og nýtur leiðsagnar staðkunnugs fararstjóra sem þekkir áfangastaðinn út og inn. Gisting, samgöngur og jafnvel sumar máltíðir og afþreying eru innifalin.

Núna geturðu fengið allt að 30% afslátt af völdum hópferðum um allan heim þegar þú bókar í gegnum KILROY. Þú færð 30% afslátt af völdum hópferðum sem fara af stað fyrir 30. apríl 2027.

Tilboðið gildir til 4. desember. Hér fyrir neðan finnur þú lítið úrval af afsláttarkjörum sem okkur finnst sérstaklega spennandi, en þar sem hundruð hópferða eru á tilboði í nóvember mælum við með að þú hafir samband við ferðaráðgjafa KILROY til að finna ferð sem hentar þér fullkomlega og njóta afsláttarins.

Nýttu þér afsláttinn

Image00023 (1)

Suðaustur-Asía: Strendur, menning og götumatur

30 dagar í Tælandi, Kambódíu og Víetnam

Eyddu mánuði í að uppgötva það besta sem Suðaustur-Asía hefur upp á að bjóða. Fylgstu með sólarupprás yfir hinu stórbrotna Angkor Wat, sigldu um kalksteinskletta og smaragðsgrænan sjó Halong-flóa, ferðastu meðfram Mekong-fljótinu og syntu undir fossunum við Kuang Si. Með líflegum borgum, heimagistingum hjá heimafólki, matarupplifunum á götumarköðum og suðrænum ströndum færðu allt sem þarf fyrir hið fullkomna Suðaustur-Asíuævintýri.

 

Verð áður: frá 330.994 ISK

    • Verð með 30% afslætti: frá 231.696 ISK (7.723 ISK á dag)

 

Skoða ferðina      Hafa samband til að bóka

339530259 678100170786774 6584280735677882862 N

Perú: Fornar borgir og Andesfjöllin

14 dagar í Perú

Upplifðu helstu perlur Perú, allt frá eyðimerkurlandslagi og heillandi nýlenduborgum til stórbrotinna Andesfjalla. Ferðastu um Nazca, Arequipa, hinn stórfenglega Colca-gljúfur og Heilaga dalinn áður en þú kemur að hinum goðsagnakenndu rústum Machu Picchu. Á leiðinni nýturðu hefðbundinnar Pachamanca-veislu, kynnist samfélögum í Andesfjöllum, uppgötvar aldagamlar vefnaðarhefðir og sökkvir þér í ríka menningu og sögu Perú.

 

Verð áður: frá 273.394 ISK

    • Verð með 30% afslætti: frá 191.376 ISK (13.670 ISK á dag)

 

Skoða ferðina     Hafa samband til að bóka

colombia-tayrona-national-park-beach-cover

Kólumbíuævintýri: Medellín og Tayrona-þjóðgarðurinn

10 dagar í Kólumbíu

 

Uppgötvaðu Karabíska hafsströnd Kólumbíu í ferð sem sameinar litskrúðugar borgir, gróskumikla frumskóga og afslappaða strandstemningu. Rölttu um sögufrægar götur Cartagena, gakktu að fossum í fjallabænum Minca, slakaðu á á ströndum Palomino og skoðaðu frumskógarstíga Tayrona-þjóðgarðsins. Ferðinni lýkur í líflegu Medellín þar sem þú upplifir einstaka stemningu einnar spennandi borgar Suður-Ameríku og heimsækir hið fræga hverfi Comuna 13.

 

Verð áður: frá 221.554 ISK 

    • Verð með 30% afslætti: frá 155.088 ISK (15.509 ISK á dag)

 

Skoða ferðina     Hafa samband til að bóka

Indonesia Gili Air Man Snorkeling With Turtle

Balí og þar í kring: Hin fullkomna eyjaferð

16 dagar í Indónesíu

 

Surfaðu öldurnar í Canggu, fylgstu með sólarupprás af tindi Batur-fjalls og upplifðu ekta þorpslíf utan vinsælustu ferðamannasvæða Balí. Ferðastu um Balí, Lombok og Gili-eyjarnar þar sem þú kynnist hrísgrjónaökrum, staðbundnum samfélögum, hofum og suðrænum strandlengjum. Snorklaðu í kristaltæru vatni, lærðu hefðbundnar vefnaðaraðferðir og njóttu eyjalífsins á nokkrum af fallegustu ströndum Indónesíu.

 

Verð áður: frá 179.794 ISK 

    • Verð með 30% afslætti: frá 125.856 ISK (7.866 ISK á dag)

 

Skoða ferðina    Hafa samband til að bóka

Bui Vien backpacking street in Ho Chi Minh City in Vietnam

Suðaustur-Asía: Fjallaættbálkar og götumatur

21 dagur í Tælandi, Malasíu og Singapúr
Uppgötvaðu Tæland, Malasíu og Singapúr í ferð sem hentar vel ungu og ævintýragjörnu ferðafólki. Smakkaðu bragðmikið laksa á næturmarkaði í Kuala Lumpur, gakktu um meðal fjallaættbálka í norðurhluta Tælands og slakaðu á á hvítum sandströndum suðursins. Njóttu frelsisins til að kanna bæði helstu kennileiti og falda fjársjóði áfangastaðanna og upplifðu þennan fjölbreytta hluta Suðaustur-Asíu á einstakan hátt.

 

Verð áður: frá 234.514 ISK 

    • Verð með 30% afslætti: frá 164.160 ISK (7.817 ISK á dag)

 

Skoða ferðina      Hafa samband til að bóka

halong-bay-vietnam-sunny-boats

Víetnam: Sögufrægar borgir og sigling um Halong-flóa

12 dagar í Víetnam

Ferðastu þvert yfir Víetnam og upplifðu heillandi sögu landsins, stórkostlega matarmenningu og fjölbreytta náttúru. Rölttu um líflegar götur Ho Chi Minh-borgar, bragðaðu á staðbundnum götumat í Nha Trang, njóttu töfrandi stemningar luktalýstra gatna í Hoi An og kynntu þér keisarasögu Hue. Ferðinni lýkur með ógleymanlegri siglingu um smaragðsgrænan Halong-flóa þar sem kalksteinsklettar rísa upp úr sjónum, áður en komið er til iðandi höfuðborgarinnar Hanoi.


Verð áður: frá 107.794 ISK 

    • Verð með 30% afslætti: frá 75.456 ISK (6.288 ISK á dag)

 

Skoða ferðina     Hafa samband til að bóka

Sri Lanka Ella Green Scenery

Sri Lanka og Maldíveyjar: Kryddgarðar, strendur og eyjahopp

18 dagar um Sri Lanka og Maldíveyjar

Sameinaðu forna menningu, stórkostlega náttúru og suðræna paradís í þessari ógleymanlegu ferð um Sri Lanka og Maldíveyjar. Kannaðu fornar rústir Sigiriya, heimsæktu ilmandi kryddgarða, ferðastu um gróskumiklar teplantekrur og gakktu um grænar hæðir Ella. Að því loknu tekur við einstakt eyjahopp um Maldíveyjar um borð í hefðbundnum dhoni-bát, þar sem hvítar sandstrendur, kristaltær sjór, snorklun og ógleymanleg sólsetur yfir Indlandshafi bíða þín.

 

Verð áður: frá 410.194 ISK 

    • Verð með 30% afslætti: frá 287.136 ISK (15.952 ISK á dag)

 

Skoða ferðina      Hafa samband til að bóka

Girl In Morocco (1)

Marokkó: Eyðimerkur og strandir

11 dagar í Marokkó

Frá rauðleitum götum Marrakech til gullinna sanda Sahara-eyðimerkurinnar og brimstrandanna við Atlantshafsströndina, þessi ferð sýnir Marokkó frá sínum fjölbreyttustu hliðum. Ríddu á úlföldum inn í eyðimörkina, gistu undir stjörnubjörtum himni í hefðbundnum eyðimerkurbúðum, skoðaðu hina frægu kasbah-borg Aït Ben Haddou og prófaðu brim í strandbænum Taghazout. Ferðinni lýkur í heillandi strandbænum Essaouira, þar sem litríkar götur, afslappað andrúmsloft og útsýni yfir Atlantshafið mynda fullkominn endapunkt á ævintýrinu.

 

Verð áður: frá 114.994 ISK 

    • Verð með 30% afslætti: frá 80.496 ISK (7.317 ISK á dag)

 

Skoða ferðina      Hafa samband til að bóka

Skilmálar og skilyrði

  • Afslátturinn gildir eingöngu fyrir valdar hópferðir sem eru hluti af þessu tilboði, þar á meðal en ekki takmarkað við ferðirnar sem birtar eru á þessari síðu.
  • Tilboðið gildir aðeins þegar bókað er í gegnum ferðaráðgjafa hjá KILROY.
  • Bókun þarf að vera staðfest fyrir 4. desember 2026 til að afslátturinn gildi.
  • Afslátturinn fer eftir brottfarardegi:
    • 30% afsláttur af ferðum sem fara af stað á tímabilinu 30. október 2026 til 30. apríl 2027.
  • Afslátturinn hefur þegar verið dreginn frá þeim herferðarverðum sem birt eru á þessari síðu, sem og þeim ferðaverðum sem sýnd eru annars staðar á heimasíðu KILROY.
  • Ekki er hægt að sameina tilboðið öðrum kynningum, afsláttum eða sérkjörum.
  • Tilboðinu verður ekki skipt út fyrir reiðufé og það gildir ekki fyrir aðrar vörur eða þjónustu.
  • Almennir bókunarskilmálar og greiðsluskilmálar KILROY gilda.
  • KILROY áskilur sér rétt til að breyta eða taka tilboðið úr gildi hvenær sem er án fyrirvara.

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.