Núna er tíminn til að bóka ævintýri næstu páska!
Skelltu þér í ævintýralegt páskafrí, hvort sem það er með vinum, fjölskyldu eða sóló. Þetta er tíminn til að bóka! Veldu úr áfangastöðum eins og Tæland, Maldíveyjar og Sri Lanka, og Norður-Víetnam og Balí. Kynntu þér áfangastaðina betur og kláraðu dæmið svo þú missir ekki af páskaflugsætunum.
Hér fyrir neðan eru nokkrar tillögur frá ferðaráðgjöfum KILROY en við getum sérsniðið ferðina þína nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana.
Hafa samband til að bóka páskaferð
1. Tæland: 3 vikur

Ferðin hefst með flugi til Phuket, þar sem þú dvelur í 7 nætur á einni af bestu ströndum eyjarinnar. Morgunmatur er innifalinn, og dagarnir eru þínir eru frjálsir til að njóta. Slakaðu á á sólríkum ströndum, skoðaðu líflega markaði, eða farðu í ævintýri á sjó með snorkli eða bátsferðum.
Frá Phuket ferðast þú til Khao Sok-þjóðgarðsins, þar sem stórbrotin náttúra tekur á móti þér. Grænir frumskógar, spegilslétt vötn og einstakt dýralíf skapa einstaka upplifun þar sem náttúruundur og kyrrð eru í fyrirrúmi.
Eftir Khao Sok ferðast þú til Krabi, þar sem þú dvelur í 7 nætur með morgunmat. Svæðið er þekkt fyrir einstaka náttúrufegurð, kalksteinskletta og silkimjúkar strendur. Hluti af dvölinni er dagsferð til Phi Phi-eyja, þar sem þú getur snorklað í tæru vatni og notið stórbrotnu eyjanna sem eru heimsfrægar fyrir fegurð sína.
Að ferðalokum snýrðu aftur til Phuket, þar sem þú nýtur lokadagana á nýrri strönd. Hér er morgunmatur líka innifalinn. Nú hefur þú tíma til að kanna nýju ströndina, slaka á eða upplifa líflegt og fjölbreytt mannlíf áður en þú heldur heim.
Við höfum innifalið allar samgöngur í ferðinni, svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því hvernig þú kemur þér á milli áfangastaða í Tælandi. Ferðin endar svo með flugi heim frá Phuket eftir marga ógleymanlega daga af töfrum Tælands.
Innifalið:
- Flug
- Gisting í 12 nætur á Phuket með morgunmat (skipt um strönd 1x)
- Khao Sok adventure og transfer
- 7 nætur með morgunmat á Krabi
- Phi Phi dagsferð
- Allar samgöngur
- Þjónustugjald
Verð: Frá 579,000 ISK á mann. Gott er að hafa í huga verð getur hækkað yfir háannatíma eins og páska, þannig það er sniðugt að bóka sem fyrst.
Þetta er aðeins ferðatillaga - við sérsníðum ferðina algjörlega eftir þínum óskum.
2. Maldíveyjar og Sri Lanka: 4 vikur

Þessi ferðaáætlun er fyrir þig ef þú vilt bæði slaka á á hvítum sandströndum og ferðast um eitt fallegasta landslag sem móðir náttúra hefur gefið okkur.
Þú byrjar ferðina á 12 daga hópævintýri á Sri Lanka sem er fylgt eftir með viku í einum flottustu surfbúðum Asíu.
Næst flýgur þú frá Colombo til Malé. Þar slappar þú af í nokkra daga á fyrirframbókaða farfuglaheimilinu þínu áður en þú byrjar 8 daga eyjahopp um paradísareyjar Maldíveyja.
Innifalið:
- Flug fram og til baka
- 12 daga hópaferð um Sri Lanka ferð
- 8 daga surf og jóga camp í Sri Lanka
- Flug til Malé
- 8 daga eyjahopp ferð á Maldíveyjum
- Flug heim frá Malé
- Bókunargjald
- Ráðgjöf hjá ferðasérfræðing
Verð: Frá 695,000 ISK á mann. Gott er að hafa í huga verð getur hækkað yfir háannatíma eins og páska, þannig það er sniðugt að bóka sem fyrst.
Þetta er aðeins ferðatillaga - við sérsníðum ferðina algjörlega eftir þínum óskum.
3. Norður-Víetnam og Balí: 4 vikur

Ferðin byrjar í Hanoi í Víetnam. Fyrstu 4 dagana getur þú losað þig við ferðaþreytuna á meðan þú skoðar höfuðborg Víetnam. Næst á eftir er falleg bátsferð um Bai Tu Long, systurflóa Halong-Bay.
Þegar þú kemur á land aftur hefst 5 daga ferð á Sapa svæðinu, þar sem þú munt fara framhjá þorpum og fjölda hrísgrjónaakra. Landslagið gerist ekki fallegra en þetta.
Haldið er áfram til Balí þar sem við höfum skipulagt dvöl í einum af vinsælustu surfbúðum eyjunnar. Lærðu að surfa á daginn og slappaðu af á kvöldin.
Næst tekur við 9 daga ævintýraferð með öðrum bakpokaferðalöngum, þar sem þú munt sjá alla hápunkta Balí áður en þú endar á hinni fallegu og friðsælu eyju, Gili Trawangan. Slappaðu af hér eins lengi og þú vilt, áður en þú flýgur heim aftur eftir ferð fulla af eftirminnilegum minningum.
Innifalið
- Flug til Hanoi (Víetnam)
- 4 nætur á farfuglaheimili í Hanoi
- 2 daga sigling í Bai Tu Lon
- 4 daga þorpsferð í Sapa
- Flug frá Hanoi til Denpasar (Balí)
- 3 dagar í brimbrettabúðum á Balí
- 9 daga ævintýraferð
- Bókunargjöld
- Ráðgjöf hjá ferðasérfræðing
Verð: Frá 426,063 ISK á mann. Gott er að hafa í huga verð getur hækkað yfir háannatíma eins og páska, þannig það er sniðugt að bóka sem fyrst.
Þetta er aðeins ferðatillaga - við sérsníðum ferðina algjörlega eftir þínum óskum.
Hljómar þetta spennandi?
Langar þig að fara í einhverja af þessum ferðum um páskana? Eða kannski einhverja allt aðra? Við getum hjálpað þér að setja saman draumaferðina, sérsniðna algjörlega að þínum draumum. Sendu okkur endilega skilaboð og við aðstoðum þig.
Fá fría ráðgjöf