{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Leiðarvísirinn þinn að Seoul: ævintýri, K-pop og húðumhirða fyrir þá sem eru að heimsækja í fyrsta skipti

Web Horizontal Nathan Park 9Npaqwthqxe Unsplash

Frá höllum til K-pop takta, frá götumat til húðumhirðu — hér er allt sem þú þarft að sjá og gera í Seoul í fyrstu ferðinni þinni.

Ertu að skipuleggja fyrstu ferðina þína til Seoul? Þá ertu á réttum stað. Þessi ferðahandbók um höfuðborg Suður-Kóreu fer yfir það helsta sem þú þarft að sjá, lókal leyndarmál og hagnýt ferðaráð fyrir þá sem eru að heimsækja landið í fyrsta skipti. Frá höllum og útsýni til K pop gatna, frá næturgrilli til morgunmarkaða, hér er hvernig þú nýtir tímann þinn í Seoul sem best.

South Korea Seoul Gyeongbokgung Palace
Klár í að kanna Suður-Kóreu?
Seoul er aðeins byrjunin. Frá klausturdvölum í fjöllunum til sjálfboðaverkefna sem tengja þig við nærsamfélög býður Suður-Kórea upp á upplifanir sem fara langt út fyrir hefðbundnar túristaathafnir. Þú getur lært, gefið til baka og samt haft nægan tíma til að sökkva þér í matinn, menninguna og orkuna sem gera landið svona einstakt.
Skoðaðu allt sem hægt er að gera í Suður-Kóreu

Áður en þú ferð: Það sem þú þarft að vita um Seoul og Suður-Kóreu

  • Samgöngur: Fáðu þér T money kort um leið og þú kemur til landsins til dæmis á flugvellinum eða rútustöðinni. Neðanjarðarlestir og strætóar eru hreinir, skilvirkir og fara nánast alls staðar. Það hjálpar líka mikið að kunna nokkur einföld kurteisiorð á kóresku eins og „vinsamlegast“ og „takk“, þó flestir í Seoul tali næga ensku til að redda sér.

  • Peningar: Suður-Kórea er ódýrari en margar vestrænar höfuðborgir, en „ódýrt“ er alltaf afstætt. Matur og snarl eru á mjög sanngjörnu verði. Húðumhirða og tækni geta hins vegar hlaupið upp eftir því hvar þú verslar. Gott er að hafa eitthvað af reiðufé, en greiðslukort eru almennt samþykkt alls staðar.

  • Hvenær er best að fara: Vorið frá apríl til maí og haustið frá september til október eru frábærir tímar til að heimsækja borgina. Hitastigið er þá notalegra og Seoul er sérstaklega falleg. Sumarið er heitt og veturinn getur verið ansi kaldur.

South Korea Seoul Gyeongbokgung Palace 3

Seoul fyrir þá sem koma í fyrsta skipti: hvað á að sjá og gera

Ef þetta er fyrsta ferðin þín til Seoul viltu líklega sjá stóru kennileitin og það er alveg skiljanlegt þau eru fræg af góðri ástæðu. En töfrar borgarinnar koma fyrst almennilega í ljós þegar þú blandar þessum hápunktum saman við minni lókal staði sem endurspegla hversdagslífið. Svona nærðu góðu jafnvægi á milli beggja.

Klassíkin

Byrjaðu á Gyeongbokgung höllinni, stað sem fær mann til að stoppa í miðju skrolli. Hún er stórfengleg, söguleg og staðsett beint í hjarta borgarinnar. Reyndu að ná vörðuskiptunum á morgnana þau eru stutt en virkilega skemmtileg upplifun. Röltu svo yfir í Bukchon Hanok Village þar sem gömul hanok hús standa meðfram mjóum götum á milli nútímalegra kaffihúsa og lítilla listasafna. Ef þú heldur áfram suður endarðu í Samcheong dong sem er fullkomið svæði fyrir kaffipásur og fólksskoðun.

Fyrir borgarútsýni klikkarðu ekki á Namsan Seoul Tower. Taktu kláfinn ef þú vilt hafa þetta þægilegt eða labbaðu upp í gegnum skógarstígana ef þú vilt vinna fyrir sólsetursmyndinni. Svo eru það Myeongdong og Namdaemun markaðurinn klassísk blanda af verslun og götumat. Hávaði, mannfjöldi, smá kaos og nákvæmlega þessi orka sem Seoul er þekkt fyrir.

Óhefðbundnari hliðin

Þegar þú ert búin/n/ð að haka við helstu kennileitin er gott að hægja aðeins á sér í Seochon Village rétt vestan við höllina. Þar eru gamlar götur, litlar listasýningar og tehús þar sem tíminn virðist líða á annan hátt. Þaðan er stutt í Ikseon dong sem sameinar hanok stemningu og skapandi anda með þröngum götum, vintage lýsingu og kaffihúsum sem líta út fyrir að vera hönnuð sérstaklega fyrir myndavélina þína.

Ef þig langar í eitthvað allt öðruvísi skaltu kíkja í Mullae Artists’ Village. Svæðið var áður iðnaðarhverfi en hýsir nú málmverkstæði sem hafa breyst í listasvæði, vegglist, vinnustofur og afslöppuð kaffihús. Að lokum er Euljiro fullkomið fyrir kvöldstemningu. Heimamenn kalla svæðið Hipjiro. Á daginn eru þar gamlar prentsmiðjur og verkfæraverslanir en á kvöldin breytist hverfið í eitt áhugaverðasta barsvæði borgarinnar þar sem gömul Seoul orka mætir nýrri sköpun.

Búin/n/ð að sjá helstu staðina Kannski er kominn tími til að kanna þá hlið Seoul sem er að móta strauma um allan heim allt frá tónlist til húðumhirðu.

Large IMG 20240409 152337~2

Upplifðu K-pop stemningu í Seoul

Jafnvel þótt þú sért ekki harður K-pop aðdáandi er ómögulegt að horfa fram hjá því hversu stór hluti K-pop er af daglegu lífi í Seoul. Röltu um götur Gangnam og þú sérð auglýsingaskilti, pop-up verslanir og varning alls staðar. Hin fræga K-Star Road í Cheongdam dong er þakin krúttlegum bangsamyndastyttum tileinkuðum mismunandi idol hópum. Já, þetta er pínu týpískt, en líka frekar skemmtilegt ef þú vilt ná klassískri „ég var hér“ mynd.

Ef þú vilt eitthvað minna pússað skaltu halda til Hongdae. Á kvöldin breytast göturnar þar í lifandi svið þar sem götutónlistarmenn, danshópar og upprennandi idol stjörnur sýna hvað í þeim býr fyrir framan litla áhorfendahópa. Stemningin er hrá, kaótísk og miklu persónulegri en stórir, glansandi tónleikar. Þú gætir jafnvel rekist á næstu stóru stjörnu áður en hún slær í gegn.

Svo eru það stóru verslunarsvæðin eins og SM COEX Artium og aðrar verslanir tengdar afþreyingarfyrirtækjum. Jafnvel þótt þú ætlar ekki að kaupa neitt er áhugavert að sjá hversu risastór K-pop vélbúnaðurinn er í raun. Fyrir aðdáendur er þetta nánast Disneyland. Fyrir alla aðra er þetta frábær innsýn í einn stærsta menningarútflutning Suður-Kóreu.

Frægt fyrir ódýra húðumhirðu og snyrtivörur

Annað sem Seoul er þekkt fyrir fyrir utan K-pop og djúpsteiktan kjúkling seint um kvöld er K-beauty og húðumhirða. Og þó ekki allir ferðist hálfan hnöttinn til að kaupa andlitsgrímur, microneedling meðferðir eða alls kyns krem er samt alveg þess virði að kíkja aðeins inn í þennan heim og sjá hvað lætin snúast um.

Auðveldasti staðurinn til að byrja er Olive Young sem er í raun ein stoppistöð fyrir það sem er vinsælast í K-beauty hverju sinni. Verslanir, sanngjarnt verð sem er yfirleitt ódýrara en heima og nóg af vörum með enskum merkimiðum svo þú endir ekki með sniglakrem þegar þú ætlaðir að kaupa sólarvörn.

Ef þú ert í stuði fyrir meiri „verslunarævintýri“ skaltu rölta um Myeongdong. Göturnar þar eru pakkaðar af snyrtivöruverslunum sumar með stór afsláttartilboð, aðrar sem rétta þér ókeypis sýnishorn bara fyrir það eitt að labba inn. Þetta er líflegt, aðeins kaótískt en skemmtilegt ef þú hefur gaman af því að leita að góðum dílum. Vertu samt á varðbergi gagnvart ágengum sölumönnum.

Web Horizontal Shutterstock 2578719127

Besti maturinn og besta snarlið

Matsenan í Seoul er miklu meira en kimchi og eitthvað á priki.

Götumarkaðir: Gwangjang markaðurinn er algjör klassík. Prófaðu bindaetteok mungbaunapönnukökur, mayak gimbap og sterkt tteokbokki. Namdaemun og Myeongdong markaðirnir eru líka troðfullir af nasli og skemmtilegum matarstöndum sem reyna aðeins á hugrekkið þitt.

Kóreskt BBQ: Algjör must. Náðu í nokkra vini eða nýja kunningja af hostelinu sestu við borð með grill í miðjunni og pantaðu samgyeopsal svínasíðu eða galbi marineraðar rifjur. Þú grillar sjálf/ur/t pakkar kjötinu inn í salatblöð með sósum og meðlæti og skolar þessu niður með soju eða bjór. Þetta er ekki bara máltíð þetta er kvöldmatur sem liðsíþrótt. Hongdae Itaewon og Gangnam eru full af góðum BBQ stöðum en þú rekst líka á fullt af litlum stöðum sem heimamenn elska.

Falin mötuneyti og götumatargersemar: Í Ikseon dong Seochon og Euljiro finnurðu pínulitla fjölskyldurekna staði þar sem matseðlar eru oft handskrifaðir og verðin vinaleg. Þetta eru staðirnir fyrir súpur núðlur og heimilismat sem minnir á eldhús ömmu einhvers.

Snarl seint um kvöld: Í Hongdae og Sinchon finnurðu pojangmacha rauð tjöld með götumat og ramyeon staði sem eru opnir allan sólarhringinn og halda næturuglunum gangandi. Fullkomið eftir tónleika eða barferð þegar þú þarft skyndilega sterkar núðlur klukkan þrjú um nótt.

Web Vertical IPHONE13PRO KOREA FOOD 02

Klár að skipuleggja ferð til Seoul?

Seoul hefur sérstakt lag á að draga þig að sér. Þessi stórborgarstemning sem einkennir asískar stórborgir gerir hverja upplifun aðeins meira spennandi. Frá aldagömlum höllum og götudönsurum í Hongdae til ilmsins af grilluðum götumat kemur Seoul sífellt á óvart með eitthvað nýtt handan við hvert horn.

En málið er að þegar það er svona margt að sjá og gera hjálpar að hafa einhvern sem kann að setja hlutina saman. Þar komum við inn í myndina. Við hjálpum þér að móta ferð sem er ekki bara hefðbundinn túristi í Seoul heldur þín egin upplifun af Seoul, matnum, menningunni ævintýrunum og kannski smá K-pop töfrum líka.

Byrjaðu að skipuleggja ferðina með okkur

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.