Heimsreisuspjall
Það er komið að fyrsta heimsreisuspjalli ársins! Ef þú ert að huga að því að fara í heimsreisu eða bara í ferðalag yfirhöfuð þá mælum við svo sannarlega með því að þú mætir á þennan ókeypis viðburð.
Það er komið að fyrsta heimsreisuspjalli ársins! Ef þú ert að huga að því að fara í heimsreisu eða bara í ferðalag yfirhöfuð þá mælum við svo sannarlega með því að þú mætir á þennan ókeypis viðburð.
Komdu í skemmtilegt og frjálslegt ferðaspjall, fáðu allar nýjustu upplýsingarnar um flottustu ferðirnar ásamt hellings innblæstri! Ferðasérfræðingar okkar munu gefa góð ráð varðandi undirbúning á heimsreisu og deila reynslu sinni af því að vera á bakpokaferðalagi. Það eru ómetanlegar upplýsingar fyrir alla þá sem eru að fara að leggja land undir fót svo þú mátt ekki missa af þessu!
Hvenær?
Fimmtudagurinn 7. mars er dagurinn sem vinsæla heimsreisuspjallið okkar fer fram en það fer fram á skrifstofu okkar á Lækjartorgi 5, 3. hæð frá klukkan 17:30 - 19:30.
Aðgangur er ókeypis en þar sem sætafjöldi er takmarkaður er gott að mæta tímanlega á þetta skemmtilega og fræðandi kvöld. Eftir kynninguna getur þú svo spjallað við ferðasérfræðingana okkar og fengið svör við öllum þínum spurningum.