Orðið frí hefur margar merkingar. Fyrir suma er frí samheiti fyrir afslöppun á ströndinni, en fyrir bakpokaferðalanga er það hins vegar algjört klúður að koma úthvíldur heim úr fríi! Lestu okkar bestu 8 ráð fyrir orkumikil frí.
Fá fría ferðaráðgjöf
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Orðið frí hefur margar merkingar. Fyrir suma er frí samheiti fyrir afslöppun á ströndinni, en fyrir bakpokaferðalanga er það hins vegar algjört klúður að koma úthvíldur heim úr fríi! Lestu okkar bestu 8 ráð fyrir orkumikil frí.
Fá fría ferðaráðgjöf
Vindur er sjaldnast efstur á óskalistanum og svo sannarlega ekki þegar þú ferð í frí! En stundum er þessi annars hataða veðurgerð einmitt það sem þú þarft! Kitesurfing gerir þér kleift að nýta krafta vindsins til fulls. Þú getur notað vindinn til að gera allskonar skemmtileg trix í vatninu. Æfingin gefur þér gott jafnvægi og ekki síst mikinn styrk. Windsurfing er síðan önnur vatnsíþrótt þar sem þú nýtir krafta vindsins og þjálfar jafnvægi og hreyfifærni þína.
Að fara í gönguferð er frábær leið til þess að kanna náttúru, menningu og líf heimamanna á þeim stað sem þú ert að heimsækja. Það er líka ómetanleg upplifun að labba upp í hæð þar sem þú getur drukkið í þig útsýnið frá alveg nýju sjónarhorni. Ekki missa af gönguferðum til Machu Picchu í Perú eða til Jesú styttunnar í Brasilíu.
Að surfa er frábær leið til þess að halda sér í formi á ferðalaginu. Ef þér líkar við hasar og ert ekki hrædd/ur við að gleypa nokkra lítra af saltvatni, þá er þetta örugglega íþróttin fyrir þig! Góð hreyfing fyrir allan líkamann og ekki síst skemmtileg. Stand up paddle boarding og bodyboarding eru aðrar hreyfingar í vatninu sem við mælum líka með. Ef þú vilt virkilega ógleymanlega surf upplifun, mælum við með því að fara í surfbúðir. Þar kynnist þú nýju fólki og passað er upp á að þú vaknir á réttum tíma til að ná bestu öldunum.
Að sigla um í kajak eða kanó er kannski ekki jafn fjörugt og aðrar athafnir en það er ótrúlega góð hreyfing fyrir allan líkamann, ekki bara handleggina eins og margir telja. Kajakferð er því frábær leið til að upplifa svæði utan landsbyggðarinnar. Síðan ef kajakinn fer of hægt fyrir þig og þig vantar kraftmeiri athöfn þá geturðu alltaf skellt þér í rafting!
Sund er furðu góð hreyfing! Sameinaðu það með snorklbúnaði og þú ert komin með eina skemmtilegustu hreyfingu sem við getum hugsað okkur! Taktu nokkra hringi í sjónum til að kæla þig niður og skoða lífið neðansjávar. Ef þú vilt síðan bæta aðeins í skaltu taka köfunarvottorð og upplifa neðansjávar lífið almennilega.
Með hjóli er hægt að skoða stærra svæði á stuttum tíma, á sama tíma og það er góð hreyfing fyrir líkamann. Samkvæmt dönskum heilbrigðisupplýsingum brennir þú að meðaltali u.þ.b. 300 hitaeiningum á klukkustund þegar þú hjólar. Ef þú ert síðan að leita að áskorun og ekki síst stórbrotinni náttúruupplifun, þá er „Death Road“ í Bólivíu mögulega hjólaferðin fyrir þig? Mundu bara eftir hjálminum!
Adrenalínfíklinum í þér gæti fundist jóga leiðinlegt og vera bara fyrir sérvitringa, en að æfa jóga gefur líkamanum í raun ótrúlega góðan grunn fyrir allar þær íþróttir sem við höfum nefnt hér að ofan. Það besta er að þú getur stundað jóga nánast hvar sem er og lítill klukkutími á dag getur haft mikil áhrif í langan tíma, bæði fyrir líkamlega og andlega heilsu.
Íþróttir eru ekki bara skemmtilegar þegar þú tekur þátt - þær eru líka góð skemmtun. Auk þess að halda sér í formi getur verið spennandi að fara og horfa á íþróttir eða hreyfingar sem eru sérstakar fyrir landið sem þú ferðast um. Hver veit, kannski finnur þú þína nýju uppáhalds íþrótt!
1/3: Hvert vilt þú fara?
Settu inn þá staði sem þú vilt fara til og veldu u.þ.b. hversu lengi þú vilt vera þar.
2/3: Hvernig ferðalangur ert þú?
Við viljum veita þér bestu mögulegu ráðgjöf og tryggja að þú fáir sem mest fyrir peninginn. Gefðu okkur nánari upplýsingar og við munum sérsníða ferðatillöguna að þínum þörfum. Veldu þær staðhæfingar sem lýsa þér best. Ef engin þeirra á við þig, smelltu á "Næsta skref".
3/3: Fylltu út eftirfarandi upplýsingar
Vinsamlegast skildu eftir símanúmer eða netfang svo að við getum haft samband við þig. Þeim mun ítarlegri upplýsingar sem þú gefur okkur því betri aðstoð getum við veitt þér.
"Ég er að skipuleggja mína fyrstu stóru ferð"
"Ég vil vinna eða fara í sjálfboðastarf á meðan ég ferðast"
"Ég vil læra eitthvað nýtt á ferðalaginu mínu"
"Ég vil upplifa ólíka menningarheima með öðrum ferðalöngum"
"Mig vantar aðeins flugmiða"
"Ég vil fá ráðleggingar um hvernig best sé að skipuleggja ferðina mína"
Þú hefur hannað þína eigin ferð! Takk fyrir að deila henni með okkur.
Þetta er það sem gerist næst:
1) Þú munt fá tölvupóst með afriti af þeim ferðaupplýsingum sem þú veitir okkur.
2) Við hefjumst handa. Einn af okkar reyndu ferðasérfræðingum mun fara í það að finna bestu og hagstæðustu möguleikana fyrir þig.
3) Við hringjum eða sendum þér tölvupóst sem allra fyrst með okkar tillögu að ferðinni þinni. Í millitíðinni getur þú alltaf náð í okkur í síma 517-7010. Heyrumst fljótlega!
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.