Dreymir þig um fjölskylduævintýri í campervan í Ástralíu?
Við skiljum það vel! Slík ferð er bæði skemmtileg, ævintýraleg og gefur ykkur frelsi til að ferðast á ykkar eigin hraða, sem gerir hana að frábærum valkosti fyrir fjölskyldur með börn. Það eru þó nokkur atriði sem gott er að hafa í huga til að gera upplifunina enn betri.
Við höfum tekið saman 7 gagnleg ráð og hagnýtar ábendingar fyrir fjölskyldur sem eru að skipuleggja road trip um Norður-Queensland og vilja fá sem mest út úr ferðalaginu.
1. Hafðu grófa ferðaáætlun tilbúna
Þó að stór hluti af sjarmanum við road trip sé frelsið og óvæntu stoppin á leiðinni, er gott að vera með ferðaáætlun í grófum dráttum. Það þýðir ekki endilega að bóka þurfi öll tjaldsvæði fyrirfram, þó það geti verið skynsamlegt á annasömum ferðatímum.
Þegar ferðast er með börn skiptir máli að allir viti nokkurn veginn hvað er fram undan áður en lagt er af stað. Oft er auðveldara að forðast pirring og þreytu ef börnin vita hversu lengi næsti aksturskafli er og hvað bíður þeirra í næsta stoppi. Verður farið í göngu á ströndinni, stoppað í ís eða er fallegur útsýnisstaður á dagskránni?
Með því að undirbúa ferðina lauslega og skapa skýrar væntingar verður ferðalagið yfirleitt ánægjulegra fyrir alla fjölskylduna.

2. Hvenær er best að fara?
Norður-Queensland er frábær áfangastaður nánast allt árið um kring, en árstíminn getur haft áhrif á upplifunina. Hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga þegar þú skipuleggur road trip með fjölskyldunni.
Ferðatími og árstíðir
Þrátt fyrir að það sé vetur víða í Ástralíu eru mánuðirnir júní, júlí og ágúst meðal vinsælustu tímanna til að heimsækja Norður-Queensland. Þá er hitastigið yfirleitt á bilinu 20-25°C, rakastigið er lægra og sólríkir dagar algengir. Á þessum tíma fara margir Ástralar frá Sydney, Melbourne og öðrum borgum sunnar í landinu leið sína norður til að njóta hlýrra veðurs. Einnig hefst hvalatímabilið og því eru góðar líkur á að sjá hnúfubaka, sérstaklega ef þú ferð í siglingu við Kóralrifið mikla eða í útsýnisflug yfir svæðið. Annar kostur við þennan árstíma er að hættan á marglyttum í sjónum er almennt minni, sem gerir strand- og sjósund enn meira aðlaðandi.
Ef þú heimsækir Norður-Queensland yfir evrópskan vetur, eða frá um það bil nóvember til mars, geturðu átt von á hærra hitastigi bæði í lofti og sjó. Það getur verið kostur fyrir fjölskyldur sem vilja eyða miklum tíma í sund og vatnaleiki. Þetta á einnig við um sundlaugarnar á mörgum tjaldsvæðum, sem eru oft aðeins hitaðar af sólinni. Á veturna geta þær verið kaldar, sem veldur stundum vonbrigðum hjá yngstu ferðalöngunum!
Norður-Queensland er hitabeltissvæði með víðáttumiklum regnskógum og því getur rakastigið verið hátt, sérstaklega yfir ástralska sumarið. Búðu þig undir hlýja og raka daga og taktu með þér auka bol ef þú ætlar í lengri dagsferðir eða gönguferðir.

3. Skipuleggðu dagsferðirnar fyrirfram
Það getur verið freistandi að taka hlutunum eins og þeir koma og bóka afþreyingu frá degi til dags. Við elskum líka þann ferðamáta, en þá er hætta á að upplifanirnar sem þig langar mest í séu uppseldar þegar á reynir.
Þetta á sérstaklega við um vinsæl ævintýri eins og útsýnisflug yfir Kóralrifið mikla, river rafting og aðrar eftirsóttar dagsferðir. Þú þarft ekki að bóka allt áður en þú ferð, en það er góð hugmynd að tryggja þér pláss í þeim upplifunum sem eru efstar á óskalistanum. Þannig verður líka auðveldara að skipuleggja ferðaleiðina í kringum helstu stoppin.
Að hafa nokkrar stærri upplifanir bókaðar fyrirfram hjálpar líka fjölskyldunni að hlakka til þess sem fram undan er. Með því að ræða dagskrána og komandi ævintýri við börnin áður en lagt er af stað verður auðveldara að samræma væntingar og gera ferðina ánægjulegri fyrir alla.

4. Ekki gleyma nestinu!
Rétt eins og í löngu millilandaflugi verða akstursdagarnir yfirleitt mun auðveldari ef þú ert vel undirbúin/n með nóg af snarli og afþreyingu fyrir börnin. Þegar þið farið í matarinnkaup er skemmtileg hugmynd að leyfa börnunum að velja sér snarl sjálf. Nýtt land, ný verslun og fullt af nýjum vörum til að prófa. Fyrir mörg börn er það ævintýri út af fyrir sig að rölta um Coles eða Woolworths í leit að hinu fullkomna nesti.
Þar sem þið eruð að ferðast í campervan er líka líklegt að stór hluti máltíðanna verði eldaður á tjaldsvæðum. Því getur verið sniðugt að leyfa börnunum að taka þátt í að ákveða hvað verður í matinn eða hvað á að taka með í hádegisnesti dagsins. Þannig verða hversdagsleg verkefni eins og innkaup og matseld hluti af ævintýrinu og skapa skemmtilegar fjölskyldustundir í leiðinni.

5. Ekki sleppa Daintree-regnskóginum
Cairns er yfirleitt upphafsstaður road trip-ferða um Norður-Queensland og margir leggja strax af stað suður eftir ströndinni. Það er vissulega góður kostur, en við mælum með að gefa ykkur tíma til að kanna svæðið norður af Cairns líka.
Það er nefnilega þar sem hitabeltisævintýrið byrjar fyrir alvöru. Daintree-regnskógurinn er elsti regnskógur heims og heimili ótrúlega fjölbreytts dýralífs. Þar geturðu meðal annars komið auga á saltvatnskrókódíla og hinn einstaka kassóvara, stóran og litríkan fugl sem finnst aðeins á fáum stöðum í heiminum.
Í Daintree eru fjölmargar fjölskylduvænar upplifanir í boði. Farðu í siglingu um árnar og leitaðu að krókódílum, svífðu um trjátoppa í zipline eða skelltu þér í snorklferð í Kóralrifinu mikla. Það eru ekki margir krakkar sem geta sagst hafa snorklað í einu frægasta kóralrifi í heimi!
Ferðaráð: Gefðu þér að minnsta kosti 2-3 nætur á svæðinu. Daintree er einn af hápunktum road trip-ferðar um Norður-Queensland og staður sem bæði börn og fullorðnir muna lengi.

6. Slökun er líka hluti af ævintýrinu
Road trip snýst auðvitað um að ferðast á milli staða, en þegar börn eru með í för er ekki síður mikilvægt að gefa sér tíma til að slaka á. Finndu notalegt tjaldsvæði, helst með sundlaug og skipuleggðu einn eða tvo daga þar sem ekkert sérstakt er á dagskrá. Mörg tjaldsvæði bjóða upp á meira en bara gistingu. Þar má oft finna sundlaugar, leiksvæði, hoppudýnur, hjólaleigu eða aðra afþreyingu sem gerir fjölskyldunni kleift að njóta dagsins án þess að vera stöðugt á ferðinni.
Fyrir yngri ferðalanga getur það verið krefjandi að vakna á nýjum stað á hverjum morgni. Hluti af töfrunum við ferðalagið getur líka falist í því að staldra aðeins við, njóta umhverfisins og kanna næsta nágrenni í rólegheitum. Í stað þess að reyna að sjá allt mælum við með að sleppa nokkrum stoppum á leiðinni og skapa pláss fyrir afslöppun. Oft verður spennan við að halda áfram á næsta áfangastað jafnvel meiri eftir að hafa átt einn rólegan dag á sama stað.

7. Góð ráð fyrir ferðalagið
Fyrir utan allt sem við höfum þegar farið yfir eru nokkur einföld ráð sem geta gert road trip með fjölskyldunni enn þægilegra og skemmtilegra:
- Pakkaðu í mjúkar töskur. Þær passa mun betur í skápana og geymslurýmin í campervaninum.
- Taktu upp úr töskunum strax fyrsta daginn. Flestir campervanar og húsbílar eru með nóg af skápaplássi og það er mun þægilegra að hafa allt aðgengilegt.
- Leggðu aftast á bílastæðum stórmarkaða. Verslanir eins og Coles og Woolworths eru oft með pláss fyrir stærri ökutæki aftast á bílastæðinu.
- Veldu campervan sem er aðeins stærri en þú telur þig þurfa. Á lengri ferðalögum getur aukaplássið skipt miklu máli og gert ferðina þægilegri fyrir alla.
- Gefðu þér tíma fyrir óvænt stopp. Stundum verða bestu minningarnar til þegar þú tekur smá krók að fossi, heimsækir notalegan strandbæ eða stoppar á sveitabæ fyrir heimabakað góðgæti.
- Vertu með farsímaáskrift eða eSIM sem virkar í Ástralíu. Það er gott að hafa aðgang að kortum og leiðsögn, sérstaklega utan þéttbýlis.
- Sæktu hljóðbækur, tónlist eða hlaðvörp fyrir ferðina. Tíminn líður hraðar þegar góð afþreying er í boði fyrir alla fjölskylduna.
- Haltu í kvöldrútínurnar. Nýir staðir og nýjar upplifanir á hverjum degi geta verið þreytandi fyrir börn, svo fastar kvöldvenjur skapa öryggi og stuðla að betri svefni.
- Nýttu salernin á tjaldsvæðunum þegar mögulegt er. Þá þarftu sjaldnar að losa salernistankinn í campervaninum og trúðu okkur, það er verkefni sem flestir vilja lágmarka!
Viltu vita meira?
Auðvitað henta ekki öll ráð öllum fjölskyldum, en ef þig dreymir um road trip um Norður-Queensland erum við hér til að hjálpa! Við vitum að svona fjölskylduferð er oft lengi á óskalistanum og því leggjum við okkur fram um að skapa ógleymanlegt ævintýri fyrir alla fjölskylduna.
Hafa samband