Ímyndaðu þér að búa á paradísareyju í miðju Indlandshafi - umkringd/ur hvítum ströndum og kristaltæru vatni. Hljómar vel ekki satt? Þetta gæti verið næsti vinnustaður þinn!
Hvers konar sjálfboðaliðastarf á Seychelles-eyjum get ég farið í?
Á Seychelles-eyjum getur þú til dæmis farið í sjálfboðastarf þar sem þú starfar við hafvernd. Sjávarlífið í kringum eyjarnar er ótrúlegt og með því að fara í sjálfboðaliðastarf á Seychelles-eyjum getur þú hjálpað til við að vernda það.
Einnig bjóðum við upp á sjálfboðastarf þar sem þú hjálpar til við að vernda eyjuna sem þú býrð á, bæði á landi og í sjó.
Fyrir þá sem vilja fara í sjálfboðastarf tengt dýravend bjóðum við upp á sjálfboðastarf á Seychelles-eyjum þar sem þú starfar við að vernda Lemon hákarla og skjaldbökur.
Í sjálfboðastörfunum munt þú safna dýrmætum gögnum sem mörg samtök nýta sér. Meðal annars notar stjórn Seychelles-eyja gögnin til að greina frá ástandi kóralrifa á staðnum og við mótun nýrra stefna á þessu svæði.
Ef þig langar að fara í sjálfboðastarf á Seychelles-eyjum þá skaltu skrifa okkur og við aðstoðum þig við að finna sjálfboðastarfið sem að hentar þér best.
Fá fría ráðgjöf