Maður er alltaf að læra og hvað er betra en að læra eitthvað nýtt á ferðalagi í fallegu umhverfi? Með því að fara í endurmenntun erlendis hjálpum við þér að bæta við hæfni þína innan ákveðins svæðis og styðja persónulegan vöxt þinn. Það getur verið fyrir þinn eigin persónulega þroska, til að bæta ferilskrána eða til að finna nýjan farveg í lífinu. Þú ferðast með tilgangi og byggir upp stærra tengslanet.
Endurmenntun erlendis - Hvað við bjóðum upp á
Þú getur lært um marka mismunandi þætti vefþróunar - orðið SoMe snillingur og markaðssérfræðingur, ljósmyndari með þitt eigið fyrirtæki eða skara fram úr í vefþróun og kóðun. Allt saman er þetta frábær þekking til að hafa ef þú vilt þróa þitt eigið fyrirtæki, byggja upp ferilskrá fyrir feril í vefþróun eða fá tækifæri til að verða digital nomad.
Kannski viltu fara allt aðra leið og tengjast náttúrunni betur. Þá getur þú farið í fræðandi útivistarævintýri og lært hvernig á að lifa af í náttúrunni á meðan þú kynnist athöfnum eins og klifir, kajak og gönguferðum. Sama hvort þú sért fyrir að byggja igloe og vetraríþróttir eða hefur gaman af því að búa til bál á heitum sumarnóttum, við höfum upplifinarnar fyrir þig. Þú munt öðlast leiðtogahæfileika utandyra, læra nýja færni og hafa tíma til að hugsa um sjálfan þig og líf þitt.
Ef þér langar að taka þér námspásu þá bjóðum við upp á lærdómsreynslu fyrir lífið. Sigldu um heiminn á skipi og þróaðu þig sem einstaklingur, skaraðu fram úr sem heimsborgari og myndaðu ævilangar vináttur. Þú munt læra að sigla, taka námskeið í óhefðbundinni kennslustofu og vera hluti af sjálfboðaliðaverkefnum.
Reynslan mun marka punkt í lífi þínu, þar sem verður fyrir og eftir. Upplifun sem skilgreinir lífið.
Hvað get ég gert?
Eins og er bjóðum við upp á eftirfarandi endurmenntun um allan heim:
- Forritunarbúðir í Tæland
- Ljósmyndabúðir á Balí
- Markaðsetning og samfélagsmiðla námskeið á Balí
- Vefforritun á Balí
- Survival camp í Serbíu
- Siglt um heiminn
Og við erum sífellt að bæta við - svo fylgstu með!