{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
ecuador-waterfall-bridge-pailon-del-diablo-baños-cover
ecuador-humming-bird-branch-sidebar

Ævintýri í Ekvador

Þó að Ekvador sé eitt af minnstu löndum Suður-Ameríku er það langt frá því að vera lítið! Í Ekvador getur þú alltaf leitað hærra í leit að stærri ævintýrum! Ekvador liggur í mikilli hæð og þar er að finna marga háa snævi þakta tinda sem mynda fallega anstæðu við heiðbláan himinn, t.d. eldfjöllin Cotopaxi og Chimborazo sem eru um 6.000 metra yfir sjávarmáli. Ef háir tindir og fjallagöngur eru ekki fyrir þig þá er um nóg annað að velja. Í Ekvador er að finna guðdómlegar strendur, gott sörf og svo má ekki gleyma dýradýrðinni á Galapogos eyjunum. 

Fá fría ráðgjöf

Hvað á að gera í Ekvador?

Mikilli hæð fylgir þunnt loft. Þú tekur strax eftir því þegar þú kemur til Quito, höfuðborgar Ekvador. Mjög furðurleg tilfinning og þér finnst þú bara ekki geta gengið á sama hraða og vanalega. En þegar hæðin og þunna loftið venst áttu eftir að vilja komast enn hærra til þess að kanna hið fallega hálendi Ekvador!

Markaðir í Ekvador er stórir, litríkir og mjög vinsælir. Við mælum með markaðinum í Otavalo (norður Quito), en hann er einn sá þekktasti. Prófaðu einnig að fara á Saquisili markaðinn (suður Quito), en hann er ekki jafn túristalegur og er andrúmsloftið er allt öðruvísi. Hingað koma heimamennirnir til þess að selja hamstra og fleiri dýr. 

Ef þú ætlar ekki að ganga á eldfjöllin Cotopaxi og Chimborazo, sem við mælum bara með fyrir alvöru fjallagarpa, þá skaltu íhuga að skoða Tungurahua; virkt eldfjall í 5.000 metra hæð með risastjórum og nokkuð skelfilegum gíg. Við rætur Tungurahua liggur Banos, lítið þorp sem er tilvalinn staður til að slaka á í hengirúmi umkringdur grænum skógi, bananatrjám og litríkum blómum. 

Ef þú færð leið á því að slappa af (sem að getur gerst) þá mælum við með að þú skellir þér í spennandi hjólaferð um nærliggjandi fjöll, það kemur adrenalíninu aftur á fullt. Aðeins austar finnur þú river rafting paradísina Tena og enn lengra er Amazon frumskógurinn í öllu sínu veldi og þjópðgarðinn Parque Nacional Yasuni.

Við mælum einnig með að heimsækja Cuenca, skemmtileg borg í nýlendustíl þar sem gaman er að skoða fallegar byggingarnar. Ef þú vilt frekar njóta lífsins við fallega strönd í hengirúmi er nóg af slíkum bæjum í Ekvador, t.d. Vilcabamba í suðri.

Fá meiri upplýsingar

Dýralíf Ekvador - Galapagos

Alls staðar í Ekvador er að finna lamadýr í öllum stærðum og litum. Að fylgjast með þessum fyndnu dýrum er mjög góð skemmtun, í smá stund.

Svo er ekki hægt að fjalla um Ekvador án þess að minnast á Galapagos eyjar, náttúruparadís með villt dýralíf í algjörum sérflokki! Galapagos eru þekktastar fyrir hinar einstöku skjaldbökur, en þar er að finna fjölbreytt og litríkt dýralíf af öllum stærðum og gerðum.

Staðir til að sjá í Ekvador

Að heimsækja Galapagos er ótrúleg upplifun svo þú skalt ekki sleppa því þegar þú ert í Ekvador. Quito er frábær stökkpallur til þess að komast þangað en borgin er líka falleg og þar finnur þú til dæmis veitingastaði, kaffihús, leikhús og næturklúbba.

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Ekvador

Bloggið

Fleiri blogg
alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.