{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
buenos-aires-city-cover
buenos-aires-street-art-sidebar

Buenos Aires

Höfuðborg Argentínu, Buenos Aíres, er með fallegustu borgum Suður-Ameríku. Borgin og íbúar hennar iða af ástríðu, og er óhætt að segja að Argentínubúar séu með fallegasta og hamingjusamasta fólki heims. Hér þrífst tangó og fótbolti (sem er í guðatölu). Ekki má svo gleyma hinum litríku borgarhverfum og alla sögulegu minnisvarðana. Það er tilvalið að hefja ferðina um Argentínu akkúrat hér!

Fá fría ráðgjöf

Buenos Aíres er gríðarstór borg sem hefur að geyma mörg borgarhverfi ("barrios"). Það er erfitt að ímynda sér að hverfin séu hluti af borginni því þau búa yfir sérstökum karakter sem fær fólk, sem heimsækir þau, til að finnast þau vera lítil þorp. Þú getur farið og skoðað skemmtilegustu hverfin fótgangandi, eða tekið leigubíl - sem er alveg fáránlega ódýr í Buenos Aires!  

Falleg, elegant og stílhrein Þessi þrjú orð lýsa borginni ansi vel. Það er viss klassi yfir borginni, hér ríkir sérstakur latínskur sjarmi og er borgin alger nautnaborg. Það er ekki erfitt að verða ástfangin/n í þessari rómantísku borg - ekkert endilega í persónu heldur borginni sjálfri! Nærtækasti samanburðurinn er mögulega París, en Buenos Aíres er og verður einstök, og erfitt er að bera hana saman við aðrar borgir.  Gott dæmi um hina miklu fegurð Buenos Aires er hægt að finna á hinum einstaka kirkjugarði La Recoleta í borgarhluta sem ber sama nafn. Já í kirkjugarði! Því þessi kirkjugarður er ekkert í líkingu við venjulegan kirkjugarð, hér dóminerar hvíti liturinn, og eru margir grafsteinarnir afar flottir minnisvarðar, og hverjum öðrum glæsilegri. Já dauðinn getur líka verið fallegur! Ein afar þekkt persóna er grafin hér, Eva Peron (Evita), og er grafreiturinn hennar heimsóttur á hverjum degi af fjölda ferðamanna.

San Telmo og Palermo

Buenos Aires er án efa þekktust fyrir tangó, sem er fyrir mörgum samnefnari við borgina. Það úir og grúir af dansnámskeiðum í borgarhlutanum San Telmo, og það er ekki hægt að yfirgefa borgina án þess að hafa prófað þennan ástríðufulla dans (sama þótt þú sért ekkert fyrir að dansa!) Í San Telmo er einnig mikið af fallegum sögulegum byggingum. 

Palermo er af mörgum talinn svalasti staðurinn í Buenos Aíres. Hér ríkir þægileg og afslöppuð stemmning, hér eru flottustu verslanirnar og bestu veitingahúsin, fallegustu torgin og krúttlegustu hótelin. Við hjá KILROY mælum með nokkra daga dvöl hér á farfuglaheimili eða hóteli. 

La Boca og Maradona

Vinsælasta hverfið í Buenos Aíres er svo "La Boca" sem er frægt fyrir afar litskrúðug hús og er hverfið algert túristamekka. Það getur verið skemmtilegt að að spássera niður göturnar, en láttu það ekki koma þér á óvart að sjá nokkrar rútur með amerískum eða japönskum ferðamönnum. Einnig skaltu hafa í huga að Boca er fátækt hverfi og því frekar hættulegt ef þú ferð út fyrir helstu túristasvæðin.    Ef þú ert mikil bolta áhugamanneskja skaltu endilega skella þér á leik með hinu fræga argentínska liði, Boca Juniors, á heimavelli Maradona. Það er ótrúleg upplifun að fara á leik. Þú finnur leikvanginn titra þegar þúsundir áhangenda öskra "Bocaaa, Bocaaa". Farðu að ráði okkar og bókaðu miða á leik á farfuglaheimilinu sem þú gistir á. Starfsmennirnir munu ferja þig til og frá leikvanginum ef þú óskar þess, sem er mun öruggara en að fara á eigin vegum, því það er mjög erfitt að ná á leigubíl eftir leik.  

Hvað er hægt að gera í Buenos Aires

Skelltu þér á dansnámskeið, heimsóttu grafreit Eva Peron og ekki sleppa því að labba um vinsælasta hverfi Buenos Airers, La Boca.

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Buenos Aires

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Afþreyingar

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.