Vancouver er ein af fallegustu borgum í heimi. Borgin er sú þriðja stærsta í Kanada og liggur á fallegum stað milli Kyrrahafsins og fallegra fjallgarða. Vancouver er einn helsti áfangastaður fólks sem ferðast til Kanada eða annara hluta Norður Ameríku, því borgin veitir auðveldan aðgang að mörgum stöðum og afþreyingum.
Flestir ferðamenn sem leggja leið sína til vesturhluta Kanada gera það til að upplifa náttúrufegurð fjallanna og stöðuvatnanna í þjóðgörðum eins og t.d. Banff og Jasper. Til þess að komast þangað þarf maður að fara í gegnum einhverja af helstu borgum Norður-Ameríku og Vancouver er án nokkurs vafa besti valmöguleikinn í samanburði við aðrar vesturstrandarborgir eins og Seattle og Calgary. Miðbær Vancouver er gullfallegur og býður upp á eitthvað fyrir alla aldurshópa. Verslanirnar og svæðin umhverfis þær bjóða upp á svo margt að þú munt óska þess að þú gætir frestað útivistarferðunum til að eyða meiri tíma í borginni.
Gisting og Verslanir í Vancouver
Kanadamenn eru mjög vinalegir við alþjóðlega gesti og það er auðvelt að finna sér fínt gistiheimili þegar þú kemur í bæinn. Það er kappnóg af farfuglaheimilum hér og þar í miðbænum og ef þú vilt aðeins meira næði getur þú fundið útibú frá öllum helstu hótelkeðjunum, með herbergisþjónustu allann sólarhringinn. Það er mikið úrval verslana í Vancouver, þú getur notið andrúmsloftsins í litlum sérverslunum eða fundið stærri búðir og verslunarmiðstöðvar. Passaðu að rölta allavega einu sinni niður Robson Street til að sjá Pacific Centre verslunarmðistöðina, þar sem finna má meira en 165 búðir.
Vinsælir barir og Asískur matur
Í nágrenni Vancouver er mikið af skólum og háskólum, sem þýðir að það er fullt af ungu fólki hangandi allsstaðar í borginni. Ef þú ert á þeim aldri á bakpokaferðalagi um borgina er auðvelt að komast í samband við heimamenn til að spyrja hvar bestu veitingastaðirnir og barirnir í hverfinu séu, eða kanski mest kinkí klúbbarnir ef það er það sem þú fílar. Vancouver býður upp á allt – þ.á.m. ótrúlegt úrval góðra matsölustaða. Asískur matur er vinsæll og í hæsta gæðaflokki, þar sem Vancouver er fyrsta stopp milli N-Ameríku og Kína eða annara landa Asíu. Eða ef þig langar í alvöru kanadíska steik, þá er ekki erfitt að finna hana heldur.
Hvað er að sjá í Vancouver?
Miðbær Vancouver er troðfullur af meðalstórum skýjakljúfum og flottum verslunargötum, en ef þig langar í ævintýri utan borgarkjarnans ætti þú að fara uppá Grouse Mountain og sjá fullkomið útsýnið yfir Vancouver. Það er allt í lagi þótt þú sérst ekki göngugarpur; þú getur farið í Skyride kláfnum alla leið upp á topp.
Ef þig langar enn hærra upp þá er Capilano Suspension Bridge hengibrúin virkilega spennandi. Hún er ein lengsta hengibrú fyrir gangandi vegfarendur í heimi, og hefur verið kennileiti Vancouver síðan hún var byggð fyrir meira en hundrað árum. 70 metrum fyrir neðan brúna er Capilano áin og það er hörkuspennandi að standa á brúnni meðan hún vaggast rólega í vindinum. Hinum megin við brúna getur þú labbað meðfram trjátoppunum og upplifað ólýsanlega nánd við náttúruna.
Það gæti verið rigning…
Ef þú ætlar að heimsækja vesturhluta Kanada og stunda útivist þá er best að skipuleggja ferðina milli maí og september. Borgin er gullfalleg á veturna umkringd snævi þöktum fjallatindum og býður upp á tækifæri til að skíða, en besta upplifunin er samt á sumrin. Það er því miður satt sem sagt er um rigninguna í Vancouver. Veðrið er yfirleitt milt en svæðið hefur tilhneigingu til að laða að sér þung regnský á haustin og vorin, svo þú skalt passa að taka með þér hlífðarfatnað sem hæfir árstímanum. En ekki láta veðrið hræða þig frá borginni! Í rauninni er rigningin svipuð á allri vesturströndinni svo þú vilt ekki láta nokkra vatnsdropa standa í vegi fyrir skemmtuninni! Ef þú ferð svo lengra inn í landið eru fínustu líkur á sólskinsfríi og ótrúlega margt að gera.