{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
nicaragua-man-mountains-hiking-volcano-cover
nicaragua-leon-village-colorful-houses-sidebar

Nicaragua - Sjaldséður gimsteinn í Mið-Ameríku

Nicaragua er eitt af fátækustu löndunum Mið-Ameríku og er það sérstaklega þekkt fyrir kaffi framleiðslu sína. Það er margt að skoða og upplifa í Nicaragua. Við mælum sérstaklega með því að þú kynnir þér menningu og tónlist Garifuna fólksins, upplifir surfmenninguna og rannsakir neðansjávarlífið í einstakri köfunarferð ásamt því að skoða öll eldfjöllin, vötnin og regnskógana.

Fá fría ráðgjöf

Hvað á ég að gera í Nicaragua?

Ferð til Nicaragua býður bæði upp á afslöppun og marga spennandi afþreyingar möguleika. Þú gætir t.d. gengið upp á hið reykmikla Concepcion eldfjall á eyjunni Lago de Nicaragua og slakað svo á í heitum hverum á svæðinu. Einnig getur þú farið til Maribios og skellt þér á sandbretti á Cerro Negro eldfjallinu. 

Langar þig að kafa? Heimsæktu eyjaklasann Islas del Maiz sem eru í Karíbahafinu við strendur Nicaragua, og skoðaðu neðansjávarlífríkið. Þú átt eftir að sjá skötur, litríka fiska, skjaldbökur og jafnvel hákarla synda um. Einnig eru þar magnaðir neðansjávarhellar og einstök kóralrif.

Fá meiri upplýsingar

Managua

Þú ert ekki að ferðast til Nicaragua fyrir höfuðborgina, en hún er samt þess virði að sjá og mjög líklega er hún upphafspunkturinn þinn fyrir önnur ferðalög um landið. Í Managua finnur þú ódýra gistingu, veitingastaði og gott úrval af börum og búðum. Ekki missa af því að skoða Parque Histórico Nacional Loma de Tiscalpa en það er líklegast áhugaverðasti hluturinn að sjá. Einnig mælum við með því að þú skoðir „The Old Cathedral‟. Mundu svo að taka leigubíl þegar það er orðið dimmt! Það er nokkuð um glæpi í vissum hlutum borgarinnar. 

Granada

Granada er fallegur bær með spænskan blæ en hann var einmitt stofnaður af spánverjum árið 1524 og hefur náð að halda sjarma sínum og arkitektúr. Hér finnur þú notalegar steinlagðar götur, hestakerrur og hús í stíl við nýlendutímann. Bærinn liggur við vatnið Lago de Nicaragua, stærsta stöðuvatn Mið-Ameríku, en þar finnur þú yfir hundrað smærri eyjur til að kanna. Taktu ferju til Islan De Ometepe eyjunnar þar sem þú getur farið í magnaða göngu upp á eldfjöll og notið útsýnisins yfir vatnið og aðrar eyjur á svæðinu. 

Menningarlegur hápunktur Nicaragua

Bæði frá Managua og Granada er auðvelt að komast til Masaya, sem er miðstöð listar og menningar í Nigaragua. Hér færð þú innsýn inn í það hvernig landið var áður en Spánverjar tóku yfir. 

Bærinn sjálfur er kannski ekkert svo aðlaðandi en þetta er frábær staður til að upplifa hið daglega líf Nicaragua búa. Þar getur þú skoðað eða verslað frábært hand- og listaverk á Artesanias markaðinum og ekki má láta eldfjallið Volan Masaya framhjá sér fara. 

Að ferðast um Nigaragua

Eins og á svo mörgum öðrum stöðum í Mið- og Suður-Ameríku ertu að mestu að ferðast með rútum. Njóttu þess að ferðast í líflegum lókal rútum fullum af heimamönnum, hænum og geitum á leiðinni á markaðinn. Það er þó einnig stærri rútufyrirtæki sem fara lengri vegalengdir og bjóða upp á meiri þægindi. 

Fá meiri upplýsingar

Staðir til að sjá í Nicaragua

Nicaragua er frábær staður til að heimsækja. Þú getur gengið upp eldfjöll, slakað á í hverum, farið á sandbretti, eytt tímanum á frábærum ströndum landsins og jafnvel lært að surfa. Svo má ekki láta Granada og Masaya framhjá sér fara. 

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Nicaragua

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Afþreying

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.