Taupo er staðsett á norðurbakka Taupo vatns sem er á miðri norðureyjar Nýja-Sjálands. Ástæðan fyrir þess að Taupo er áhugaverður áfangastaður fyrir ferðamenn er fyrst og fremst vegna nálægðar borgarinnar við Tongario þjóðgarðinn. Garðurinn sjálfur er staðsettur við suðurhlið Taupo vatns. Frá borginni getur þú notið útsýnisins yfir Taupo vatn og þú sérð falleg fjöll í fjarska.
Eldfjallavirkni
Tongariro þjóðgarðurinn er frægur fyrir eldfjallavirkni sína en þar er líka möguleiki til skíðaiðkunar. Margir bakpokaferðalangar velja sér gönguferðir í garðinum sem er einn sá vinsælasti í Nýja-Sjálandi.
Þegar þú kemur til Taupo og skoðar Tongariro þjóðgarðinn ættir þú að hafa í huga hina miklu eldfjalla- og jarðhitavirkni sem er á þessum slóðum. Síðasta stóra eldgosið var árið 1996.
Margt í boði í Taupo
Í Taupo er ýmislegt í boði fyrir ferðamenn og bakpokaferðalanga sem heimsækja Taupo svæðið. Þar eru frábærir útivistarmöguleikar, til dæmis köfun, gönguferðir, siglingar á spíttbátum, skíðaiðkun, hjólreiðar, svifflug og margt fleira.