{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Tyrkland

istanbul-mosque-sunlight-cover
istanbul-turkey-blue-mosque-celijng-sidebar

Tyrkland - Þar sem austrið mætir vestrinu

Tyrkland er þar sem Evrópa mætir Asíu en línan liggur í gegnum Istanbúl. Landið er einskonar brú á milli tveggja mismunandi heimsálfa og átt þú eftir að sjá áhrifin frá þeim báðum. Að ferðast til Tyrklands er eins og að ferðast aðeins aftur í tímann en á sama tíma horfa á nútímavæðinguna. Upplifðu það hvernig gamlar hefðir mæta nútímanum!

Fá fría ráðgjöf

Hvað á ég að gera í Tyrklandi?

Á ferð þinni um Tyrkland er það eiginlega synd að stoppa ekki við í nokkra daga á einni af hinum einstöku ströndum sem finnast í landinu. Meðfram ströndinni finnur þú einnig falleg sjávarþorp eins og Alanya og Side en þau eru einnig með gott næturlíf! Ef þú ert að leita að rólegri stað þá eru staðir eins og Kalekoy, Kekova og Kalkan staðirnir þínir. Ekki gleyma því að stoppa við í Ephesus, sem er eitt best varðveittasta fornleifasvæði heims. 

Við Marmara hafið liggur bærinn Iznik. Þar getur þú fundið ótrúleg handverk ásamt því að skella þér í vínsmökkun. Þá er einnig bærinn Izmir eitthvað sem þú verður að heimsækja. Frábært að stoppa þar í nokkra daga og upplifa fornar minjar. 

Fá meiri upplýsingar

Istanbúl - Ævintýraleg stórborg

Istanbúl getur verið mjög yfirþyrmandi í byrjun. Sértaklega ef þú ert að ferðast þangað beint frá Reykjavík. Istanbúl er meðal stærstu borga heims og þar er því mikil mannþröng, umferð og læti. Götur eru oft þröngar og margir ranghalar.

Borgin hefur allt það sem þú ert að leita að í sambandi við skemmtilega menningu, afþreyingar og einstök kennileiti. Ekki missa af því að heimsækja risamarkaðinn (sem stendur klárlega undir nafni sínu) og mundu eftir því að prútta! Þá eru einnig margar fallegar moskur, tilkomu miklar hallir fyrrum sóldána og söfn sem eru þess virði að heimsækja eins og Bláa moskan, Topkapihöllin og fornleifasafnið. Ekki gleyma því að stoppa við í Hagai Sphia kirkjunni en þessi einstaka kirkja var byggð 537 og er hápunktur margra sem heimsækja Istanbúl.

Hvað á ég að borða í Tyrklandi?

Bragðlaukar þínir eiga ekki eftir að gleyma hinni einstöku matarmenningu í Tyrklandi. Tyrknesk matarmenning inniheldur mjög sterkan og kryddaðan mat en á sama tíma finnur þú einnig mikið af bragðgóðum eftirréttum. Ekki gleyma því að smakka á baklava!

Ef þú heldur að þú hafið smakkað kebab áttu eftir að verða hissa. Kebab í Tyrklandi er engu öðru líkt og þú verður ekki fyrir vonbrigðum. Annað sem við mælum með að þú smakkir er meze en sá réttur samanstendur af mörgum litlum réttum á einum stórum disk.

Hvernig er best að ferðast um Tyrkland?

Það er auðvelt að ferðast um Tyrkland með rútum. Rútukerfið er nútímalegt og gengur oftast á áætlun á meðan lestarnar eru þekktar fyrir að vera hægar og oft á tíðum seinkanir.

Fá meiri upplýsingar

Ferðaráð okkar

Heimsæktu Grand Bazaar í Istanbúl. Passaðu að hafa nægan tíma til að skoða hverina við Pamukkale og mundu að stoppa við og sjá þá einnig undir stjörnubjörtum himni.

Fá fleiri ferðaráð

Staðir til að sjá í Tyrkland

Við mælum hiklaust með ströndum Tyrklands, þær eru guðdómlegar og svo má ekki má láta stórborgina Istanbúl framhjá sér fara. Þar eru ótalmörg kennileiti og afþreyingar sem er vert að skoða. 

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Tyrklands

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Afþreyingar í Tyrklandi

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.