{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
koh-tao-look-out-cover
koh-tao-thailand-underwater-woman-photographing-sidebar

Koh Tao

Koh Tao er hluti af Chumphon eyjaklasanum í vestuströnd Tælands. Hinar eyjurnar eru Koh Samui (sem er stærst) og Koh Phangan (þar sem hið víðfræga Full Moon Partý er haldið). Koh Tao er róleg eyja að staðaldri og þar er gífurlega gott að vera. Nánast allt á Koh Tao tengist köfun á einhvern hátt og meiri hluti íbúa hennar vinna við þá grein ferðamennskunnar. Vegir á eyjunni er vægast sagt ekkert sérstaklega góðir en hægt er að komast á flest alla staði gangandi eða leigja sér líka skellinöðru.

Fá fría ráðgjöf

Að læra að kafa í Koh Tao

Ef þú ferð til Koh Tao þá verður þú að kafa og enn betra væri að taka köfunaréttindi! Koh Tao er einn af bestu stöðum heims til að kafa og það er einnig ódýrara að læra þar en á flestum öðrum stöðum í heiminum. 

Það eru ýmsir hlutir sem þú getur séð þegar þú ert að kafa í Koh Tao. Þar má nefna litrík kóralrif, skjaldbökur, hvalháfa (whale shark), sæhesta, allskonar kóralfiska, hákarla og margt fleira. Sjón er sögu ríkari! 

Hver veit nema þú finnur svo Nemo og Dóru (Angelfish og Clown fish). Báðar tegundir eru á svæðinu. 

Fá meiri upplýsingar

Hvenær er best að kafa á Koh Tao?

Stutta svar: Allt árið í kring! Allir mánuðir hafa sýna kosti og galla. Janúar og febrúrar marka upphaf köfunartímabilsins og skyggni er 10-20 metrar (sem telst gott). Í mars og apríl er svo kallað "whale shark season" í Koh Tao. Það er ágætt að kafa í maí og júní en þá eykst vindurinn og því geta sumir staðir á eyjunni verið betri en aðrir. Í júlí, ágúst og september er soldið rigning en á þessum tíma er skyggni allt að 30m+, sem er mjög mikið. Oktober er venjulega rólegur mánuður en er samt mjög gott að kafa. Nóvember er oft talinn versti mánuðurinn til að kafa á Koh Tao vegna þess að þá byrjar rigningartímbilið. Desember mánuður er mjög rólegur en aðstæðurnar eru góðar. 

Við viljum þó ítreka að miðað við allt eru allir mánuðir ágætir og hafa sína kosti og galla! 

Fá meiri upplýsingar

Eitthvað annað að gera en Köfun á Koh Tao?

Hægt er að sigla, klifra í klettum, spranga og hoppa fram af björgum, fara á “wake” bretti, í yoga eða matreiðslutíma. Einnig er vinsælt að fara í Muay Thai Boxing eða bara liggja flatmaga á öllum yndislegu ströndunum sem eyjan hefur upp á að bjóða.

Fá meiri upplýsingar 

Samgöngur til og á Koh Tao

Auðveldast er að fljúga til Koh Samui og taka þaðan ferju til Koh Tao. Það er þó einnig dýrasti kosturinn. Því mælum við oftast með því að taka rútu og svo ferju á eyjunar. 

Frá Bangkok til Chumphon til Koh Tao

Auðvelt er að kaupa sér rútu miða í Bangkok til Koh Tao. Ferðalagið tekur um það bil hálfan sólarhring. Byrjað er í nokkra klukktíma rútuferð frá Bangkok til Chumphon. Í Chumphon er svo tekið ferja til Koh Tao en sú ferð tekur 2-3 tíma. Rúturnar eru oftast mjög þæginlegar (betri en á Íslandi) og boðið er upp á næturferðir þar sem þú getur sofið mest allan tímann eða dagsferðir sem lagt er af stað snemma um morgun. 

Frá Surat Thani

Ef þú varst í Phuket eða Krabi þá er auðvelt að kaupa sér rútumiða til Surat Thani. Þaðan fer ferja til Koh Samui, Koh Phanan og loks til Koh Tao. Mögulegt er að fara í nætursiglingu. 

Ferðaráð

Til að byrja með þá viljum við hvetja þig til þess að læra kafa. Upplifunin er engri lík.

Fá fleiri ferðaráð

Hvað er hægt að gera á Koh Tao?

Koh Tao er einn besti staður Tælands til þess að kafa, eða læra að kafa. Þar er einnig hægt að klifra í klettum, skella sér á "wake" bretti og jafnvel matreiðslutíma. 

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Koh Tao

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.