{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
ella-sri-lanka-countryside-cover
sri-lanka-elephants-river-sidebar

Colombo

Ef þú ert að leita eftir skemmtilegri borgarupplifun á leið þinni um Sri Lanka þarftu ekki að leita lengra en Colombo. Borgin býður upp á frábært úrval veitingastaða, litríkt götulíf og nóg af mörkuðum fyrir þá sem elska að versla! Þessi líflega höfuðborg er staðsett á vesturströnd eyjunnar og er mikilvæg höfn fyrir landið. Ef þú ferð á bryggjuna og horfir yfir hafið muntu sjá fjölda stórra skipa sigla inn og út úr höfninni drekkhlaðin varningi. Stór hluti innflutnings- og útflutningsvara landsins fer í gegnum þessa höfn daglega og enn í dag er Colombo mikilvæg verslunarhöfn.

Fá fría ráðgjöf

Hvað á að gera í Colombo?

Þegar þú heimsækir Colombo verður þú, meðal annars, að heimsækja Dehiwala Zoo til þess að sjá fílana. Annað aðdráttarafl borgarinnar er Gangaramaya hofið nálægt Lake Biera, sem er með sitt eigið bókasafn og safn. Þú getur einnig séð glæsilegt safn gjafa sem gestir hafa skilið eftir handa hofinu í gegnum árin.

Það er margt fleira skemmtilegt að skoða og gera í Sri Lanka, en flestar ferðirnar byrja í Colombo svo það er tilvalið að stoppa þar í nokkra daga áður en þú heldur áfram ferð þinni um Sri Lanka. Þú getur t.d. farið í skipulagða ferð um eyjuna, lært að surfa eða farið í sjálfboðastarf.

Fá fleiri upplýsingar

Virkið

Sunnan við höfnina er miðpunktur borgarinnar og miðstöð verslunar í Colombo. Á þessu svæði, sem kallast Virkið eða The Fort, er einnig ríkisstjórn Sri Lanka til húsa, alþjóðleg hótel eyjunnar og hús og garðar forsetans.

Að versla í Colombo

Austan við höfnina liggur Pettah hverfið sem samanstendur af fjölda gatna sem allar eru fullar af verslunum. Hér finnur þú litrík klæði, gripi frá nýlendutímanum, gullskartgripi, krydd, ávexti, fisk, skó og margt fleira. Hvort sem þú ert að leita að hversdagslegum hlutum eða minjagripum er Pettah hverfið allt sem þú þarft! Ef þú kannt að prútta ættir þú líka að geta fengið frábær verð. Við mælum því með að þú æfir samningatæknina áður en þú ferð að versla.

Áhugaverðasta gatan í Colombo er Sea Street sem er í norðaustur hluta Pettah. Þessi gata hefur allt! Flottar gullbúðir, litrík hof og allt þar á milli. Sea Street er algjört „must see“ fyrir alla sem heimsækja Colombo.

Fá fleiri upplýsingar

Staðir til að sjá í Colombo

Dómsmála höfuðborg Sri Lanka, Colombo, hefur upp á margt að bjóða. Þú verður að heimsækja Dehiwala Zoo, Gangaramaya hofið og Pettah hverfið, þar finnurðu allt milli himins og jarðar.

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Colombo

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.