{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Maldíveyjar

maldives-huts-in-the-water-cover
maldives-beautiful-beach-drone-shot-sidebar

Maldíveyjar

Landið er staðsett í Indlandshafi og er minnsta landið í Asíu. Því hefur verið haldið fram að Maldíveyjar séu með fallegustu suðrænu eyjum heims og margir ferðamenn eru sammála þeirri fullyrðingu - sannkölluð paradís. Þú getur skoðað þig um með því að ferðast á milli eyja. Njóttu þess að kafa, snorkla og borða maldíveyskan mat sem er virkilega bragðgóður. Fiskur, aðallega túnfiskur er áberandi í eldamennsku eyjanna en sjá má arabísk, indversk og austurlensk áhrif á matargerðina. 

Fá fría ráðgjöf

Almennt um Maldíveyjar

Á Maldíveyjum búa um 300.000 manns - af þeim eru yfir 70.000 erlendir starfsmenn sem vinna við ferðamennsku. Ferðamennska sem iðnaður hófst ekki á Maldíveyjum fyrr en árið 1972 en fer ört vaxandi. Í dag er ferðamennskan orðin arðbærasta atvinnugrein landsins og nær inn miklu meiri tekjum en fiskveiðar sem er þó enn aðalatvinnugrein innfæddra. Þær eyjar sem eru notaðar í ferðamennsku eru ekki þær sömu og íbúar Maldíveyja búa á.

Malé

Malé, höfuðborg Maldíveyja, er ein af minnstu höfuðborgum heims með um 75.000 íbúa. Kannaðu gamla markaðssvæðið eða fiskmarkað Malé, þar sem þú getur skoðað fiskibátana, dhonis. Þá er einnig við hafið í norðri, The Local Market sem er fullur af litlum sölubásum með vörum sem koma aðallega frá eyjunum.

Ekki gleyma því að dást að Friday Moskunni sem er einnig nefnd Huskuru Miskiiy og er 400 ára gömul. Skoðaðu líka Islamic Centre moskuna með gullna þakið. Moskan er nógu stór fyrir 5000 manns.

Mulee-aage er hundrað ára gömul höll sem er byggð af soldáninum Mohamed Shamsuddeen III og stendur hún rétt fyrir framan Friday Mosque. Við hlið hallarinnar er þjóðminjasafn eyjanna.

Fá meiri upplýsingar um Malé

Annað áhugavert er varðar Maldíveyjar

Þú ættir að fá þér tryggingu fyrir ferðina því ef eitthvað kemur fyrir gæti jafnvel hin einfaldasta meðferð orðið kostnaðarsöm. Á megineyjunni, Malé, eru tveir spítalar en ef þú þarft alvarlega meðhöndlun eru nálægustu spítalarnir á Indlandi, Sri Lanka og í Singapúr.

Maldíveyjar eru lægsta land heimsins yfir sjávarmáli og einhver eyjanna gæti þess vegna horfið ef yfirborð sjávar hækkar of mikið. Forseti landsins, Mohamed Nashee, hefur tilkynnt að það væri mögulegt að kaupa land frá Indlandi, Sri Lanka og Ástralíu ef fé ferðamanna sé nýtt til þess að bjarga þessum fallegu eyjum. Þess vegna borga ferðamenn nokkra dollara í brottfarargjald þegar þeir fara frá landinu. Maldíveyjar stefna á að verða kolefnalausar innan áratugar og nýta einungis sólar- og vindorku.

Fá meiri upplýsingar

Ráð frá okkur

Þar sem Maldíveyjar eru múslimaland eru hátíðisdagar á föstudögum og laugardögum, en sumar búðir munu þó vera opnar. Eyjarnar eru ferðamannastaður þannig að verðlagið þar er mjög hátt. Möguleikar til að skoða menningu eyjanna eru mjög takmarkaðir en Maldíveyjar eru frábær staður til þess að hvíla sig og njóta þess að vera í fríi.

Á ferðamannaeyjunum eru engar strangar menningarreglur til staðar, þú getur fengið þér vínglas á veitingastað eða klæðst hversdagslegum fötum en þegar þú ferð að skoða aðrar byggðar eyjar er mælt með því að þú klæðist af hógværð. Dæmi er að konur ættu ekki að láta sjást of mikið í hold. Ferðamenn geta einungis farið til nokkurra eyja þar sem innfæddir búa.

Hafðu samband við ferðasérfræðinga okkar og þeir hjálpa þér að finna ferðir og flug til Maldíveyja.

Fá meiri fleiri ráð

Staðir til að sjá á Maldíveyjum

Þegar þú kemur til Maldíveyja skaltu ekki sleppa því að heimsækja Malé, höfuðborg Maldíveyja og kanna gamla markaðssvæðið þar.

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Maldíveyja

Bloggið

Sjá fleiri blogg
alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.