{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
nusa-lembongan-asia-man-diving
nusa-lembongan-asia-boats-on-ocean

Nusa Lembongan

Nusa Lembongan er ekki nema 8 ferkílómetrar að stærð. Þér á líklega eftir að finnast allt ganga svolítið hægt í byrjun en mundu þá bara að setjast niður og njóta umhverfisins. Þú finnur einnig fjölda mismunandi afþreyingarmöguleika á Nusa Lembongan eins og að kafa, snorkla og surfa. Einnig getur þú leigt þér vespu og kannað þannig eyjuna á þínum eigin hraða.

Fá fría ráðgjöf

Hvað á ég að gera á Nusa Lembongan?

Ekki sleppa því að kafa! Í boði eru margar spennandi köfunar- og snorklferðir. Njóttu þess að upplifa einstaklega litríka neðansjávarveröld og Nusa Lembongan er þekkt fyrir að vera frábær staður til að sjá Manta Rays. Þá eru einnig skilyrðin fyrir surf einstaklega góð við eyjuna, hvort sem þú ert algjör byrjandi eða reyndur surfari.

Taktu þér tíma og kannaðu:

  • Devil´s Tear:sjáðu hvernig öldurnar berja klettavegginn. Einnig er magnað að taka sér tíma og fylgjast með sólarlaginu.
  • Dream Beach: ein fallegasta strönd eyjunnar. Njóttu þess að liggja á hvítum sandi og synda í kristaltærum sjónum. Þú getur auðveldlega eytt heilum degi hér!
  • Mangrove forest: ekki missa af því að fara í siglingu inn í Mangrove forest. Þar áttu eftir að upplifa einstakt fugla- og plöntulíf ásamt því að þú færð frábært tækifæri til að snorkla.
  • Nusa Ceningan:er minni eyja staðsett á milli Nusa Lembongan og Nusa Penida. Auðvelt er að komast til hennar en það liggur brú á milli eyjanna sem þú getur gengið eða ekið yfir á vespu. Auðvelt er að ferðast um eyjuna og á leið þinni átt þú eftir að upplifa einstakt útsýni. 

Fá meiri upplýsingar

Hvenær er best að ferðast til Nusa Lembongan?

Veðurfarið á Nusa Lembongan er mjög svipað og á Balí þar sem þurratímabilið er frá apríl til október og rigningartímabilið frá nóvember til mars. Þá er háannatíminn júlí og ágúst, yfir páska, jól og áramót. 

Besti tíminn til að ferðast til Nusa Lembongan er í apríl, maí, júní og september, rétt fyrir og eftir háannatímann og ekki á rigningartímabilinu. Á þeim tíma eru oft tilboð á bæði gistingu og afþreyingu og minna af öðrum ferðamönnum að reyna að ná sömu öldu og þú.

Fá meiri upplýsingar

Staðir til að sjá í Nusa Lembongan

Nusa Lembongan er algjör paradís og við mælum með að skella sér í köfunarferð eða njóta lífsins á Dream Beach sem er gullfalleg strönd eyjunnar.

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Nusa Lembongan

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.