{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
lombok-beach-umbrella-indonesia-cover
lombok-surfer-indonesia-sidebar

Lombok

Lombok er mun minna þróuð en nágrannaeyjan Balí en býður hins vegar upp á betri strendur, stærri eldfjöll og fjölbreyttara landslag. Þar er ekki eins mikið af ferðamönnum en flestir þeirra eru bakpokaferðalangar sem koma þangað til að kafa, snorkla, fara í gönguferðir og/eða sörfa við frábær skilyrði.

Fá fría ráðgjöf

Hvað á ég að gera á Lombok?

Nálægt Lombok finnur þú frábæra staði til köfunar en flestir þeirra eru umhverfis Gili eyjar en einnig við suðurhluta eyjarinnar, Blongas Bay þar sem þú getur séð sleggjuháfa og skötur. Það er einstök upplifun að fylgjast með litríku neðansjávarlífinu hvort sem þú kafar eða snorklar. Það er líka alveg þess virði að eyða bæði tíma og pening í hinar svokölluðu Liveaboard köfunarferðir. Við Kuta ströndina er að finna bæði frábær sörf skilyrði og fallegar strendur. Þú verður hreinlega að prófa að sörfa á ferðalgi þínu um Indónesíu.

Gunung Rinjani gönguleiðin er ótrúlegt ævintýri! Gangan tekur um átta klukkutíma en hún er klárlega upplifun sem þú átt aldrei eftir að gleyma. Eyddu einnig nóttinni undir stjörnubjörtum himni ef þú færð tækifæri til þess!

Pura Lingsar er nokkur hundruð ára gamlt hof sem er áhugavert að skoða. Kynntu þér endilega hindúisma og menningu frumbyggja á Lombok.

Í kringum Flores er að finna lítil, róleg sveitaþorp og fallega strandlengju. Vert er einnig að kanna Senaru og Segenter sem eru skemmtileg þorp. 

Við mælum með að heimsækja Komodo og Rinca sem eru litlar eyjar austur af Lombok. Sjáðu hina stóru Komodo dreka (gríðarstórar eðlur sem eru um 3-4 metrar á lengd) en þetta er eini staðurinn til þess að skoða þessi skrímsli.

Fá meiri upplýsingar

Hvernig er best að komast á milli staða?

Það ganga ferjur á milli Lembar og Padagbai á Balí. Það er einnig ferjutenging við Sumbawa. Ef þig langar að heimsækja Gili eyjar þá gengur ferja þangað frá Sengigi. Einnig hefur þú ætíð möguleikann á að fljúga en það er flugvöllur í Praya.

Til þess að komast á milli staða á Lombok er best að nota almenningsvagna sem heita Bemos. Þú kemst með þeim um allt á eyjunni. Ef þú vilt meira frelsi þá getur þú leigt vélhjól eða bíl!

Fá meiri upplýsingar

Hvenær er best að heimsækja Lombok?

Veðrið á Lombok er frábært allt árið um kring og skiptist niður í tvö mismunandi tímabil - regn og þurrka. Besti tíminn til að heimsækja Lombok er yfir regntímabilið, frá október til mars. Athugaðu að það rignir ekki mikið á þessum tíma og loftið er ekki eins rakt. Hins vegar hentar þetta tímabil ekki eins vel fyrir gönguferðir.

Hafðu samband við ferðasérfræðinga okkar og þeir hjálpa þér að finna ferðir til Lambok. 

Fá meiri upplýsingar

Staðir til að sjá á Lombok

Ef þú vilt labba eftir fallegri strandlengju þá er Flores staðurinn fyrir þig en ef þig langar að kafa þá mælum við með Blongas Bay þar sem þú getur séð sleggjuháfa og skötur.

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Lombok

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.