{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
mumbai-india-festival-elephant-statue-cover
mumbai-india-high-court-building-sidebar

Mumbai

Mumbai er eins og alvöru indverskt krydd, masala, því hún fer sem eldur um öll skilningarvit þín. Mumbai er masala í bókstaflegum skilningi þar sem borgin er indæl blanda alls, blanda sem þú gleymir ekki svo auðveldlega.

Fá fría ráðgjöf

Hvað á ég að gera í Mumbai?

Þú getur orðið leikari í einn dag í Bollywood sem er stærsti kvikmyndaiðnaður í heimi og framleiðir 500-600 myndir á ári! Farðu að versla á einhverjum af hinum fjölmörgu, litríku mörkuðum. Skoðaðu hellana á Elephanta eyju, eða horfðu á sólsetrið og njóttu lífsins á Chowpatty ströndinni.

Og ef þú gengur nokkurn spöl frá Colaba, þar sem flestir bakpokaferðalangar gista, er það eins og að ferðast hundruð ára aftur í tímann. Nýtískulegu kaffihúsin, veitingahúsin og loftræstar verslunarmiðstöðvar verða einfaldir ávaxtamarkaðir, hrörlegir kofar og opin ræsi. Áhrifin sem þetta hefur á ferðamenn dvelja með þeim alla ævi. Litirnir, lyktin, bragðið, umferðin, ringulreiðin og andstæðurnar eru yfirþyrmandi.

Nokkrir skemmtilegir staðir fyrir þá sem vilja kynnast næturlífi Mumbai:

  • Enigma – Glamúrveröld Mumbai!
  • Leopold Cafè & Bar – Týpískur bar fyrir næturlíf Mumbai en þar finnur þú blöndu af bakpokaferðalöngum, indversku miðstéttarfólki og austur-afrískum viðskiptamönnum.
  • Club Mondegar – Frábærir kokteilar og bjór af krana!

Fá meiri upplýsingar

Um Mumbai

Besta leiðin til að kanna og upplifa hið einstaka andrúmsloft Mumbai er að fara fótgangandi á milli staða. Hún er hringiða þar sem viðskiptamenn, fjármálafólk, betlarar, götusölumenn, hórur og töff ungmenni frá Malabar Hill (Beverly Hills hverfi Mumbai) lifa hlið við hlið.

Spjallaðu við Mumbai yfirstéttina á Leopold cafè eða Club Mondegar. Borðaðu yfir þig af dal (linsubaunarétti) og hrísgrjónum sem borið er fram á bananalaufum og kostar aðeins nokkra dollara á næsta matsölustað, eða fáðu þér alvöru veislumat, maharaja á einhverjum af betri veitingastöðum borgarinnar.

Fá meiri upplýsingar um Mumbai

Að komast á milli staða í Mumbai

Auðveldasta leiðin til þess að komast á milli staða er í leigubíl, en gættu þess að fylgjast með reikningnum. Góð regla er að biðja bílstjórann að setja mælinn í gang eða semja um verð áður en þú ferð upp í bílinn.

Hvernig er maturinn í Mumbai?

Í Mumbai færðu brot af því besta af indverskri matargerð. Við mælum með því að þú prófir eina af „búllunum“ þar sem þú færð frábæran mat fyrir lítinn pening. Ef þú getur ekki valið af matseðlinum mælum við með tali – hrísgrjón og/eða chapati (brauð), dal, nokkrum karrýréttum, chutney og súrum gúrkum. Fáðu þér svo dásamlegan mangódrykk, mango-lassi, með þessum bragðgóða mat! Namm!

Fá meiri upplýsingar

Staðir til að sjá í Mumbai

Það er nóg um að vera og upplifa í Mumbai. Við mælum með að versla á marköðum bæjarins, skoða hellana á Elephanta eyjunni og kynnast næturlífi Mumbai. 

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Mumbai

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.