{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.

Simbabve

victoria-falls-zimbabwe-zambia-border-aerial
zimbabwe-hwange-national-park-lake-elephants-baboons-sidebar

Simbabve

Simbabve (Zimbabwe) er landlukt land í suðurhluta Afríku og lifa flestir í nágrenni borganna Bulawayo og Harare. Þetta er tiltölulega lítið land en ekki láta það plata þig því Simbabve býður upp á nóg af ævintýrum og spennandi upplifunum!

Fá fría ráðgjöf

Viktoríufossarnir

Eitt helsta aðdráttarafl Simbabve eru auðvitað Viktoríufossarnir í Zambezi ánni sem mynda náttúruleg landamæri á milli Simbabve og Sambíu. Viktoríufossarnir eru ótrúlega kraftmiklir, fallegir og áhrifamiklir, en það býr einnig mjög sérstakt og heillandi dýralíf í nágrenni við fossana. Hér getur þú séð stórar hjarðir af flóðhestum, krókódílum, fílum, buffalóum og ýmsum tegundum antilópa.

Fossarnir ná yfir 1,7 km svæði og vatnið fellur úr um 108 metra hæð. Á regntímabilinu er vatnskrafturinn oft svo mikill að vatnið úr fossunum skvettist í allt að 400 metra hæð og sést það í marga kílómetra fjarlægð. Að auki er það einstök upplifun að horfa á fossana að ofan!

Fá meiri upplýsingar um Viktoríufossana

Þjóðgarðar í Simbabve

Victoria Falls National Park er einn af átta stóru þjóðgörðum Simbabve, en sá stærsti er Hwange National Park. Þetta er eini staðurinn þar sem þú getur séð gemsbok antilópur og brúnar hýenur lifa í stórum hópum. Hwange þjóðgarðurinn er einnig einn af fáum stöðum þar sem hinn nánast útdauði villti afríski hundur býr. Hwang þjóðgarðurinn er mun minna heimsóttur en Victoria Falls National Park, en hann er stutt frá og því er tilvalið að koma hér við á leið þinni um Simbabve.

Fá meiri upplýsingar um þjóðgarðana í Simbabve

Fólkið í Simbabve - vinalegasta fólk sem þú hefur hitt!

Þrátt fyrir að íbúar Simbabve hafi upplifað meiri hörmungar en við getum ímyndað okkur eru þeir ótrúlega jákvæðir og vinalegir. Á ferðalagi þínu átt þú eftir að sjá fleiri bros en nokkru sinni áður! Óeirðir og deilur hafa þó sett svip sinn á landið og eiga heimamenn það til að virðast vera örvæntingarfullir er þeir selja handverk sitt. Tréverk frá Simbabve er heimsþekkt og þú munt hvergi finna fallegra handverk í allri Afríku. Já hefðin er að prútta en mundu að stundum skipta einn til tveir dollarar ekki máli. Mundu einnig að skoða vel vöruna sem þú ert að kaupa og alls ekki kaupa vörur sem gerðar eru úr fílabeini (ivory) eða íbenvið (ebony).

Það er ekki auðvelt að ferðast um Simbabve á eigin vegum. Því mælum við með að þú farir í skipulagða ferð með öðrum skemmtilegum bakpokaferðalöngum alls staðar að úr heiminum.

Mikilvægt að hafa í huga áður en þú ferðast til Simbabve

Við mælum með að þú notir aldrei kreditkort á meðan þú ert í Simbabve. Í gegnum tíðina, hefur ríkt óðaverðbólga í landinu og þú gætir því átt á hættu að Zimbabwe dollarar sem þú tekur út í hraðbanka verði verðlausir áður en þú veist af. Því mælum við með því að takir með þér seðla í öðrum gjaldmiðlum fyrir alla dvölina, eins og til dæmis dollara.

Fá meiri upplýsingar

Staðir til að sjá í Simbabve

Ekki láta stærð Simbabve blekkja þig, hér er nóg að gera og sjá. Það er algjörlega ómissandi að sjá Viktoríufossana og að heimsækja einna af átta þjóðgörðum landsins.

Fá fría ráðgjöf um ferðir til Simbabve

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.